Mánudagur, 19. júlí 2021
Engin leið að vita neitt og verðum bara að sjá til
Blaðamaður spyr sóttvarnarlækni: Hversu margt fólk þarf að veikjast alvarlega svo hægt sé að réttlæta aðgerðir innanlands?
Ekki-svarið sem hann fær: Það er engin ákveðin tala sem segir okkur það. Við verðum bara að meta þróunina í þessu hverju sinni. Þetta er það sem við erum að reyna að fylgjast með í samstarfi við Landspítalann.
Úff.
Kannski vantar sóttvarnarlækni bara innblástur að utan. Í Danmörku segir læknir að á meðan ekki greinist fleiri en 1000 smit á sólarhring þá sé rými fyrir frekari tilslakanir. Það svarar til um 63 smita á sólarhring miðað við íslenska höfðatölu. Læknirinn segir:
Smitten er fortsat i den høje ende, men betydningen for hospitalsvæsenet er meget lav. Så alt i alt kører det stille og roligt.
Þetta er það sem kallast yfirvegun.
Læknirinn bendir á að það sé aðallega ungt fólk að smitast og að það jafni sig fljótt. Komi það á spítalann stoppar það stutt við.
Á Íslandi er ekkert viðmið annað en að dag einn vaknar sóttvarnarlæknir áhyggjufullur og þurrkar verzlunarmannahelgina af dagatalinu. Og lýsir yfir nýrri bylgju.
Aðgerðir innanlands ekki útilokaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
„Það að bólusetningin sé með 90% virkni gegn alvarlegu smiti segir okkur að langstærstur hluti þeirra sem smitast eru með væg einkenni. En þetta gæti auðvitað breyst, við vitum til dæmis ekkert hvað gerist ef að smit fer að berast inn í viðkvæma hópa,“
Var ekki búið að bólusetja viðkvæmu hópana?
Þorsteinn Siglaugsson, 19.7.2021 kl. 18:25
Það er með ólíkindum hvað þessi maður, og þau sem stýra þessum aðgerðum hér á landi komast upp með segja ósannindi og svara (ekki) eins og hann gerir þarna.
Ég hef sagt það áður og segi aftur, rannsóknarblaðamennskan er dauð hér á landi.
Kristín Inga Þormar, 19.7.2021 kl. 19:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.