Lamanir og allir rólegir

Fréttablaðið skrifar:

Lyfja­stofnun hefur borist ein til­kynning til við­bótar um tíma­bundna lömun eða skerta hreyfi­getu sem hugsan­lega auka­verkun við bólu­setningu gegn Co­vid-19, sam­kvæmt skrif­legu svari stofnunarinnar við fyrir­spurnum Frétta­blaðsins.

Er loksins einhver blaðamaður að vinna vinnuna sína? Lömun í kjölfar sprautu ætti að vera stórfrétt í hvert skipti og jafnvel senda sprautuherferðir í hlé á meðan öllum steinum er lyft. Svo er hins vegar ekki. Senda þarf sérstaka fyrirspurn og svarið sem kemur er að um tímabundna lömun sé að ræða. Er þar með sagt að 19 ára stúlka sem lamaðist fyrir neðan mitti í kjölfar sprautu sé búin að jafna sig? Kannski einhver kunnugur samfélagsmiðlinum TikTok geti athugað hvað stúlkan er að brasa um þessar mundir.

Enginn virðist svo ætla að reyna útskýra hvernig hinar og þessar sprautur geti valdið öllum þessum alvarlegu aukaverkunum. Hjartabilanir, margir mánuðir af tíðarblæðingum, lamanir á ýmsum stöðum, truflanir á sjón og ég veit ekki hvað. Grafa þarf djúpt til að finna einhverja sem reyna að útskýra allt þetta með hliðsjón af tækninni á bak við sprautuefnin, þar sem algeng skýring virðist vera að efnin í sprautunni, svokölluð brottprótein, fara, þvert á áætlanir, á flakk um líkamann frá sprautustað og valda allskyns usla. Ekki alltaf en stundum. Ég fullyrði ekkert um það en kann vel að meta allar tilraunar til að skýra hvað er í gangi.

Því ekki segja yfirvöld neitt, né málpípur þeirra hér og þar í samfélaginu.

Sprauta! Sprauta! Sprauta! 

Smit! Smit! Smit!

Hoppaðu á vagninn ella verður þér úthýst. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það er eitthvað mikið bogið við þá staðreynd að nærri allar þjóðir heims kappkosta að "bólusetja" alla, allir hvattir með ýmsum ráðum að fara í "bólusetningu". Þrátt fyrir allar þær alvarlegu aukaverkanir sem komið hafa í ljós, skal halda áfram að "bólusetja" og það að meira að segja börn einnig.

Það getur ekki farið framhjá neinum að eitthvað bogið er við þetta allt saman, samt halda yfirvöld áfram að berja hausnum við steininn og þrjóskast við.

Er þarna eitthvað að baki sem ekki má koma í ljós, enginn má vita um, einhver hvati til yfirvalda sem þrýstir á að þetta sé svona. Yfirvöld þjóðfélaga og heilbrigðisyfirvöld taka allsstaðar þátt í þessum hildarleik. Yfirvöld sem hafa neitað og ekki viljað vera með hafa fengið að kenna á því, sumir látist skyndilega öðrum ýtt úr embætti. Hvað er í gangi?????

Sumir hafa talað fjálglega um "New World Order" eins og Bush eldri gerði ítrekað. Er þetta hluti af því????? Eru öfl sem kaupa stjórnmálamenn og heilbrigðisyfirvöld og/eða beita þeim hótunum svo þeir þora ekki annað en að hlíða????????

En það sorglegasta er að meirihluti almennings kyngir öllu sem að þeim er rétt og trúa því sem þeim er boðað af yfirvöldum og fjölmiðlum. Það er eins og fólk hafi misst getuna til að hugsa gagnrýnið um hvað er á seiði og sér ekkert athugavert við þetta allt saman.

Guð gefi að þjóð okkar fari að vakna af þessum væra svefni sem þó er fullur af martröðum yfirvalda.

Tómas Ibsen Halldórsson, 25.8.2021 kl. 11:29

2 identicon

Sæll Geir, 
Takk fyrir að vekja máls á þessu, en eins og þú veist þá búum við Medical Fasisma hérna, þar sem að allt gengur út á það eitt að fela allar upplýsingar frá fólki. Passa er sérstaklega vel uppá það að sýna fólki EKKI fylgiseðla (e. vaccine package inserts) með bóluefninu áður, eða EKKI eins og þekkist víða erlendis varðandi innihaldsefni, áhættur og alvarlegar aukaverkanir. Passað er sérstaklega vel uppá það að leita EKKI eftir upplýstu samþykki frá viðkomandi. Fólk með undirliggjandi sjúkdóma er EKKI bent á að hafa samband við heimilislæki áður eða eitt eða neitt. Aðvaranir eru EKKI tilkynntar til almennings, eða EKKI eins og þekkist erlendis (sjá meðfylgjandi fyrir hér neðan). Þessir ritstýrðu og ríkisstyrku fjölmiðlar hér passa reyndar ennþá vel uppá að minnast EKKI á alvarlegar aukaverkanir og áhættur eftir þessar svokölluðu bólusetningar, heldur bara öskra alla daga smit, smit og aftur smit. Samkvæmt þá bæði óáreiðanlegum og ónákvæmum prófum, þar sem fyrirfram er vitað að ekki stendur til að gera ein einustu könnun á fölskum jákvæðum niðurstöðum hér á landi, eða þar sem allt er gert til þess eins að halda uppi farsóttarstiginu með hræðsluáróðri. Í þessu sambandi þá þekkist ekki nein rannsóknar blaðamennska hjá þessum líka ritstýrðu og ríkisstyrktu fjölmiðlum.
KV.



May be an image of one or more people and text that says '595.620 Covid Vaccine Reports toVAERS 13,068 DEATHS Through August 13, 2021 13,068 Deaths 54,142 Hospitalizations 72,699 Urgent Care 98,761 Office Visits 5,617 Anaphylaxis 4,681 Bells Palsy 1,607 Miscarriages 5,882 Heart Attacks 4,861 Myocarditis/Pericarditis 228, Permanently Disabled 2,738 Thrombocytopenia/low platelet 13,812 812 ife-Threatening 25,169 Severe Allergic Reactions 7,080 Shingles 54,142 HOSPITALIZATIONS 72,699 URGENT URGENTCAE CARE 98,761 OFFICE OFFCEVISITS VISITS'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.8.2021 kl. 13:03

3 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.8.2021 kl. 17:35

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hringdii í eina af skólasystur mínum en hún var lögð inn a spitala með mjög lík einkenni og ég þekki vegna annarar sem ég reyni að hughreista,síðan önnur með mjög hættulega fágæta en vel ekkta veiki. Steini kannski fá allir á sama tima einhverja undirliggjandi veiki þótt Kovid komi þar ekki nærri aðeins srauturnar

Helga Kristjánsdóttir, 25.8.2021 kl. 20:54

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Vantar þ í ekkta= Þekkta.

Helga Kristjánsdóttir, 25.8.2021 kl. 20:55

6 identicon

Sæl Helga,

Þú getur skoðað eitthvað af öllum þessum alvarlegu aukaverkunum eftir þessar svokölluðu bólusetningar er fólk hefur fengið hérna, eða:" ..about their possible side effects? Nú og kannski getur þú fundið eitthvað sem á við þessar alvarlegu aukaverkanir er skólasystur þín fékk, eða varðandi þessa með "hættulega fágæta en vel þekkta veiki".

KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.8.2021 kl. 00:40

7 identicon

"18 year old Camilla Canepa received the first dose on May 25. She checked into the emergency room on June 3, complaining of severe headaches and extreme light sensitivity. ACT scan and neurological tests found nothing, so doctors discharged her with an order to return in 15 days for further tests. But she returned to the ER just two days later, now suffering from paralysis.

Camilla was diagnosed with cavernous sinus thrombosis, meaning a blood clot in the space between the eye sockets and brain. It blocked the primary vein between the head and heart.

Doctors also discovered that she was bleeding inside her brain. She underwent two surgeries, one to remove the blood clot and the second to relieve pressure in her head caused by the bleeding. But the damage was too great to overcome.

Camilla passed away on June 10. Trust the $cience." 😭

H/T Darlene Bordwell

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.8.2021 kl. 09:34

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Þorsteinn,

Finndu nú fyrir mig alvöruþrungna rækilega vísindalega grein eða ritgerð sem segir frá þessum broddpróteinum þegar þau sleppa úr vöðvanum sem er ætlað að vera þeirra eini viðkomustaður í skrokknum.

Geir Ágústsson, 26.8.2021 kl. 13:22

9 identicon

Sæll Geir, 

Ég hef verið skoða ýmislegt í sambandi við þetta, og þá aðallega leynda og stórhættulega eiturefnið "Graphene Oxide" sem er reyndar falið og skráð undir öðrum nöfnum, eða sem bara "SM102" hjá Moderna svokallaða bóluefninu, nú og hjá Pfizer í Bretlandi þá er það skráð undir nafninu "ALC0305", nú og síðan er það skráð undir nöfnunum "ALC0159" og "BNT162b". Ég heyrði fyrst um þetta stórhættulega eiturefni frá henni Karen Kingston fyrrum starfsmanni hjá Pfizer á þessu myndbandi hérna: "...Dr. Jane Ruby, that video revealing that Graphene Oxide, a toxic poison was found in the Pfizer vaccines. Those researchers later found that the same applied to Moderna and Astrazeneca is being tested as a result of our reporting of the truth here."

Eftir að hafa horft á þetta myndband, þá ráðlegg ég fólki sem að hefur farið í þessa bólusetningu, að skoða blóðið í sér eftir bólusetningu, og ef mögulegt er að bera það saman við fyrir bólusetningu. 
Nú síðan hef ég verið að skoða ýmislegt í sambandi við "COVID bóluefni og ófrjósemi" bæði karla og kvenna, og/eða eins og minnst er á myndbandinu með bæði anti- hDG geninu og anti- gNOH geninu er veldur ófrjósemi. 

Hann Jóhannes Loftsson hefur hins vegar með fullt að tilvísunum í vísindarannsóknir um þetta sem þú ert að spyrja um í síðustu moggagrein sinni, svo og er hann með eitthvað af vísindagreinum um þetta á FaceBook síðu sinni.
KV.    

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.8.2021 kl. 19:16

10 identicon

May be an image of text

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.8.2021 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband