Týndist eitthvað í þýðingunni?

Nú þegar má sprauta krakka gegn veiru þá kemur allt í einu í ljós að veiran er krökkum svo hættuleg að það þarf að sprauta þá. En týndi sóttvarnalæknir einhverju í þýðingunni? Hann vísar í skýrslu og í útdrætti hennar segir (áhersla mín):

Severe COVID-19 remains rare among children (of 65 800 notified symptomatic COVID-19 cases in children aged 5-11 years, reported from 10 EU/EEA countries during the period of B.1.617.2 (Delta) variant of concern (VOC) dominance, 0.61% were hospitalised and 0.06% needed intensive care unit (ICU)/respiratory support).

Grípum niður í bloggfærslu sóttvarnalæknis:

Í samantekt Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC) frá 1. desember sl. (https://www.ecdc.europa.eu/en/publications-data/interim-public-health-considerations-covid-19-vaccination-children-aged-5-11) kemur fram að 0,6% barna sem smitast af COVID-19 þurfa á spítalainnlögn að halda, 10% þeirra þurfa að leggjast inn á gjörgæslu og 0,006% smitaðra barna látast. ... Ef ofangreindar tölur eru yfirfærðar á íslensk börn á aldrinum 5-11 ára og öll börn á þeim aldri myndu smitast (32.000), þá gætum við búist við að 100-200 börn þyrftu að leggjast inn á sjúkrahús, 16 legðust inn á gjörgæsludeild og 1-2 börn myndu látast vegna COVID-19. 

Við þessa framsetningu er ótalmargt að athuga.

Í fyrsta lagi talar skýrsla ECDC um einkennasmit meðal barna. Sama skýrsla segir:

50% of positive cases among children aged 5-11 years were asymptomatic, as compared to 12% for adults.

Það má því strax helminga 0,6% töluna. Síðan má ekki gleyma því að ekki greinast öll smit ("notified" eins og segir að ofan). Enn lækkar því talan.

Og bætum því svo við að spítalinn á Íslandi hefur varla séð eitt einasta barn vegna Covid-19 nema ef vera skyldi að móðursjúkir foreldrar séu að draga heilbrigð og einkennalaus börn þangað eftir einhverja smitmælingu. 

Meira að segja öftustu vagnar í halarófunni sem eltir rassgatið á sóttvarnalækni hljóta að sjá að hér er verið að moða og mauka til að búa til neyðarástand sem þarf að laga með sprautu.

Án sprautunnar mun hin íslenska tölfræðin líta svona út fyrir 5-11 ára:

  • Spítalainnlagnir vegna veiru: 0-1
  • Gjörgæsluinnlagnir vegna veiru: 0
  • Spítalainnlagnir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: 0
  • Endurhæfingarmeðferðir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: 0

Með sprautunni mun hún líta svona út:

  • Spítalainnlagnir vegna veiru: 0-1
  • Gjörgæsluinnlagnir vegna veiru: 0
  • Spítalainnlagnir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: >0 
  • Endurhæfingarmeðferðir vegna alvarlegra aukaverkana sprautu: >0

Ef þú vilt fylla tölfræði spítalainnlagna og endurhæfingameðferða í kjölfar sprautu þá býst ég við að það sé þitt mál, þín ákvörðun og þín börn. En mínum börnum verður hlíft.


mbl.is 90% virkni fyrir 5-11 ára börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sóttvarnalæknir er semsagt annað hvort lygari eða fúskari. Ég hallast nú að því síðarnefnda enda þekkt að öll íslenska stjórnsýslan undirlögð viðvaningum og fúskurum.

Matthías (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 12:31

2 identicon

Það eru sterkar vísbendingar um að þessi tilraunaefni séu stórhættuleg. Ónæmiskerfið virðist veikjast meira með hverri sprautu og þess vegna eru sprautuðustu svæðin í mestu vandræðunum. Það er engu líkara en fólk sé í einhvers konar dáleiðsluástandi það sér ekki hvað er að gerast. Hvað gerir menn svo djarfa að taka ábyrgð á þessari árás á samlanda sína.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 12:35

3 Smámynd: Guðmundur Jónsson

óútreinalegur eins og innikróuð rotta, er lýsing sem á við Þórólf Guðnason núna. 

Guðmundur Jónsson, 14.12.2021 kl. 12:49

4 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Óútreiknanlegur. Átti þetta að vera

Guðmundur Jónsson, 14.12.2021 kl. 21:50

5 identicon

May be a Twitter screenshot of 1 person and text that says 'Emma Sayle @EmmaSayle Please help me understand this. I am double vaccinated. Last month I was ill with COVID-19.1 passed it onto my family. Therefore HOW WILL A VACCINE PASSPORT PROTECT SOCIETY??????? #NoVaccinePassportsAnywhere 6:04 AM 08 Dec 21 Twitter for Android'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 23:04

6 identicon

May be an image of one or more people and text that says 'Ef biờ burfio örvunarskammt eftir aờ vera fullbólusett. Fara í sýnatökur eftir aờ hafa verio fullbólusett. Leggjast inn á spítala meờ Kóvíd prátt fyrir aờ vera fullbólusett. Og eruờ neydd til aờ vera meờ grímur fyrir andliti eftir aờ hafa veriờ fullbólusett. Halda áfram ad halda fjarlaego viờ annad fólk eftir aờ hafa veriờ fullbólusett. Búa viờ enn hertari ağgerdir & lokanir eftir ad hafa verio fullbólusett. Pá er kominn tími til ad kyngja blessada stoltinu og vičurkenna ad pid hafid bara veriờ algjörlega .......Svikin...'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 23:09

7 identicon

https://streamable.com/e92suq

Alarm guys, Fauci openly admits vaccine makes you more vulnerable to covid, and other disease.

https://freeworldnews.tv/watch?id=61b96a057a44fc1fe141b53d

Zhenxiang (IP-tala skráð) 15.12.2021 kl. 06:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband