Rými fyrir 23% skattalækkun

Nú geta ein­stak­ling­ar séð í hvað skatt­ur­inn, sem er lagður á tekj­ur þeirra, fer. Þess­ar upp­lýs­ing­ar eru sett­ar fram á mynd­ræn­an hátt á nýj­um og breytt­um álagn­ing­ar­seðlum ein­stak­linga sem eru aðgengi­leg­ir á vef skatts­ins. Eftirfarandi sýnidæmi er svo gefið:

skat

Samkvæmt sýnidæminu fer skatturinn í eftirfarandi:

  • Allkyns málaflokkar sem er sennilega ágæt samstaða um að hið opinbera komi að með einum eða öðrum hætti þótt menn deili um útfærslur, upphæðir og fyrirkomulag: 77,1%
  • Önnur málefnasvið: 22,9%

Það væri því kannski hægt að draga þá ályktun að skatta megi lækka um 22,9% enda finnst mér lítið sem ekkert vanta upp á upptalninguna á því sem hirðir 77,1% skattsins. Eða hvað er undir öðrum málefnasviðum? Af hverju er næstum því fjórðungur skattheimtunnar ekki sundurliðaður betur en þetta?

Nokkur handahófskennd atriði úr fjárlögum ársins 2021 geta kannski varpað ljósi á það:

skatlandb

skatfjol

skatjafn

skatlist

Kannski það sé bara hið besta mál upp á geðheilsuna að hrúga allmörgum málaflokkum saman undir ósundurliðaðan málefnaflokk sem hefur að geyma ýmis gæluverkefni sem enginn vill sjá á álagningarseðli sínum.


mbl.is Getur nú séð í hvað skatturinn fer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

 Þetta er liðurinn "ríkið ætti að koma að þessu."  Fólk er mjög hrifið af eim lið, af því að það er vitlaust.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.5.2021 kl. 09:21

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Það er ansi sérstakt að sundurliða ekki tæpan fjórðung úr því menn voru farnir af stað. Þetta svarar til þess að þú fáir kassakvittun með eftirfarandi liðum:

    • Mjólkurvörur 20%

    • Kjötvörur 30%

    • Snyrtivörur og hreinsiefni: 10%

    • Ávextir, grænmeti: 10%

    • Gos og nammi: 10%

    • Allskonar annað: 20%

    Maður yrði fljótur að véfengja slíka kvittun.

    Geir Ágústsson, 29.5.2021 kl. 14:14

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband