Sunnudagur, 4. júlí 2021
Aldrei ađ sóa góđu neyđarástandi
Yfirvöld nota gjarnan neyđarástand til ađ auka völd sín og umsvif varanlega. Ţađ má vel vera ađ hin varanlegu völd og umsvif séu minni en á hátindi neyđarástandsins en yfirleitt meiri en áđur en neyđarástandiđ skall á.
Á Spáni er nú veriđ ađ leggja til löggjöf sem er ţađ lođin í orđalagi og erfitt ađ túlka ađ í raun ţýđir hún ađ yfirvöld hafi breytt tímabundnum ráđstöfunum í neyđarástandi (veira!) í eitthvađ sem mćtti alveg kalla fasisma. Auglýst er eftir fínna og nútímalegra orđi en ađ inntaki er fasismi, skv. orđabókarskilgreiningu, alveg ágćt lýsing.
Á Íslandi hafa svipađar ţreifingar átt sér stađ.
Í Danmörku er virk stjórnarandstađa svo kannski lífiđ komist í gamlar og góđar skorđur fljótlega, en sjáum hvađ setur.
Neyđarástandiđ gengur kannski yfir en í millitíđinni er búiđ ađ tryggja ađ völd og umsvif hins opinbera verđa ađeins meiri en áđur. Svona á á ađ sjóđa frosk. Og gengur bara vel.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:50 | Facebook
Athugasemdir
Eina von okkar er ađ nćst taki vinstristjórn viđ, helst međ Fjögurra blađa Smárann innanborđs. Kannski tekst ţá einhverjum ađ sparka í Sjálfstćđisflokkinn svo hann kippist í ţađ minnsta viđ.
Ţorsteinn Siglaugsson, 4.7.2021 kl. 21:18
Ţađ mćtti eins segja ađ ef völdin sem ţjóđfélagiđ veitir ríkinu nćgi ekki til ađ afstýra neyđarástandi ţá séu völd ríkisins ófullnćgjandi, vilji ţjóđfélagiđ afstýra neyđarástandi. Og skapist neyđarástand vegna ófullnćgjandi valda stjórnvalda verđur ţjóđfélagiđ ađ sjá til ţess ađ ţađ gerist ekki aftur eđa sćtta sig viđ ađ neyđarástand skapist aftur og aftur og aftur.
Vagn (IP-tala skráđ) 4.7.2021 kl. 22:26
Ţetta minnir mig á svolítil skrif frá 1932:
The Fascist conception of the State is all embracing; outside of it no human or spiritual values can exist, much less have value. Thus understood, Fascism, is totalitarian, and the Fascist State — a synthesis and a unit inclusive of all values — interprets, develops, and potentates the whole life of a people.
Geir Ágústsson, 5.7.2021 kl. 10:04
Á Íslandi er búiđ ađ afnema allar sóttvarnareglur innanlands.
Guđmundur Ásgeirsson, 5.7.2021 kl. 15:39
Guđmundur,
Fyrir ári síđan var nánast ţađ sama uppi á tengingnum. Ađ vísu fjöldatakmarkanir en bara einföld skimun viđ landamćrin. Síđan var öllu snúiđ á haus korter í Ţjóđhátíđ í Eyjum. Sjáum hvađ setur. Nú eru yfirvöld víđa byrjuđ ađ tala niđur vörn bóluefnanna og ţrástaglast á delta-afbrigđum (sem smita meira en veikja minna, ađ ţví er manni sýnist á gögnum um spítalainnlagnir). Ekki er öll nótt úti enn. Ekki er langt síđan menn gerđu tilraunir til ađ lauma allskyns valdheimildum inn í uppfćrđ sóttvarnarlög, og sennilega tókst ţađ ađ einhverju leyti.
Geir Ágústsson, 5.7.2021 kl. 15:53
Ţađ tókst ađ lauma inn heimild til ađ kveđa á um skyldudvöl í sóttvarnarhúsi í vissum tilvikum, en sem betur fer fáu öđru frásagnarverđu.
Grímuskylda var til dćmis ekki ţar á međal.
Guđmundur Ásgeirsson, 5.7.2021 kl. 15:56
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.