Þessi blessuðu (svokölluðu) bóluefni

Þá er búið að setja fullan þunga á að láta alla sprauta sig með nýstárlegum og lítið prófuðum efnum. Það er lykillinn að veirulausu samfélagi! Heilbrigðiskerfinu verður hlíft! Veirunni má jafnvel útrýma! Og kannski þurrka út eitthvað af þessum óþolandi unglingum, sem eru engan veginn í áhættuhópi veiru, í leiðinni.

Auðvitað stendur ekki steinn yfir steini hérna.

Þeir sem hafa látið sprauta sig smita og smitast til jafns við ósprautaða:

We found no significant difference in cycle threshold values between vaccinated and unvaccinated, asymptomatic and symptomatic groups infected with SARS-CoV-2 Delta. (heimild)

Enginn munur er á dvalartíma og dauðsföllum sprautaðra og ósprautaðra á spítalanum þótt einhver smávegis vörn virðist vera í sprautunum gegn því að leggjast á gjörgæslu:

We observed no difference in the LoS [Length of Stay] for patients not admitted to ICU, nor odds of in-hospital death between vaccinated and unvaccinated patients. (heimild)

Veirunni verður ekki útrýmt af þeirri einföldu ástæðu að hún getur smitað dýr og dýrin sennilega smitað fólk, ef marka má aðvörunarorð bandarískra sóttvarnaryfirvalda sem segja smituðum að forðast dýr.

En látum nú ekki staðreyndir, rannsóknir og annað trufla okkur. Yfirvöld í Ástralíu boða einmanalegt og ömurlegt líf fyrir ósprautaða. Í Austurríki eru menn að rifja upp gamla takta og útiloka hina óæskilegu frá samfélaginu. Við erum komin á byrjunarreit í baráttunni við veiruna en að auki búin að innleiða eitthvað sem fer langa leið að kallast fasismi. 

Sprauturnar eru sjálfsagt góður kostur fyrir þá sem af ýmsum ástæðum vilja verja sjálfa sig persónulega gegn alvarlegum veikindum (en finnst lýsi vont). En þar við situr. Sprauturnar stöðva ekki smit né smitútbreiðslu, útrýma ekki veiru, koma ekki í veg fyrir að veiran nái til allra og eru að auki margfalt líklegri en önnur bóluefni í umferð til að valda þeim sprautuðu alvarlegum aukaverkunum og jafnvel draga þá til dauða (sem fyrir ákveðinn minnihluta er kannski áhættunnar virði, en þar við situr).

Áherslan á að láta alla sprauta sig og vilja sprauta niður í 5 ára aldur er drifin áfram af einhverju öðru en hjartahlýju alþjóðlegra stofnana. Kannski hræðslu. Kannski hagsmunabaráttu. Kannski trúgirni. En ekki sóttvörnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"This article is a preprint and has not been peer-reviewed [what does this mean?  https://www.medrxiv.org/content/what-unrefereed-preprint  ]. It reports new medical research that has yet to be evaluated and so should not be used to guide clinical practice." Eða með öðrum orðum, þessi rannsókn og niðurstaða hennar gæti verið tóm þvæla. Ekkert hefur verið sannreynt, ekkert vísindarit mundi birta þetta og enginn ætti að nota þetta til ákvarðanatöku.

Vagn (IP-tala skráð) 14.11.2021 kl. 19:12

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Kerran ætti kannski að birta rökstudda gagnrýni sína á þessar greinar, ef þær innihalda eitthvað sem ekki stenst. Það er jú tilgangurinn með því að birta forprentun, að fá gagnrýni og umræðu um innihaldið.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.11.2021 kl. 19:36

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Gagnrýnið hugarfar er auðvitað mjög mikilvægt, jafnvel á það sem birtist í CNN, RÚV og The Guardian. En það er mér ljúft og skylt að bæta við:

Increases in COVID-19 are unrelated to levels of vaccination across 68 countries and 2947 counties in the United States

At the country-level, there appears to be no discernable relationship between percentage of population fully vaccinated and new COVID-19 cases in the last 7 days .... In fact, the trend line suggests a marginally positive association such that countries with higher percentage of population fully vaccinated have higher COVID-19 cases per 1 million people.

https://link.springer.com/article/10.1007/s10654-021-00808-7

Bráðum kemur í ljós hvort sorpritið European Journal of Epidemiology sé nógu gott.

Geir Ágústsson, 14.11.2021 kl. 19:52

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eða hvort Springer sé nógu virðulegur útgefandi.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.11.2021 kl. 20:00

5 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Nú er farið að gæla við fjórðu sprautuna hér á landi sá ég í innlendri frétt áðan. Einhverra hluta vegna kemur þessi frétt mér hreint ekkert á óvart.

Það verður jú að koma út þessum 1.4 milljónum skammta af Pfizer sem búið er að skuldbinda þjóðina til að kaupa.

Kristín Inga Þormar, 14.11.2021 kl. 22:07

6 identicon

Sæll Geir,

Það er spurning, af hverju eru menn að mæla með þessum svokölluðu bólusetningum, þegar að EKKI er ennþá búið að einangrað, fjölfalda og sannprófa samkvæmt Koch postulates, með að þessi tilgreinda veira (Sars-Cov-2) valdi covid-19 veikindum ???


Svo og þar sem, að : "Hæstiréttur Spánar úrskurðar að Covid-19 hafi aldrei verið til og að engar sannanir séu til um tilvist Sars-Cov-2 vírusins"

Það þýðir reyndar ekkert að benda á (eða leita til) Embætti landlæknis (sóttvarnalæknis), því að menn fengju þessi svör frá þeim, eða hérna:

Auk þess hefur þessi líka lélega Íslenska erfðagreining hér á landi, ekki heldur ennþá einangrað og sannprófað samkvæmt Koch postulates, með að þessi tilgreinda (Sars-Cov-2) veira valdi þessum tilgreindu covid-19 veikindum. Því að aðalatrið er og hefur verið að koma inn öllum þessum hræðsluáróðri, svo og til að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum án ábyrgðar og án upplýsinga  yfir þessi tilraunar- eiturefni.   

Sjá einnig hérna:   

"Leading Corona researchers admit that they have no scientific proof for the existence of a virus"https://telegra.ph/Leading-Corona-researchers-admit-that-they-have-no-scientific-proof-for-the-existence-of-a-virus-07-31?fbclid=IwAR0Ctsyg-XCrkhOpY0TGcNi06NkuimqiQ8bldmzJ4u6PKwmWHBa0DoBl7u4

"Even the Robert Koch Institute and other health authorities cannot present decisive proof that a new virus named SARS-CoV-2 is haunting us." https://off-guardian.org/2021/01/31/phantom-virus-in-search-of-sars-cov-2/?fbclid=IwAR30jLIyuyl-Oy_wq4chpEN8aKzZJNhMgZFVND8JF7Ul9BCPYZGqZCupsdU 

"Since no quantified virus isolates of the 2019-nCoV are currently available, assays designed for detection of the 2019-nCoV RNA were tested with characterizes stocks of in vitro transcribed full length RNA."https://www.fda.gov/media/134922/download




Fully Vaccinated Are COVID Super-Spreaders, Says Inventor of mRNA Technology

MUST SEE "24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots; EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

COVID-19 MRNA VACCINE MODERNA (CX-024414)

COVID-19 MRNA VACCINE PFIZER-BIONTECH

COVID-19 VACCINE ASTRAZENECA (CHADOX1 NCOV-19)

COVID-19 VACCINE JANSSEN (AD26.COV2.S)

Sjá einnig hérna:

https:/1000covidstories.com

vaxpain.us

https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html

https://www.vaxlonghaulers.com/

https://mypatriotsnetwork.com/patriot/wtf-over-1000-pages-of-horrifying-pictures-stories-facts-about-covid-vaccines/

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.11.2021 kl. 22:25

7 identicon

Ég læt þá sem vilja birta greinina í vísindatímaritum um að fá hana ritrýnda. Býst frekar við að því verði sleppt, en ansi oft er tilgangurinn með því að birta forprentun að fá Geira þessa heims til að sjá um dreifingu eins og um alvöru ritrýnda vísindarannsókn sé að ræða. Þannig greinar um bóluefni, ivermectin og allt sem tengist covid er að finna í bílförmum.

Fyrsta villa Geirs tengd greininni, og dæmigerð fyrir málflutning Geirs, er að hann segir "Þeir sem hafa látið sprauta sig smita og smitast til jafns við ósprautaða."  En meint rannsókn snéri aðeins að smituðum. Það er ekkert sem segir bólusetta smitast til jafns við óbólusetta, það var ekki athugað í þessari rannsókn. Maður hefði haldið að (svokallaður) verkfræðingur hefði betri lesskilning, sem kæmi honum betur miðað við hvað hann sækir stíft í vafasamar heimildir.

Vagn (IP-tala skráð) 14.11.2021 kl. 22:50

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Sjá ath.semd 3 við þessa færslu. Hefði auðvitað átt að hafa efni hennar í megintextanum til að hann stæðist kröfur um heimildavinnu. Sé það núna. En minn texti stendur.

Geir Ágústsson, 14.11.2021 kl. 23:02

9 identicon

Sæl Kristín Inga,

"Nú er farið að gæla við fjórðu sprautuna hér á landi sá ég í innlendri frétt áðan."

Já, og hann Helgi Hrafn Gunnlaugsson karlinn segir, að „..ef hann mælir með hundrað sprautum skal ég taka hundrað sprautur”(https://24.is/ef-hann-maelir-med-hundrad-sprautum-skal-eg-taka-hundrad-sprautur/).

Ég held að fólk ætti endilega að láta skoða á sér blóðið áður, og ef mögulegt  er þá bæði fyrir og eftir þessar svokölluðu bólusetningar, nú og varðandi þá innihaldsefnið Graphene Oxið: 


Dr. Robert Young Finds Graphene Oxide in All Four Vaccines and Other Disturbing Ingredients

American Scientists Confirm Toxic Graphene Oxide, and More, in Covid Injections

VACCINE INGREDIENTS REVEALED

Self-Assembling Nanotech Found in Moderna Vaccine  

Scanning & Transmission Electron Microscopy Reveals Graphene Oxide in CoV-19 Vaccines

Einnig þar sem að hjartavöðvabólga (myocarditis) hefur komið upp eftir þessar svokölluðu bólusetningar.

No description available.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 01:03

10 identicon

Þinn texti er ennþá rangur, sem og ályktanir þínar. Athugasemd 3 er sama marki brennd og hin, enginn samanburður á fjölda smitaðra og fjölda bólusettra. Þar er aðeins sagt að smituðum hafi fjölgað þrátt fyrir bólusetningar. Og fjölgunin er látin óútskýrð, sennilega vegna þess að tölur landa eru vel aðgengilegar en upplýsingar um varnaraðgerðir og afléttingar ekki eins samrýmdar og aðgengilegar. Fjölgun smitaðra er ekki það sama og að bólusettir smitist til jafns við óbólusetta, eins og þú heldur fram að þar segi. Enda þarf ekki mikla skoðun til að sjá að hlutfall bólusettra meðal smitaðra er í öllum löndum sem ég skoðaði lægra en það ætti að vera ef þeir smituðust til jafns við óbólusetta. Og ég skora á þig að gera þá könnun frekar en að leita heimilda til að afbaka og mistúlka að þinni sannfæringu.

Til dæmis þarf hvorki arnarsjón né óritrýnda grein til að sjá að hér á landi er hlutfall bólusettra meðal smitaðra ekki 76% eins og hafa verið bólusettir. Og flesta daga eru 24 prósentin sem eru óbólusett með hátt í helming smita þegar þau ættu að vera tæpur fjórðungur samkvæmt þínum kokkabókum.

Vagn (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 02:55

11 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Greinin í þriðju athugasemd er ritrýnd og opin og aðgengileg. Ísland er meira að segja nefnt. 

En auðvitað eru óbólusettir (ungir krakkar 0% bólusettir, ungt fólk á ferð á flugi) að smita hlutfallslega meira en bólusetningarhlutfallð eitt og sér segir. Eldra fólk er vonandi að fara varlega enda í áhættuhópi, ólíkt öðrum. Ekki mikið að fara í bíó og loftslagsráðstefnur.

Örvunarbólusetning er svo óbein yfirlýsing um lélega virkni bóluefna. 

En kannski það sé best að loka áfram skólum óbólusettra ungra krakka og 80% bólusettra unglinga svo þau "smitist" ekki.

Geir Ágústsson, 15.11.2021 kl. 07:58

12 Smámynd: Ragnhildur Kolka

 I þeim tilvikum sem bólusettir/óbólusettir inniliggjandi er getið í fréttum er hlutfall bólusettra allt að 70%. Enda, hvernig á annað að vera, þegar um 80% þjóðarinnar er bólusett og pestin leggst vægar á børn?

Ragnhildur Kolka, 15.11.2021 kl. 10:16

13 identicon

Greinin í þriðju athugasemd er ritrýnd og opin og aðgengileg. En þar er samt ekki neinn samanburður á hlutföllum smitaðra. Þar er ekkert sem segir að bólusettir smitist til jafns við óbólusetta eins og þú fullyrðir. Sú fullyrðing þín er eftir sem áður ósönnuð og heimildir þínar segja ekkert sem lesa mætti á þann veg. Órannsakaðar einka ágiskanir þínar, útúrsnúningar og persónuleg gremja breyta því heldur ekki. Þú bara skeist upp á bak og heldur því áfram frekar en að hafa manndóm til að viðurkenna það.

Vagn (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 10:30

14 identicon

Þessi norska rannsókn er ílla hönnuð og gefur bjagaða niðurstöðu.

Tekin fyrir hér:

https://boriquagato.substack.com/p/norwegian-covid-hospitalization-trajectory

 

Tóti (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 10:55

15 identicon

Hvað með ný afbrigði sem bólusettir skvetta frá sér?

Eru einhverjar rannsóknir í gangi með þau afbrigði?

Líklega er meiri ástæða fyrir óbólusetta að fara varlega en fyrir ári síðan.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 13:51

16 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þrátt fyrir enga leit eru núna búið að finna  11 covit smit í þýðiðinu, Bústaðir, sem sagt er að telji núna 37.000 íslendinga. Bústaðir eru þeir sem eru búnir að fá þrjár sprautur eða fleiri og 14 dagar liðnir frá þeirri síðustu.

Um 70% greindra síðustu vikur eru búnir að fá 2 sprautur eð meira

Á sama tíma eru óbólusettir klárlega prófaðir meira en hinir til dæmis vegna freðalaga og vinnu.

Af þessu dregur Þórólfur svo þá "augljósu" ályktun að boostið virki vel.

Guðmundur Jónsson, 15.11.2021 kl. 13:54

17 identicon

No description available.

Þorsteinn Sch. Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 14:23

18 identicon

May be an image of text that says 'DÁNARTÍĐNI TVÍBÃLUSETTRA ER 6 SINNUM HAERRI EN ÓBäLUSETTRA, SYNIR NÝ RANNSÓKN. Double Jabbed die rate is Six Times higher than Unvaccinated, new data finds'

Þorsteinn Sch. Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 14:26

19 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

"Til jafns" er vissulega illa orðað. Slíkan beinan samanburð er sennilega ekki hægt að fá því sprautur hafa áhrif á hegðun og hafa einnig áhrif á líkama þeirra sem þær þiggja (þar á meðal vonandi einhverja veiruvörn í nokkra mánuði fyrir þá sem sleppa við innlagnir í kjölfar sprautu eins og um 150 Íslendingara hafa lent í).

Miklu frekar hefði ég átt að segja: Sprauturnar stöðva ekki útbreiðslu veiru (sumir segja "draga úr" en nú er hlaupið frá öllum yfirlýsingum um slíkt), leiða ekki til minna veirumagns í þeim smituðu (en mögulega fljótari bata, eins og mörg lyf), koma ekki í veg fyrir alvarleg veikindi og öryggi þeirra ofmetið að því marki að þær eiga nú að rjúka í þriðja skipti í fullorðna og fyrsta skipti í ung börn. 

Og vegna þess hvað þær virka illa sem úrræði í faraldri þá á að halda áfram að einblína á þær, eða eins og sóttvarnalæknir segir: Sprautur og takmarkanir og vona það besta. Það eina sem hann kann.

Svo kannski svartari lýsing en upphafleg orð mín en ég læt mildari lýsinguna standa.

Geir Ágústsson, 15.11.2021 kl. 14:47

20 identicon

"illa orðað"!! Ef ég ætla að segja þú elskar börnin þín en segi þú væntumþykir börnin þín þá er það illa orðað, en segði ég í staðinn þú ert barnaníðingur þá er það allt annað en illa orðað. Þú fórst viljandi með rangt mál og lést ekki segjast, bættir frekar í þegar þér var bent á rangfærsluna. Og svo ert þú með aumt yfirklór og útúrsnúninga. Þú mættir endilega fara að láta renna af þér, þú þarft ekki að halda upp á opnun Dönsku pöbbana á hverjum degi.

Vagn (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 15:51

21 identicon

"...þú ert barnaníðingur.."

Vagn þú hefur verið mjög duglegur í því að mæla með þessum svokölluðu bólusetningum, svo og án þess að minnast á innihaldsefni og alvarlegar aukaverkanir, en eitthvað af þessum langtíma niðurstöður eftir þessar svokölluðu bólusetningu eru farnar að koma í ljós, þú???  

"A group of medical doctors and the leader of the Turkish Welfare Party issue a grave warning to the world. They show photos of babies born with severe genetic birth defects, like a baby with a tail, one eye, covered in hair or with multiple arms and legs. This is what could happen, as the result of the gene therapies that are injected into our people.."



"Fact is that many thousands of babies are born dead, after the pregnant mothers were injected. Something so disastrous happened to the unborn babies in the womb, that killed them."


Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 15.11.2021 kl. 17:41

22 Smámynd: Geir Ágústsson

Vagn,

Þú færð hérna þína eigin mini-færslu:

Þeir sem hafa látið sprauta sig smita frá sér eins og aðrir (enginn segir lengur að bóluefnin hafi verið leið til að stöðva smit), og smitast vissulega þótt það fari að því er virðist eftir tíma frá sprautu og tegund sprautu, og þegar þeir smitast þá smitast þeir jafnmikið og aðrir:

We found no significant difference in cycle threshold values between vaccinated and unvaccinated, asymptomatic and symptomatic groups infected with SARS-CoV-2 Delta. (heimild)

Geir Ágústsson, 15.11.2021 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband