Sprautaðir bera líka út veiruna

Eini sóttvarnarlæknir Íslands (a.m.k. sá eini sem tjáir sig) hefur nú fengið leyfi til að innleiða enn eina reglugerðina, sem meðal annars felur í sér eftirfarandi:

Farþegar með tengsl við Ísland þurfa ekki leng­ur að sýna vott­orð um nei­kvætt Covid-próf á landa­mær­un­um en sæta sýna­töku við kom­una til lands­ins, hvort sem þeir eru bólu­sett­ir eða ekki. Óbólu­sett­ir farþegar þurfa sem fyrr að sýna­töku lok­inni að sæta fimm daga sótt­kví og fara í PCR-próf við lok sótt­kví­ar.

Hvernig stendur á þessum mismunandi reglum fyrir sprautaða og ósprautaða?

Sprautaðir smitast og smita aðra, rétt eins og ósprautaðir.

Sprautaðir veikjast, rétt eins og ósprautaðir. Hversu mikið er háð mörgum þáttum. Sumir telja að sprauturnar dragi úr líkunum á alvarlegum veikindum og veiti að því leyti ákveðna vörn. Frábært fyrir sprautaða ef rétt er. Aldraðir og veikburða eru kannski betur staddir en ella með sprautur í handleggnum.

Eiga ósprautaðir að sæta sóttkví af því þeir smita meira en ósprautaðir? Slíkt er ekki stutt neinum rannsóknum.

Eiga ósprautaðir að sæta sóttkví af því þeir eru einkennalausir smitberar, ólíkt þeim sprautuðu? Slíkt er ekki stutt neinum rannsóknum.

Eiga ósprautaðir að sæta sóttkví sem eins konar refsing fyrir að láta ekki sprauta sig? Það finnst mér líklegt.

Eiga ósprautaðir að sæta sóttkví sem eins konar hvatning til að láta sprauta sig? Það finnst mér líklegt.

Eiga ósprautaðir að sæta sóttkví af því að ef þeir fengju að ganga lausum hala eins og ósprautaðir þá gæti það verið svekkjandi fyrir þá sem tóku áhættuna af sprautunum? Það finnst mér líklegt.

Sprauturnar koma ekki í veg fyrir smit, útbreiðslu eða veikindi en þær geta mögulega veitt þeim sprautuðu einhverja vernd gegn alvarlegum veikindum (eða leitt til grafalvarlegra aukaverkana, en það er önnur saga). Af því leiðir að þær eru persónubundnar sóttvarnir eins og lýsisnotkun og neysla fæðubótarefna, en ekki tól til að takast á við útbreiðslu veiru. Að ósprautaðir séu settir í sóttkví í 5 daga er því ekki liður í sóttvarnaraðgerðum heldur skilaboðasending yfirvalda til almúgans:

Fáðu sprautuna, annars!


mbl.is Fella niður kröfu um veirupróf við komuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sprautaðir geta smitast og smitað en þeir smitast síður. Vörn bóluefna gegn smiti virkar oftast. Skimun á bólusettum skilar fáum smituðum en skimun á óbólusettum skilar mörgum smituðum. Liður í því að gera ástandið sem eðlilegast er að skima ekki þá sem ólíklegastir eru til að vera smitaðir og skima þá sem eru líklegastir.

Reynslan á landamærunum hefur sýnt að hæsta hlutfall smitaðra eru óbólusettir. Þannig að til að ná stórum hluta smitaðra þarf ekki að skima aðra en óbólusetta.

Vagn (IP-tala skráð) 29.9.2021 kl. 10:12

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Nánast allir sem greinast smitaðir á landamærunum eru bólusettir:

https://www.covid.is/tolulegar-upplysingar

Þeir ættu því að fara í sóttkví til jafns við aðra, eða enginn.

Geir Ágústsson, 29.9.2021 kl. 10:59

3 identicon

Kannt þú að reikna hlutföll? Veist þú hvað hlutföll eru? Um þriðjungur þeirra sem greinast smitaðir á landamærunum eru óbólusettir og nánast allir sem fara um landamærin eru bólusettir. Ótrúlega margir þeirra örfáu óbólusettu, miðað við bólusetta, eru smitaðir. Óbólusettir ferðamenn eru fáir en eru samt nærri þriðjungur smitaðra.

Vagn (IP-tala skráð) 29.9.2021 kl. 12:37

4 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Vagn

Ertu með frekari upplýsingar um þessa staðhæfingu þína "Sprautaðir geta smitast og smitað en þeir smitast síður"

Hingað til hefur enginn einstaklingur myndað ónæmi gegn Covid einungis með því að láta sprauta sig. Ef þú veist um einhver þá væri það vel þegið af vísindasamfélaginu að fá þær upplýsingar frá þér.

Svo má benda þér á að þessi PSR próf hafa verið dæmd marklaus með öllu í nokkrum dómstólum í Evrópu og því meö öllu óvíst að neinn hafi verið smitaður á landamærum eða þá þeir sem sendir hafa verið í sóttkví.

Eggert Guðmundsson, 29.9.2021 kl. 13:02

5 identicon

Alveg rétt Vagn. Af þau sem greinst eru með covid á Íslandi eru ca. 50% ósprautaðir - og nærri 80% af fólkið eru sprautaðir.

Merry (IP-tala skráð) 29.9.2021 kl. 13:05

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Það blasir við að fjöldi smitbera er yfirgnæfandi sprautaður og því uppistaða smithættunnar. 

Geir Ágústsson, 29.9.2021 kl. 14:10

7 identicon

Liður í því að gera ástandið sem eðlilegast er að skima ekki þá sem ólíklegastir eru til að vera smitaðir og skima þá sem eru líklegastir. Sleppa því að skima þúsundir til að ná í tvo smitaða en skima tugi til að ná einum. Dregið umtalsvert úr óþægindum, veseni og kosnaði en samt verið að ná stórum hópi smitaðra.

Vagn (IP-tala skráð) 29.9.2021 kl. 15:33

8 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sprautan er fyrir löngu orðin kolsvartur brandari.

Gerir ekkert nema valda aukaverkunum.  Banvænum, meira að segja.  Og að er augljóst eins og sólin á himninum.

Veiran hinsvegar hætti að vera merkileg í fyrra.  Fyrir Jól.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.9.2021 kl. 16:02

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Geir.

Tókstu ekki rökfræði í Menntó??

Óþarfi að láta rafeind kenna sér undirstöður hennar.

Ertu annars búinn að gleyma því sem ég peistaði til þín um ástandið í Flórída, þar sem uppistaðan af þeim sem gistu neyðardeildir sjúkrahúsa voru óbólusettir, allt niður undir tvítugt??

Og að sú staðreynd hreyfði svo við heimskunni sem félagi Ásgrímur leggur lag sitt við, að óbólusettir flykktust í sprautu, og þá, ekki fyrr en þá, þá fór kúrfa smitaðra niður.

Hins vegar Geir ertu með pointið, eins og svo oft áður.

Ef landamæri eiga að vega örugg, þá dugar ekki að taka þann hóp sem er líklegri, ef hinn hópurinn, miklu fjölmennari ber líka með sér smit.

Þetta var ógæfan í sumar og líklegast hafa menn lítið lært af henni.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 29.9.2021 kl. 16:51

10 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Nýlega lést Bandarískur maður úr Covid, málið er að hann var fullbólusettur. Samkvæmt kenningunum hefði þessi ungi maður átt að koma betur út úr kóvitinu en raun ber vitni.

Tómas Ibsen Halldórsson, 29.9.2021 kl. 20:20

11 identicon

Í seinustu upptöku á covíðinu hér á íslandi þá fylgdust % fjöldra sprautaðra og ósprautaðra alveg í hendur þegar kom að % þeirra sem veiktust, við vorum með um 70-75% sprautu hlutfall og sama hlutfall var hjá þeim sem veiktust þ.e. um 70-75% voru sprautaðir, það kom einn dagur þar sem það kom upp smit í skóla þar sem að eðlilega voru alfarið ósmitaðir aðilar þar sem krakkarnir voru of ungir til að vera með sprautuna í handleggnum, þann dag komu mikið af stórum fréttum í fjölmiðlum um hvernig sprauturnar væri að virka frábærlega þar sem hlutfallið var 50% þann dag, daginn eftir var allt komið í sama horf prósentulega séð.

Sprauturnar virðast ekki koma að neinu leiti í veg fyrir smit, þær virðst þó milda áhrif veikindanna að einhverju leiti þó að um tíma þá var sama hlutfall þeirra sem voru lagðir inn vegna covid í kringum 70% sprautaðir og þeir sem voru á gjörgæslu voru einnig í kringum 70%.

Halldór (IP-tala skráð) 29.9.2021 kl. 22:02

12 identicon

Sæll Tómas, 
Margir trúa því, að þeim mun meira af bæði eiturefnum og aukaverkunum, þeim mun betur virkar þetta svokallaða bóluefni. Auk þess trú þessir læknar hér EKKI því sem að kemur frá öllum þessum fórnarlömbum þessara svokölluðu bólusetningar, heldur trúa þeir á að eitrið geti læknað fólk, og það sé lækning í þessum eiturefnum, og/eða þessi eiturefni geti allt að því "milda áhrif veikindanna að einhverju leiti", nú og það án þess að hafa eina einustu sönnun fyrir því.
KV.


Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.9.2021 kl. 23:45

13 identicon

Sæll Vagn,

Þeir eru EKKI að "..ná stórum hópi smitaðra..", heldur eru þetta allt saman falskar jákvæðar niðurstöður til þess eins þá að halda uppi farsóttarstiginu og hræðsluáróðri. Heilbrigðisstarfsfólk hefur verið í því að segja við heilbrigt fólk, að það sé veikt (eða smitað) með óáreiðalegum PCR skimunum. 
Ofan á allt þegar að dómstólar í Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Portúgal hafa allir úrskurðað þessar PCR skimanir séu alls EKKI við hæfi að nota til að greina covid-19, svo og hefur þetta PCR-drasl EKKI nein lagalegan og vísindalegan grundvöll til að byggja á varðandi allar þessar lokanir, samkomutakmarkanir o.s.frv. Þar sem að EKKI er til nein Gold Standard yfir þessar PCR skimanir eða PCR smitgreiningar. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) auk þess staðfest að þessi PCR skimanir eða PCR smitgreiningar séu gallaðar og ekki áreiðanlegar. En þetta er eitthvað sem að hann sóttkvíarþrjótur passar mjög vel uppá að minnast alls ekki á.     

Fyrir utan það þá eru þessi PCR próf sérstaklega keyrð hér á 40 snúningum og/eða keyrð yfir 35 snúninga hringrásar mögnunar þröskuldinn til þess eins að geta framkallað allt að því 97% falskar niðurstöður (Clinical Infectious Diseases ciaa 1491 (28. sept. 2020), https://doi.org/10.1093/cid/ciaa1491), eða svo þessir líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðar hér geta verið i því að öskra greint smit, greint smit og aftur greint smit. Hér hafa heilbrigðisyfirvöld verið í því að senda heilbrigt fólk í bæði sóttkví og einangrun samkvæmt óáreiðalegum PCR skimunum, sem eru reyndar þekktar fyrir falskar jákvæðar niðurstöður. Hér á landi þá hafa heilbrigðisyfirvöld passað mjög vel uppá það að gera EKKI eina einustu könnun varðandi allar þessar fölsku jákvæðu niðurstöður.
Aðalmálið var ekki bara að gera hann Kára og Íslenska erfðargreiningu/Amgen ennþá ríkari, heldur einnig til þess að koma inn þessum svokölluðu bólusetningum, sem að auk þess virka ekki neitt. Bólusettir halda áfram að smita bólusetta, og því er ekki til neitt sem heitir hjarðónæmi eftir allar þessar svokölluðu bólusetningar.
KV.




Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.9.2021 kl. 00:09

14 identicon

leiðr.
Þeir eru EKKI að "..ná stórum hópi smitaðra..", heldur eru þetta
næstum því allt saman falskar jákvæðar niðurstöður til þess eins þá að halda uppi farsóttarstiginu og hræðsluáróðri.
KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.9.2021 kl. 00:33

15 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.9.2021 kl. 00:42

16 Smámynd: Þröstur R.

Hef verið að velta svolitlu fyrir mér í sambandi við þetta allt... Og mikið allt er svona orðið nokkuð vel upplýst af minni hálfu allavega. Ég sendi tölvupóst á blóðbankann um daginn og spurði í mjög svo kurteisislegum pósti hvort það væri ástæða fyrir því að spyrja fólk áður en það gæfi blóð hvort það hefði fengið tilrauna lyfjagjöf gegn Covid? Og hvort það væri gert allavega random test á D-dimor á blóði. 

Allaveg eru þetta mínar hugleiðingar í dag - hef ekki fengið svar enn þá ef þá einhverntímann.

Er á því að þó Lyfjastofnun tali um ca 90% Íslendinga hafa fengið tilraunalyf gegn Covid þá tel ég þessa tölu miklu lægri en það er að sjálfsögðu bara mínar hugleiðingar.

Þröstur R., 30.9.2021 kl. 02:53

17 identicon

Sæll Þröstur,

Þetta innihaldsefni Graphene Oxið er eitt af þeim mörgu efnum í þessum svokölluðu bóluefnum,  sem að ég óttast mest varðandi aukaverkanir til langs tíma, svo og hvað varðar með að bólusettir gefi svona blóð með þessu innihaldsefnum.

Það á ALLS EKKI að koma í veg fyrir að heilbrigðisstarfsmenn séu sóttir til saka, heldur ætti að lögsækja allt þetta lið fyrir að segja EKKI satt um öryggi allra þessara svokölluðu  bóluefna, svo og þar sem að þetta lið er EKKI að upplýsa um öll innihaldsefni, áhættur, alvarlegar aukaverkanir o.s.frv.
Þetta heilbrigðisstarfsfólk er og hefur EKKI verið í því að veita upplýsingar um þessi svokölluðu bóluefnin, svo og þar sem að þetta heilbrigðisstarfsfólk er EKKI er leitað eftir upplýstu skriflegu samþykki frá fólki. 

KV.

Scanning & Transmission Electron Microscopy Reveals Graphene Oxide in CoV-19 Vaccines

Dr. Robert Young Finds Graphene Oxide in All Four Vaccines and Other Disturbing Ingredients

American Scientists Confirm Toxic Graphene Oxide, and More, in Covid Injections

VACCINE INGREDIENTS REVEALED

Self-Assembling Nanotech Found in Moderna Vaccine

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.9.2021 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband