Bannaðar skoðanir

Sem einhver sem hefur notað gúggl til að auglýsa varning og þjónustu þá var ég heiðraður í dag með eftirfarandi tölvupósti frá auglýsingastofu gúggl (og merki með gulu athyglisverðar setningar):

Googla AdSense og Úkraína

Ég skil þetta bara eftir, í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvað var í auglýsingunni sem kallaði á þessi viðbrögð?

Guðmundur Ásgeirsson, 13.4.2022 kl. 20:28

2 identicon

Má einkafyrirtækið Google ekki ráða sjálft við hverja það verslar?

ls (IP-tala skráð) 13.4.2022 kl. 20:43

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þetta er óhugnanlegt, en dæmigert af hálfu 1984 fyrirtækisins Google. Ég styð þig í þessari baráttu, Geir - óhæfa að leggja stein í götu atvinnureksturs manna fyrir að nýta tjáningarfrelsið (sem ég er ekki viss um að sé enn til staðar) til að viðra skoðanir sínar.

Stundum óska ég þess að 1984 væri komið aftur, eins og það var í raun og veru, ekki eins og George Orwell spáði að það yrði og virðist vera að rætast núna 2022.

Annars er ég forvitinn að vita, skoða BOT-arnir frá Google bloggið þitt og ákveða út frá innihaldi þess hvort þú megir auglýsa? Ég geri ráð fyrir að atvinnurekstur þinn hafi ekkert með átökin við Svartahafið að gera.

Að lokum, ég hef áður minnst á að spádómar Biblíunnar um hörmungatíma séu að rætast og hér er enn einn sem virðist vera að komast í uppfyllingu, úr Opinberunarbókinni 13. kafla, 16. - 18. vers:

Og dýrið lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín og kemur því til leiðar að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess. Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins því að tala manns er það og tala hans er sex hundruð sextíu og sex.

Theódór Norðkvist, 13.4.2022 kl. 22:57

4 identicon

Theódór Norðkvist,

Eins og ég hef áður sagt, þá ættir þú að hætta að horfa á þetta lélega og ömurlega Kristna- Zionista ÓmegaTV. Þrátt fyrir allan þennan stuðning þinn við "Zíonista New World Order", "Kristna- Zíonisma" og Zíonista Ísrael, þá á Moloch karlinn (eða "lögleysinginn") eftir að ganga inn í Musterið (ath. ekki kirkju og ekki Múslima Mosku skv. 2. Þessaloníkubréfi 2:4), þú? 



Hvað um það, þú átt örugglega eftir að fylgja honum Moloch karlinum (eða lögleysingjanum) og taka upp merkið hans líka, svona rétt eins og aðrir snarruglaðir kristnir-Zíonsitar í væntanlegum dýrafórnum þegar stóra og nýja Musterinu er komið, ekki satt?
Þið kristnir- Zionistar hafið verið svo ofsalega duglegir í því að styðja Zíonista- Ísrael í því að eyðileggja alla kristna trú þarna, og/eða með því að reka svona alla kristna Palestínumenn í burt, svona rétt eins þið viljið sjá til þess að spádómarnir rætist örugglega líka:

"Ég þekki þrengingu þína og fátækt – en þú ert samt auðugur. Ég veit hvernig þú ert hrakyrtur af þeim sem segja sjálfa sig vera Gyðinga en eru það ekki heldur samkunda Satans."(Op. 3.9).

"Ég þekki þjáningar þínar og fátækt – en þú ert samt ríkur. Ég veit af svívirðingum þeirra sem kalla sig Gyðinga en eru það ekki í raun heldur eru samkunda Satans"(Op 2.9).

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.4.2022 kl. 02:23

5 identicon

Sæll Geir.

Þú átt heiður skilið fyrir seinustu 3 færslur, hver annarri betri.

Þessi seinasta færsla hér er mjög í takt við þann raunveruleika sem
netverjar margir búa við en ef til vill minna þekkt birtingarmynd
þeirrar ritstýringar sem á sér raunverulega stað og mörg hver dæmin
blátt áfram lygileg. Þar með og þekkt meðal fjölda þjóða hvar
sektir og fangavist bíður þeirrra sem ekki fylgja lögum um
einstaka hugtakanotkun.

Það vaar aldrei að þú tókst til hendinni!

Húsari. (IP-tala skráð) 14.4.2022 kl. 04:02

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Mér finnst ólíklegt að póstur gúggl komi mínum skrifum við. Ég hef notað gúggl til að hýsa heimasíðu og auglýst eitthvað og ég held að póstur gúggl sé sendur á alla sem hafa nýtt sér þjónustu gúggl í markaðssetningarskyni.

En mér sýnist á öllu að gúggl sé hér að banna umræður um fyrri hörmungar í Úkraínu, svo sem blóðugar byltingar keyrðar áfram af herskáum mönnum sem svífast einskis. Það er verið að banna söguna, eins og hún hafi ekki átt sér stað. Banna að rifja upp voðaverk sem eru því miður svo algeng í sumum heimshlutum.

Svona eins og það sé einhver lykill að því að fordæmingar á innrás Rússa haldi áfram.

Eins og ég geti ekki bæði fordæmt innrás Rússa og óhæfuverk gegn almennum borgurum og kynnt mér sögu Rússlands og Úkraínu.

Geir Ágústsson, 14.4.2022 kl. 06:48

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Geir, eru Google-auglýsingar búnir að loka á þig, eða eru þeir að hóta því?

Theódór Norðkvist, 14.4.2022 kl. 16:00

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Theódór,

Nei, ekki búið að loka á mig, og já-og-nei - þessi póstur er sennilega sendur á alla notendur Google AdSense, óháð þóknun við vindhana-stefnu notendaskilmálanna.

Geir Ágústsson, 15.4.2022 kl. 19:38

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ok takk f. svarið, gleðilega páska.

Theódór Norðkvist, 15.4.2022 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband