Miðvikudagur, 21. apríl 2021
Loksins! Loksins! Eða hvað?
Árið er 2020 og það er sumar. Þríeyki fá fálkaorðu, landamæri opnast 14. júní og júlíveðrið er gott. Íslendingar ferðast innanlands og bjartsýni ríkir. Í Vestmannaeyjum undirbúa menn Þjóðhátið. Þetta er búið!
En hvað gerist þá? Franska afbrigðið kemur til landsins! Smitum fjölgar úr nánast engu í eitthvað smá.
2. bylgja! Franska afbrigðið! Öllu er skellt í lás á ný, grímuskylda Kínverjanna dregin upp úr hattinum, Þjóðhátíð blásin af og framundan er mikil fjölgun smita sem mótefnalaus þjóðin hefur engan hemil á og veiran nær því að lokum inn á ganga Landakots (Landakotsklúðrið) og fólk týnir lífi (en hvorki fyrr né síðar).
Síðan þá er liðinn langur tími, vægast sagt, og nú í lok apríl 2021 er loksins lögð fram áætlun eftir mikinn þrýsting frá bæði þeim örfáu þingmönnum sem þora að tjá sig og fjölda annarra aðila svo vikum skiptir.
En trúir því einhver að bólusetningar muni leiða til þess að Þjóðhátíð 2021 verði haldin? Að menn hætti að einblína á smit (unga fólksins)?
Nei, smit verða áfram miðpunktur athyglinnar, óháð því hver er smitaður og hver er bólusettur.
Ég veðja á að Þjóðhátíð 2021 verði blásin af þegar 6. eða 7. svokallaða bylgjan skellur á í lok júlí. Déjà vu.
Öllu aflétt innanlands fyrir 1. júlí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:51 | Facebook
Athugasemdir
Hver væru áhrifin ef svifrykstölur væru birtar á forsíðum blaða hvern dag? Umhverfissérfræðingur væri gerður að einvaldi sem gæti fyrirskipað lokanir, Landspítalinn settur á viðvörunarstig vegna öndunarfærasjukdóma.
Hræðsla er öflugt vopn.
Kalli (IP-tala skráð) 21.4.2021 kl. 08:08
Kalli,
Þetta er frábær punktur. Margir hafa einmitt talað um batnandi loftgæði þegar fólk var hvað mest heima hjá sér (af ótta eða í stofufangelsi). Svifryk "yfir viðmiðunarmörkum" notað sem réttlæting fyrir lokun vega. Krakkar látnir kynna sér í þaula hættur þess að hjóla meðfram umferðargötum - vegna svifryks. Fjöldi sjúklinga með lungnavandræði af sérhverju tagi birtar daglega og "svifryksaðgerðir" réttlætar út frá fjölda "útsettra".
En já, yfirvöld eru fljót að læra á ný úrræði. Þetta verður spennandi.
Geir Ágústsson, 21.4.2021 kl. 08:20
Svartsýni er þetta þegar sól hækkar á lofti. Rétt að vona að fái að spila golfið í friði næstu vikur. Gæti ekki alveg eins verið að þeir fækki snúningum í 25 (úr 37+) og allt í einu finnst enginn?
Rúnar Már Bragason, 21.4.2021 kl. 14:44
"En trúir því einhver að bólusetningar muni leiða til þess að Þjóðhátíð 2021 verði haldin?"
NEI, þar sem að menn verða þá búnir að átta sig því, að allt þetta bóluefnaeitur virkar ekki neitt gegn Covid-19.
"OC Man Tests Positive For COVID-19 Weeks After Getting Second Vaccine Dose"
"Four people in Oregon who received both doses of vaccine test positive for coronavirus"
"ER nurse tests positive for COVID-19 eight days after receiving vaccine"
"Thousands of Israelis Tested Positive for Coronavirus After First Vaccine Shot"
"Ex-chief rabbi tests positive for coronavirus, days after getting 2nd vaccine dose"
"San Diego County Reports 1st Case of Fully Vaccinated Person Getting COVID-19"
"Over 12,000 People Test Positive for COVID-19 in Israel after Receiving Pfizer Vaccine"
"Hátt í sex þúsund fullbólusettir smitast af COVID-19"
"San Diego County Reports 1st Case of Fully Vaccinated Person Getting COVID-19"
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.4.2021 kl. 16:49
Þeir bólusettu eru nú þegar byrjaðir að kenna þeim óbólusettu um hafa smitað þá bólusettu, eða þar sem að þessi bólusetning gegn Covid-19 virkar alls ekki neitt gegn Covid-19.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.4.2021 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.