Miðvikudagur, 19. maí 2021
Hvað með milljónirnar sjötíu?
Sigurður Guðjón Gíslason, einn landeigenda að Hrauni, staðfestir í samtali við mbl.is að gjaldskylda verði á bílastæði við gönguleiðina að eldgosinu.
Það er komið að því að það þurfi að fara í talsverða uppbyggingu á svæðinu þannig það er óumflýjanlegt fyrir landeigendur að fara út í þetta, segir Sigurður.
Gott mál. Aðstaða kostar fé og betri er göngustígur í gegnum náttúru en tröðkuð náttúra án stígs. Þetta vita allir sem hafa skoðað Skógafoss, Gullfoss, Kerið, Geysi og aðrar náttúruperlur.
En hvað þá með milljónirnar sjötíu sem einhver ráðherrann var búinn að lofa að skattgreiðendur reiddu fram? Má þá ekki hætta við þær og leyfa landeigendum að sjá um land sitt með gjaldtöku á þá sem vilja njóta þess sem landið hefur upp á að bjóða?
Ríkissjóður er galtómur, fólk á ekki að borga fyrir afþreyingu annarra og landeigendur eru fullfærir um að passa land sitt á eigin ábyrgð og eigin kostnað.
Segir gjaldskylduna óumflýjanlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Facebook
Athugasemdir
Skógafoss
Björn S. Stefánsson (IP-tala skráð) 19.5.2021 kl. 11:29
Leiðrétt, takk!
Geir Ágústsson, 19.5.2021 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.