Miðvikudagur, 5. janúar 2022
Haldið nú þessi blessuðu þorrablót
Bóndadagur er 21. janúar næstkomandi og í eðlilegu árferði væru stór þorrablót á vegum íþróttafélaganna haldin víða um landið í þessum mánuði. Miðað við stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi er þó útlit fyrir að einhverjum þeirra verði frestað.
Eða, ef maður þekkir hrædda Íslendinga rétt: Hætt við allt.
En það eru ýmis úrræði í boði. Til dæmis er hægt að kalla þorrablót eitthvað annað, t.d. listviðburð eða Bubba-tónleika, og sækja um undanþágu eða fylgja fyrirmælum um eitthvað allt annað en risastórt partý.
Það er líka hægt að leigja veiðihús í Kjósinni og forðast klögur nágranna.
Svo er hægt að láta reyna á borgaraleg réttindi sín. Jafnvel bara setja til hliðar svolítinn hluta af ágóðanum í sektina, ef lögreglan mætir á svæðið.
En eftir því sem fleiri halda sínu striki þeim mun erfiðara verður fyrir lögregluna að senda margsprautað fullorðið heim til sín vegna hættunnar á sprauturnar reynist gagnslausar.
Sjáum hvað setur.
Þorrablót íþróttafélaganna í lausu lofti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:33 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.