Hvað á að leyfa umræðu um næst?

Facebook hefur snúið við stefnu sinni að banna færslur sem benda til þess að heimsfaraldurinn sem stafar af Covid-19 hafi verið af mannavöldum í ljósi vaxandi ágreinings um uppruna veirunnar.

Frábært, en hvað ætli verði leyft næst?

Að hafa sínar efasemdir um virkni, öryggi og ágæti hinna glænýju efnakokkteila sem á núna að sprauta í börn sem eru í engri hættu af veiru og hafa nú þegar kostað bæði heilsu og líf einstaklinga sem voru ekki í neinni sérstakri hættu af veiru?

Að hafa sínar efasemdir um heilindi samtaka eins og WHO?

Að ræða niðurfellingu neyðarleyfa (skilyrtra markaðsleyfa) lyfjafyrirtækjanna nú þegar er búið að sprauta alla aldraða og viðkvæma því meðferðir finnast í raun og veru? Fyrir þá sem ekki vita eru skilyrt markaðsleyfi lyfjafyrirtækjanna gefin út á þeirri forsenduenginn valkostur finnist við bóluefnin svokölluðu.

Að skola upp á yfirborðið öllum þeim aukaverkunum og dauðsföllum sem hafa hlotist af notkun efnakokkteilanna á neyðarleyfunum? Að velta því fyrir sér hvort lækningin sé ekki verri en sjúkdómurinn?

Hvað má ræða næst án þess að tæknirisarnir klístri einhverjum fyrirvörum á færslur og innlegg eða hreinlega banni, loki og hendi fólki út? Því hér blasir jú við að "samsæriskenningin" líkist sannleikanum mun meira en stefna Facebook og að það gæti alveg eins átt við um fleiri hluti.

Ég bíð spenntur.


mbl.is Leyfa færslur um að Covid-19 hafi verið manngerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hvað gerðum fyrir tíma netsins?

Í upphafi var vatnið og vatnið var hjá Gyðjunni og vatnið var hún. Og orðið var vatn því allt þarf vatn til að geta orðið. Gyðjan var til í öllum trúarbrögðum heimsins, meira að segja í kristninni í formi Maríu þar til henni var úthýst eftir að Martin Lúther negld yfirlýsingu á kirkjudyr. En jafnvel þá fann hún sér farveg,

því vatnið finnur sér alltaf leið

Grímur Kjartansson, 29.5.2021 kl. 15:40

2 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Ég nýt þess að lesa þvæluna sem þú skrifar ! 

Þórhallur Pálsson, 30.5.2021 kl. 09:59

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Þórhallur,

Ánægður að sjá að þú nýtur aðgengis að skoðunum sem þú kallar "þvælu". Óska öllum sama valfrelsis og notalegheita.

Geir Ágústsson, 30.5.2021 kl. 16:02

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þakka góðan pistil. Því miður eru hinir leiðitömu og auðveldlega afvegaleiddu, hugsanalausu Þórhallar margir, en þeir, alveg eins og ég og þú, mega enn hafa sína skoðun. Fyrir það ber að þakka, meðan á stendur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 31.5.2021 kl. 03:17

5 identicon

Sæll Geir,

Já, þetta er ekki nóg gott hjá Facebook, en hérna á MBL blog.is eru þeir líka í því að loka á fólk sem er með vissar skoðanir varðandi bólusetningar, nú og síðan taka þeir niður blog hjá fólki, þar sem að þeim líkar ekki við það sem að viðkomandi er að segja, svo og lokaði þetta sama MBL- lið fyrir allar athugasemdir frá mér í þessu nýja Veriate athugasemdarkerfi varðandi  bólusetningar. En í þessu nýja Veriate athugasemdarkerfi við fréttir, get ég núna bara merkt við þessar örvar þeas. þá upp og niður við "Háttvís" "Gagnlegt" og "Meira svona". En er ég spurði hann Árna, hvers vegna er þetta svona gagnvart mér? Þá fékk ég þau svör "Við þurfum ekki að svara þér hvers vegna" nú og síðan er manni svarað með svona neikvæðum tónn "Vertu blessaður, vertu blessaður vertu blessaður", þannig afgreiðir Árni menn hérna á blog.is.
KV.  


KV.