Þegar samsæriskenning verður sannleikurinn

Stundum eru svokallaðar samsæriskenningar trúverðugri en hið yfirlýsta meginstef sem allir eiga að trúa. Ein svokölluð samsæriskenning gengur út á að SARS-CoV-2 veiran hafi verið búin til á rannsóknarstofu. Þetta blésu margir á og gera enn. En svo eru aðrir á þeirri skoðun að það sé mjög líklegt, meðal annars Dr. Fauci. Hefur verið á það bent að Dr. Fauci hafi hér snúist eins og vindhani í afstöðu sinni eftir að hafa eytt töluverðu púðri í að þagga niður í þeim sem töldu líklegt að veiran kæmi upprunalega úr tilraunastofu.

Er það þá samsæriskenning að halda því fram að WHO, kínversk stjórnvöld, lyfjafyrirtækin og ýmis stórfyrirtæki séu að reyna að hagnast eða eflast á ástandinu? Lyfjafyrirtækin afneita eigin lyfjum um leið og þau detta úr einkaleyfi og halda á lofti bóluefnum sínum í staðinn. Milljarðamæringar sem eiga hlutabréf í sömu lyfjafyrirtækjum fjármagna alþjóðastofnanir sem yfirvöld víða um heim hlusta á og treysta og almenningur telur vera trúðverðugar. Yfirvöld eru svo búin að þenja út völd sín í öllu ástandinu og víða mjög hikandi að draga úr þeim aftur. 

Samsæriskenningarnar eru farnar að hljóma mun trúverðugri en sú barnalega trú að svolítil veira hafi farið á stjá en ekki hafa áhyggjur! Með því að rústa hagkerfinu, fleygja krökkum úr skóla og drepa félagslíf þeirra, fresta krabbameinsskimunum, einangra gamalt fólk svo mánuðum skiptir, safna svimandi skuldum og forðast með öllum ráðum hin hræðilegu smit þá verður allt gott á ný! Engin hagsmunagæsla hér!


mbl.is Kom kórónuveiran af rannsóknarstofu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Geir, 

Þú getur alls ekki reiknað með því að þessir ritstýrðu- og ríkisstyrktu fjölmiðlar hér á landi fari núna í dag að rannsaka eitthvað samsæri og/eða spillingu hér á landi. Heilbrigðisyfirvöld hér eru og hafa verið í því styðjast við þessi óáreiðanlegu- og ónákvæmu PCR-test til þess eins að halda uppi þessari svokallaðri farsótt. Það eru heilbrigðisyfirvöld hér sem að hafa daglega verið í því að segja við heilbrigt fólk aftur og aftur, að það sé veikt, svo og til að koma inn þessum bólusetningum. Við höfum frétt af þessum sömu lyga -og áróðursaðferðum til reyna þannig að koma inn bólusetningum, m.a. frá núna síðast Indlandi(180 deaths following vaccination reported in India). Þessari svokallaðri farsótt er og hefur verið haldið uppi með öllum þessum líka False jákvæðu tilfellum. Nú og því verður ekki gerð ein einasta könnun hér á landi til sjá hvað mikið af þessum tilfellum séu False jákvæð tilfelli, því að aðalatrið er og hefur verið að troða inn bólusetningum, svo og þegja algjörlega yfir öllum þessum núna 1347 tilkynningum, og þar með talið 89 alvarlegum aukaverkunum og 16 dauðsföllum eftir bólusetningar hér á landi(lyfjastofnun.is).
KV.
 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.5.2021 kl. 12:35

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þarf ekki einu sinni að hafa verið samsæri. Veiran gæti allt eins hafa sloppið út af rannsóknarstofunni fyrir slysni.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.5.2021 kl. 12:51

3 identicon



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.5.2021 kl. 14:26

4 identicon

May be an image of ‎text that says '‎09:11 ××ו© US DATA UK, EU COVID-19 VACCINE DAMAGE OVER 2.2 MILLION VACCINE INJURIES So FAR REGION UK Fatalities 12th May 2021 EU Fatalities 22nd May 2021 US Fatalities 7th May 2021 TOTAL FATALITIES UK Injuries 12th May 2021 EU Injuries 22nd May 2021 US Injuries May 2021 TOTAL INJURIES TOTAL REPORTED 1,180 12,274 4,057 17,511 822,845 1,196,170 229,270 2,248,285 STUDIES SHOW THAT ON THE US VAERS SYSTEM ONLY 1% OF ADVERSE REACTIONS ARE ACTUALLY REPORTED COVID VACCINES ARE LICENSED UNDER EMERGENCY USE ONLY COVID VACCINES ARE STILL IN PHASE TRIALS UNTIL 2023 LONG TERM EFFECTS ARE UNKNOWN‎'‎

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 26.5.2021 kl. 16:40

5 Smámynd: Hörður Þórðarson

Ég held að Guðmundur hafi hitt naglann á höfuðið. Ekkert samsæri, heldur slys. 

Það ætti að banna öll lífræn efnavopn og rannsóknir á þeim, enda getur slík starfsemi verið mjög hættuleg.

Það má líka benda á að þegar Kínverjar voru farnir að banna ferðalög innanlands til að halda aftur af veirunni leifðu þeir samt fólki að fljúga til annarra landa og dreifa þar veirunni. Þetta er ekki kenning, þetta er staðreynd og ef þetta var ekki árás á önnur lönd með lífrænum efnavopnum, þá veit ég ekki hvað á að kalla það. 

"There is new evidence to show that China locked down all domestic traffic internally by end January 2020 but pushed to open foreign travel till end March. Data from Tom Tom traffic index, a traffic location site that covers 416 cities across 57 countries show that as a result of this strategy, China, intentionally or otherwise, was able to lockdown its cities unknown to the world. While this reduced the spread of the Corona virus within China, China’s aggressive foreign travel policy lead to a virus explosion worldwide. Here is the chronological events of what happened with the requisite traffic data from 10 major cities globally and the statements from Chinese leaders that will help readers reach their own conclusions."

https://economictimes.indiatimes.com/blogs/Whathappensif/how-china-locked-down-internally-for-covid-19-but-pushed-foreign-travel/

Hörður Þórðarson, 26.5.2021 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband