Þriðjudagur, 14. desember 2021
Týndist eitthvað í þýðingunni?
Nú þegar má sprauta krakka gegn veiru þá kemur allt í einu í ljós að veiran er krökkum svo hættuleg að það þarf að sprauta þá. En týndi sóttvarnalæknir einhverju í þýðingunni? Hann vísar í skýrslu og í útdrætti hennar segir (áhersla mín):
Severe COVID-19 remains rare among children (of 65 800 notified symptomatic COVID-19 cases in children aged 5-11 years, reported from 10 EU/EEA countries during the period of B.1.617.2 (Delta) variant of concern (VOC) dominance, 0.61% were hospitalised and 0.06% needed intensive care unit (ICU)/respiratory support).
Grípum niður í bloggfærslu sóttvarnalæknis:
Í samantekt Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) frá 1. desember sl. (https://www.ecdc.europa.eu/en/publications-data/interim-public-health-considerations-covid-19-vaccination-children-aged-5-11) kemur fram að 0,6% barna sem smitast af COVID-19 þurfa á spítalainnlögn að halda, 10% þeirra þurfa að leggjast inn á gjörgæslu og 0,006% smitaðra barna látast. ... Ef ofangreindar tölur eru yfirfærðar á íslensk börn á aldrinum 5-11 ára og öll börn á þeim aldri myndu smitast (32.000), þá gætum við búist við að 100-200 börn þyrftu að leggjast inn á sjúkrahús, 16 legðust inn á gjörgæsludeild og 1-2 börn myndu látast vegna COVID-19.
Við þessa framsetningu er ótalmargt að athuga.
Í fyrsta lagi talar skýrsla ECDC um einkennasmit meðal barna. Sama skýrsla segir:
50% of positive cases among children aged 5-11 years were asymptomatic, as compared to 12% for adults.
Það má því strax helminga 0,6% töluna. Síðan má ekki gleyma því að ekki greinast öll smit ("notified" eins og segir að ofan). Enn lækkar því talan.
Og bætum því svo við að spítalinn á Íslandi hefur varla séð eitt einasta barn vegna Covid-19 nema ef vera skyldi að móðursjúkir foreldrar séu að draga heilbrigð og einkennalaus börn þangað eftir einhverja smitmælingu.
Meira að segja öftustu vagnar í halarófunni sem eltir rassgatið á sóttvarnalækni hljóta að sjá að hér er verið að moða og mauka til að búa til neyðarástand sem þarf að laga með sprautu.
Án sprautunnar mun hin íslenska tölfræðin líta svona út fyrir 5-11 ára:
- Spítalainnlagnir vegna veiru: 0-1
- Gjörgæsluinnlagnir vegna veiru: 0
- Spítalainnlagnir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: 0
- Endurhæfingarmeðferðir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: 0
Með sprautunni mun hún líta svona út:
- Spítalainnlagnir vegna veiru: 0-1
- Gjörgæsluinnlagnir vegna veiru: 0
- Spítalainnlagnir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: >0
- Endurhæfingarmeðferðir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: >0
Ef þú vilt fylla tölfræði spítalainnlagna og endurhæfingameðferða í kjölfar sprautu þá býst ég við að það sé þitt mál, þín ákvörðun og þín börn. En mínum börnum verður hlíft.
![]() |
90% virkni fyrir 5-11 ára börn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:59 | Facebook
Athugasemdir
Sóttvarnalæknir er semsagt annað hvort lygari eða fúskari. Ég hallast nú að því síðarnefnda enda þekkt að öll íslenska stjórnsýslan undirlögð viðvaningum og fúskurum.
Matthías (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 12:31
Það eru sterkar vísbendingar um að þessi tilraunaefni séu stórhættuleg. Ónæmiskerfið virðist veikjast meira með hverri sprautu og þess vegna eru sprautuðustu svæðin í mestu vandræðunum. Það er engu líkara en fólk sé í einhvers konar dáleiðsluástandi það sér ekki hvað er að gerast. Hvað gerir menn svo djarfa að taka ábyrgð á þessari árás á samlanda sína.
Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 12:35
óútreinalegur eins og innikróuð rotta, er lýsing sem á við Þórólf Guðnason núna.
Guðmundur Jónsson, 14.12.2021 kl. 12:49
Óútreiknanlegur. Átti þetta að vera
Guðmundur Jónsson, 14.12.2021 kl. 21:50
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 23:04
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 23:09
https://streamable.com/e92suq
Alarm guys, Fauci openly admits vaccine makes you more vulnerable to covid, and other disease.
https://freeworldnews.tv/watch?id=61b96a057a44fc1fe141b53d
Zhenxiang (IP-tala skráð) 15.12.2021 kl. 06:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.