Föstudagur, 7. janúar 2022
Hermenn og neyðarástand
Maður veit að ástand er orðið alvarlegt þegar herinn er kominn í málið. Yfirfullir spítalar í Bretlandi og hermenn mættir núna til að takast á við ómíkron-afbrigðið - ekki veitir af eins og sjá má á eftirfarandi línuritum:
Eða hvað? Hvað er í gangi? Virðist vera nokkuð rólegt!
En hvað með London sérstaklega? Svipað uppi á teningnum.
Manni sýnist helst að vandamál breskra spítala séu þau sömu og íslenskra: Skortur á starfsfólki. Kannski Bretar séu líka duglegir að senda starfsfólk heim til sín ef það drakk kaffi á sömu kaffistofu og einhver sem síðar fær jákvætt próf en tók að öðru leyti ekki eftir lífshættulegum veikindum sínum.
Og þá er nú gott að geta gripið í herinn, ekki satt? Kannski hermenn séu duglegri að taka vítamínin sín.
Stríðsástand á spítölum í London | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki sérlega rólegt. Sennilega er það rétt að Bretar noti líklega smitbera ekki í ummönnun sjúkra og slasaðra. Og sama hvort einhverjir smitberar taki eftir einhverju eða ekki þá eru um 25 að deyja daglega í London vegna covid, duglegar vítamínætur þar á meðal.
Vagn (IP-tala skráð) 7.1.2022 kl. 12:11
Takk fyrir þetta. Sé að 7 daga meðaltalið er fallandi, vonandi til merkis um að ómíkron sé endanlega búinn að sparka delta út.
Geir Ágústsson, 7.1.2022 kl. 16:04
Vandamálið á sér mjög einfalda skýringu:
https://morningconsult.com/2021/10/04/health-care-workers-series-part-2-workforce/
"18% of health care workers have quit their jobs during the COVID-19 pandemic, while another 12% have been laid off."
Þetta er víst svona um allan hinn vestræna heim. Það er meira um þetta, ef menn nenna að leita.
Ásgrímur Hartmannsson, 7.1.2022 kl. 18:11
Ásgrímur,
Það er einmitt mikilvægt í heimsfaraldri að losa sig við eitthvað af starfsfólki heilbrigðiskerfisins:
https://odysee.com/@Anon:96/nursefired:4
Geir Ágústsson, 7.1.2022 kl. 18:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.