Hvernig neyðarástand er búið til

Hvernig býrðu til neyðarástand í rekstri sem er í ósköp venjulegum farvegi? Jú, sendir starfsfólkið þitt heim.

Neyðarástand

Nú þykjast menn á Íslandi vera að skoða gögn sem Bandaríkjamenn hafa notað sem réttlætingu á styttingu stofufangelsis fyrir hrausta einstaklinga sem hafa slegið út í einhverju prófi og eru þar með skilgreindir sem dauðvona fórnarlömb heimsfaraldurs. Slík gögn hafi reynst vel áður. Hafa þó þann fyrirvara á að Landspítalinn er búinn að senda stóran hlusta starfsfólks síns heim. Betra þá að halda stofufangelsinu óbreyttu. Jafnvel sleppa því að skoða gögn. 

Allt minnir þetta mig á brandara:

Hvað gerir Hafnfirðingurinn til að forðast innbrot? Hann fjarlægir hurðina svo enginn geti brotist inn.


mbl.is Niðurstaða liggur væntanlega fyrir á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú virðist enn halda að fólk sem eru smitberar séu lokaðir inni fjærri læknum og hjúkrunarfræðingum vegna þess að einhver telji þá dauðvona fórnarlömb heimsfaraldurs.

Allt minnir þetta mig á brandara:

Hvað gerir verkfræðingurinn til að forðast innbrot? Hann kaupir hurð úr gúmmí svo enginn geti brotist inn.

Vagn (IP-tala skráð) 28.12.2021 kl. 21:53

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Takk fyrir innlitið. Hvað finnst þér að stofufangelsi einkennralausra eigi að vera langt? Það sem íslensku vísindin segja í dag, það sem bandarísku vísindin eru nýbúin að kveða úr um eða eitthvað annað?

Geir Ágústsson, 28.12.2021 kl. 22:28

3 identicon

"Stofufangelsi", sama hvort smitberar eru einkennalausir eða ekki, rauðhærðir eða einfættir, á að vara meðan þeir eru smitandi. Einkennaleysi kemur málinu ekkert við.

Og pólitísk ákvörðun Bandaríkjamanna um að færa sína línu ásættanlegrar áhættu eru ekki vísindi. Ekki frekar en að undanþágur ráðherra frá fjöldatakmörkunum fyrir jól, sem skila nú yfir 800 smituðum á dag og flóði sjúkrahúsinnlagna eftir um hálfan mánuð, hafi verið vísindi.

Vagn (IP-tala skráð) 28.12.2021 kl. 23:18

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Er það þá túlkun þín að Víðir Reyn­is­son, yf­ir­lög­regluþjónn al­manna­varna, sé að tala máli bandarískra stjórnmála þegar hann segir eftirfarandi? Áhersla mín.

„Ef það verður metið þannig þá mun­um við ekki gera þetta, en sótt­varna­stofn­un Banda­ríkj­anna er með gríðarleg­an fjölda sér­fræðinga og mikla hópa sem þeir geta rann­sakað. Hingað til hafa gögn þeirra reynst okk­ur nokkuð góð og við höf­um farið eft­ir þeirra mati í mörg­um til­fell­um. En það er auðvitað breytt staða hjá okk­ur núna því Land­spít­al­inn fór yfir á neyðarstig núna rétt áðan, þannig að við verðum að taka til­lit til þess í okk­ar vinnu.“

Geir Ágústsson, 29.12.2021 kl. 00:06

5 identicon

Það var pólitísk ákvörðun sótt­varna­stofn­unar Banda­ríkj­anna að leggja til breytingar sem auka eitthvað hættu á smitum en stytta einangrun mikið, málamiðlun vísinda og viðskipta. Þeir sem verið er að sleppa geta enn smitað og þeim er gert að bera grímu. Vísindalegt viðmið stofnunarinnar um hversu lengi fólk getur smitað hefur ekkert breyst.

Síðan er það okkar stjórnvalda að ákveða hvort þjóðfélagið þoli fleiri smitbera í umferð eða ekki og vinnustaðir þurfi á smitberum að halda. Hvort fólki verði haldið inni meðan það smitar eða hvort með minni smithættu og grímum aukist ekki álag á heilbrigðiskerfið of mikið og því sé í lagi að sleppa þeim lausum. Pólitísk ákvörðun sem vonandi verður tekin miðað við aðstæður hér en ekki í Bandaríkjunum.

Vagn (IP-tala skráð) 29.12.2021 kl. 01:18

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Hversu lengi smita einkennalausir samkvæmt þessum vísindum? 

Geir Ágústsson, 29.12.2021 kl. 09:32

7 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

Vagn, þú segir ,,okkar stjórnvalda", ertu partur af stjónvöldum? Þú hefur nefnilega alveg sömu skoðu á þessum málum og sóttvarnarlæknir og Kári og co.? Hef oft velt því fyrir mér hvort þú sér ,,live fakt-´tekkari" á vegum stjórnvalda og/eða ÍE/Amgen.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 29.12.2021 kl. 12:22

8 identicon

Já, hver er þessi Vagn?

Hann er alveg örugglega "Vagn" fyrir skoðunum einhverjar valdaelítu á bakvið tjöldin.

Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.12.2021 kl. 14:49

9 Smámynd: Geir Ágústsson

Þórdís,

Ég efast um að nokkur nenni að ráða Vagn sem málpípu sína. Hann á það til að sannfæra fleiri um það sem ég skrifa en hann sjálfur skrifar með sínum einstaka stíl. Og hefur látið ljós sitt skína á þessari síðu síðan vel áður en menn blésu til heimsfaraldurs og fóru að senda heilbrigðisstarfsfólk heim til sín.

Geir Ágústsson, 29.12.2021 kl. 14:51

10 identicon

Sæll Geir,

"Fully Vaccinated Are COVID Super-Spreaders, Says Inventor of mRNA Technology"


"Vaccination Causes Covid Variants"



Þetta neyðarástand búið til, svo og með þessum svokölluðu bólusetningum. En alvarlegar aukaverkanir eftir þessar svokölluðu bólusetningar er allt saman eitthvað sem að heilbrigðisyfirvöld ásamt þessum líka ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlum hér vilja alls ekki tala um og/eða hvað þá minnast á einu orði: 


 

"The EudraVigilance database reports that through November 20, 2021 there are 31,014 deaths and 2,890,600 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)

COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH

COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)

COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)

https://healthimpactnews.com/2021/31014-deaths-2890600-injuries-following-covid-shots-in-european-database-of-adverse-reactions-as-young-previously-healthy-people-continue-to-die/



"Do You Have Blood on Your Hands? Tens of Thousands of Children Age 5 to 11 Injected with Gene Therapy Shots"

"Whistleblower Reveals Fraud in Pfizer COVID Vaccine Trials as 5 to 11-Year-Olds Begin to be Injected Vaccine Deaths and Injuries to Follow"

"As Deaths and Injuries to Teens Increase After COVID-19 Shots Pfizer Asks FDA for Emergency Authorization to Inject 5 to 11-Year-Olds"

"CDC: Teens Injected with COVID Shots have 7.5 X More Deaths, 15 X More Disabilities, 44 X More Hospitalizations than All FDA Approved Vaccines in 2021"

"COVID Shots Are Killing and Crippling Teens in Record Numbers; Young Children Are Next"

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.12.2021 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband