Föstudagur, 4. júní 2021
Hvað með kjarnorkuvopn, pandabirni og skógrækt?
Nýr fríverslunarsamningur Íslendinga og Breta er í höfn og tekur hann til allra þátta viðskipta milli ríkjanna. Ásamt því að veita Íslendingum mikilvægan aðgang að breskum mörkuðum, og öfugt, þá er að finna í samningi ríkjanna umfangsmiklar skuldbindingar á sviði loftslagsmála, sjálfbærni og jafnréttismála.
En bíddu nú við, hvað með kjarnorkuvopn? Vantar ekki eitthvað um kjarnorkulaust Bretland? Og pandabirnir eru í útrýmingarhættu - gleymdist að skrifa þá inn í fríverslunarsamninginn? Síðan virðist ekki standa neitt um skógrækt. Er hún ekki mikilvæg?
Hvað um það. Á meðan tollar eru lágir og tæknilegar viðskiptahindranir í lágmarki þá gerir ekkert til að bæta við allskonar dygðarflögun í viðhengi.
Sögulegur samningur Íslands og Bretlands í höfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Vel mælt, Geir. Gott að fá samninginn um frjálsa verslun, en það er allt annað en loftslagskvótar eða valdefling kvenna.
Ívar Pálsson, 4.6.2021 kl. 13:02
Hvað fáum við svo með því að tilkynna okkur svona úrkynjuð?
Ásgrímur Hartmannsson, 4.6.2021 kl. 13:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.