Föstudagur, 26. nóvember 2021
Bólusettir smita líka
Á hverjum degi fæðast nýjar og frumlegar ástæður fyrir því að alla eigi að sprauta endalaust og að börnin eigi að vera næst á skotskífunni.
En það að vilja vera frumlegur er engin ástæða til að ljúga, er það? Hérna er dæmi um lygi pökkuð í hótun og krydduð með fyrirlitningu á ákveðnum þjóðfélagshópum:
Þótt ég sé ekki mikill stuðningsmaður þess að gera eitthvað við líkama fólks sem það vill ekki sjálft ber að hafa í huga að þegar menn eru að nýta sér frelsi til að láta ekki bólusetja sig eru þeir að vega að frelsi annarra sem þeir kunna að smita. Svo það má færa rök fyrir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir einstaklingar sem ekki vilja láta bólusetja sig verði skikkaðir í sóttkví að eilífu.
Sóttkví að eilífu, takk fyrir.
Hvað um það.
Bólusettir smita líka. Eða með orðum Dr. Fauci í þessu myndbandi: Veirumagnið í nefgöngum bólusettra og óbólusettra er "the same". Og þar sem er veira þar er veirusmit.
Það er einfaldlega ekki hægt að segja að bólusettir séu í grundvallaratriðum frábrugðnir óbólusettum þegar kemur að því að halda uppi smitum í samfélaginu. Þeir sem hafa látið sprauta sig veikjast kannski minna eða í styttri tíma og allt það, rétt eins og þeir sem taka vítamín og passa að öðru leyti upp á líkama sinn, en bólusetning stuðlar ekki að endalokum veirusmita og þar með sóttvarnaraðgerða.
Bólusettir eru jafnvel helsta uppspretta smita því þeir eru kærulausari, búa við færri takmarkanir og finna síður fyrir því að þeir eru að dæla frá sér veiru í allar áttir. Kannski.
Menn héldu í upphafi og sprauturnar væru lykillinn en höfðu rangt fyrir sér eins og sést vel á því að sprautuðustu þjóðirnar eru enn og aftur að lýsa yfir neyðarástandi og boða fleiri sprautur. Kannski skortur á prófunum á efnunum sem stungið er í fólk geti skýrt það eitthvað.
Ég hef ekkert á móti því að fólk geri það sem það vill við eigin líkama til að verja hann gegn skaðlegum áhrifum veirusmita, meðal annars. En allt tal um skyldubólusetningu og sóttkví að eilífu er rekið áfram af einhverjum öðrum hvötum en viljanum til að kveða veiru í kútinn.
Ég giska á hatur.
Að lokum vil ég lýsa yfir stórkostlegum vonbrigðum með blaðamenn sem láta ljúga upp í opið geðið á sér og virðast ekki hafa snefil af vitneskju til geta spurt beittra spurninga. Telja blaðamenn hlutverk sitt kannski bara vera að kveikja á upptökutæki og slökkva þegar er búið að tala í það?
Telur mikilvægt að börn verði bólusett | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Facebook
Athugasemdir
DR. Fauci hefur líka sagt að allt yfir 25 snúninga PCR próf ber að líta á sem "false positive", það er að segja jákvæð niðurstaða (=sýking) sem er fölsk (röng). Samt sem áður eru 40 snúningar venjan í flestum löndum. 2 í 39.veldi er miklu hærri tala en 2 í 24.veldi.
Ef að svikari nær að plata fórnarlömbin endalaust með einni aðferð, þá er engin þörf á að breyta um taktík.
Ef að sprautan virkar svona vel, hvers vegna að vera hræddur við ósprautaða? Jú, Kári Stefánsson hefur sagt að ósprautaðir séu "verksmiðjur fyrir ný afbrigði". Það er hinsvegar alveg öfugt við það sem Nóbel verðlaunahafinn Dr Luc Montagnier hefur sagt. sjá myndskeið:
https://rairfoundation.com/alert-luc-montagnier-did-not-say-vaccine-would-kill-people-in-two-years-heres-what-he-did-say-video/
Bragi Sigurðsson (IP-tala skráð) 26.11.2021 kl. 14:23
Fully Vaccinated Are COVID Super-Spreaders, Says Inventor of mRNA Technology
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.11.2021 kl. 21:23
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.11.2021 kl. 21:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.