Þá skulu litlu börnin sprautuð (að óþörfu)

Lyfjastofnun Evrópu hefur gefið grænt ljós á að börn á aldrinum fimm til ellefu ára verði sprautuð gegn Covid-19, segir á visir.is. Margra mánaða andlegur skæruhernaður á almenning og sérstaklega foreldra uppsker nú marga handleggi á litlum krökkum sem verða sprautaðir gegn einhverju sem þeim stafar engin hætta af til að verja þá eldri og hræddu sem er búið að sprauta gegn því sama. Enn og aftur er okkur sagt hvað sprauturnar séu öruggar eftir rannsóknir framleiðanda á eigin varningi. Ungt fólk er að stráfalla í kjölfar sprautu en fær aldrei forsíðufréttir um sig þegar það gerist, ólíkt áttræðum einstaklingum sem eru viðkvæmir fyrir öllu.

Þetta er hreinræktaður viðbjóður svo ég orði hlutina varlega. Foreldrar eru mjög raunverulega að stofna lífi og heilsu barna sinna í hættu með því að sprauta þau með frekar nýjum og óprófuðum efnum byggðum á tækni sem hefur ekki verið þorandi að setja í manneskjur þar til meintur heimsfaraldur fór af stað. 

Skemmtileg tilviljun það, ekki satt?

Íslenskir foreldrar eru búnir að ýta um 75% íslenskra ungmenna á aldrinum 11-15 ára í sprautur og 85% ungs fólks á aldrinum 16-29 ára er búnið að sprauta sig að óþörfu. Í dag eru nokkrir einstaklingar í þessum hópi búnir að lamast, fá hjartavöðvabólgur og leggjast undir læknishendur með lífshættulegar aukaverkanir. Ef þeir hefðu sleppt sprautunum væri búið að hlífa heilbrigðiskerfinu um tugi tilfella af slíkum aukaverkunum og læknisheimsóknum og þessu unga fólki gegn skaða sem mögulega mun fylgja sumum þeirra alla ævi. 

Það er engin tilviljun að sóttvarnalæknir masaði í gær út og suður um hættuna sem börnum stafar af veiru. Enn og aftur talar hann um aukaverkanalausar sprautur. Enn og aftur! Og fólk fellur örugglega fyrir þessari fölsku söluræðu - aftur! Og þegar litlir krakkar grípa um brjóstkassann og falla andstuttir til jarðar fá þeir enga umfjöllun í fjölmiðlum. Þeir verða hunsaðir, taldir vera frávik, undantekningin frá reglunni. Um leið er öll sprautuherferðin rökstudd með tilvísun í eitt barn - eitt barn! - sem svo sannarlega var undantekningin frá þeirri reglu að Covid-19 er börnum nánast algjörlega skaðlaus sjúkdómur.

Foreldrar, ef þið viljið spila rússneska rúllettu með börn ykkar þá er eitthvað að. Þið hafið látið plata ykkur. Þið eruð heilaþvegin. Takið ykkar sprautur hvort sem þær heita Pfizer eða amfetamín en hugsið ykkur vel um áður en þið hrindið börnum ykkar úr flugvél með fallhlíf sem opnast mun sjaldnar en ykkur er sagt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eins og er þá eru 98% líkur á að óbólusettir smitist á næstu tveim árum og engar líkur á að þeir fái alvarlegar aukaverkanir. 
Ég myndi leggja hálfa aleiguna á slíkar líkur ef mér byðist svoleiðis veðmál.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.11.2021 kl. 14:50

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sæll Geir!

Munt þú treysa einhverju af því fólki sem að situr á alþingi í dag

ef að blessuð börnin munu vera sprautuð með þessu eitur-brasi?

Jón Þórhallsson, 25.11.2021 kl. 16:41

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þarna er það.

Fólk er til í að fórna lífi 4-6 barna til þess að áttræð krabbameinssjúk amma lifi kannski eina viku í viðbót.

Gott samfélag sem við lifum í, finnst þér ekki?

Á þetta kannski skilið.

Ásgrímur Hartmannsson, 25.11.2021 kl. 22:11

4 identicon

Sæll Geir,

Það á ekki að vera sprauta börn með svona tilraunar-eiturefnum, svo og þar sem þetta drasl inniheldur erfðabreyttar lífverur, þar sem að afleiðingarnar af þessum sprautum kunna að leiða til óbætanlegs tjóns.



May be an image of text that says 'The CDC just quietly admitted that the vaccines cause myocarditis. Myocarditis and Myocarditis with Pericarditis (Myopericarditis) Following COVID-19 Vaccination CDC Myocarditis and myopericarditis following mRNA COVID-19 vaccination Evidence from multiple safety monitoring systems in multiple countries supports the finding an increased risk of myocarditis and myopericarditis following mRNA COVID-19 vaccination Risk: Highest in adolescents and young adults -Males females Following dose 2> dose 1 -Onset clusters within few days of vaccination, mostly within a week Cases have tended be clinically mild CDC www'



MUST SEE "24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots; EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)

COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH

COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)

COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)

Sjá einnig hérna:

https:/1000covidstories.com

vaxpain.us

https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html

https://www.vaxlonghaulers.com/

https://mypatriotsnetwork.com/patriot/wtf-over-1000-pages-of-horrifying-pictures-stories-facts-about-covid-vaccines/

"A group of medical doctors and the leader of the Turkish Welfare Party issue a grave warning to the world. They show photos of babies born with severe genetic birth defects, like a baby with a tail, one eye, covered in hair or with multiple arms and legs. This is what could happen, as the result of the gene therapies that are injected into our people.."

"Fact is that many thousands of babies are born dead, after the pregnant mothers were injected. Something so disastrous happened to the unborn babies in the womb, that killed them."



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.11.2021 kl. 22:56

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það er verið að fremja glæpi gegn mannkyninu af margfalt stærri gráðu en Josef Mengele og félagar í nasistaflokknum frömdu á sínum tíma.

Ég tek undir orð Guðjóns (held það hafi verið hann) um að það þarf að draga þetta hyski sem stendur fyrir þessu fram fyrir stríðsglæpadómstól í stíl við Nürnberg-réttarhöldin.

Ég vona og bið að ég lifi að sjá það gert og helst að ég verði einn af þeim sem stuðla að því að það verði að veruleika.

Ef það verður aldrei af þessum réttarhöldum, neyðumst við til að biðja afkomendur Adolf Eichmanns og félaga hans í nasistaflokk Hitlers afsökunar.

Theódór Norðkvist, 28.11.2021 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband