Sprauturnar eru ekki lykillinn að opnu samfélagi

Í svolitlu myndbandi frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), sem á að vera einhvers konar fræðsla, segir Dr. Katherine O'Brien (WHO Director of the Department of Immunization, Vaccines and Biologicals) að þótt sprauturnar séu rosalega skilvirkar, komi í veg fyrir flest smit, minnki smithættu frá sprautuðum og minnki veikindi ef veira brýtur mótefnamúrinn að (áhersla upphafleg)

.. it has to be vaccines and the other things we are doing

Sem sagt: Að takmarkanir þurfi að vera til staðar (grímur, handþvottur, fjarlægðir og samkomutakmarkanir) þrátt fyrir sprauturnar. 

Þetta sagði hún líka í janúar í ár en þá undir því yfirskyni að menn vissu ekki nógu mikið um virkni sprautunnar og því þyrfti ennþá að fara að öllu með gát.

Með öðrum orðum: Ekkert hefur breyst. 

Eða hvað? Jú, sprauturnar minnka veikindi og fækka smitum, að sögn, en það er nú ekki alveg rétt heldur. Frá upphafi hefur verið talað um að hlífa heilbrigðiskerfinu, fletja út smitin og annað gott. Sum ríki, t.d. Danmörk, hafa tekið þetta að fullu til sín og afnumið nánast allar takmarkanir vegna veiru vegna þess hversu margir eru sprautaðir. En alls ekki Ísland. Trúin á sprauturnar er þar lítil sem engin þótt áherslan á að láta sprauta sig, og sprauta sífellt lengra niður í aldri, sé gríðarleg, og fólk flykkist með börn sín í sprautuhallir til að leggja líf barna sinna að veði. 

Þú, fullorðin manneskja, mátt auðvitað láta sprauta þig með hverju sem er. Heróín, kókaín og hvað sem er. Ég ætla ekkert að skipta mér af því. En láttu blessuð börnin í friði, vinsamlegast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það skiptir engu máli hversu lítil hættan er, markmiðið breytist bara. Mæli með þessari nýju bók, hér er skýrt vel hvað er í gangi https://www.amazon.com/Autopsy-Pandemic-Lies-Gamble-Covid-Zero-ebook/dp/B09JCLQ2HX/ref=tmm_kin_swatch_0?_encoding=UTF8&qid=&sr=

Þorsteinn Siglaugsson, 24.10.2021 kl. 21:10

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Algjörlega sammála með börnin, og það er ekkert annað en glæpsamlegt að sprauta þau með þessum eiturefnum!

Kristín Inga Þormar, 25.10.2021 kl. 10:23

3 identicon

Sæll Geir,

Rétt hjá þér reyndar eru alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll ennþá meiri eftir þessar svokölluðu bólusetningum. Þar að auki eru mjög litlar líkur á því að börn fái covid -19, fyrir utan það þá eru lífslíkur 99,997% að börn lifi af þessi covid-19 veikindi. En það er rétt við höfum eitthvað svo léleg heilbrigðisyfirvöld hér á landi, sem að eru svona eitthvað límd, negld og slefuð við þessi lyfja- og bóluefnafyrirtæki.
KV.  



MUST SEE "24,526 Deaths, 2,317,495 Injuries Following COVID Shots; EU Database" https://www.thelibertybeacon.com/24526-deaths-2317495-injuries-following-covid-shots-eu-database/

The EudraVigilance database reports that through September 11, 2021 there are 24,526 deaths and 2,317,495 injuries reported following injections of four experimental COVID-19 shots:

    VAERS Covid Vax Records

    We want to be heard

    1000 Covid Stories

    Covid shots are killing teens




    Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.10.2021 kl. 18:22

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband