Föstudagur, 22. janúar 2021
Aðgerðir og árangur
Berum að gamni saman nágrannaríki og aðgerðir.
Svíþjóð: Engin grímuskylda (nema á álagstíma í opinberum samgöngum), eiginlega allt opið nema skemmtigarðar, opinberar sundlaugar og skólar yfirleitt fyrir 16 ára og eldri, þú getur farið í ræktina og í klippingu og út að borða (í litlum hópum, og skrúfað fyrir áfengið kl. 20), og mér sýnist fólk geta gert 75% af því sem venjulegt fólk gerir á venjulegum tímum.
Danmörk: Allt lokað nema stórmarkaðir og apótek og hefur verið síðan fyrir jól, ekki hægt að fara á bókasafn, í ræktina, í klippingu eða út að borða (hægt að kaupa áfengi í búð til kl. 22 á kvöldin), grímuskylda innandyra á stöðum opnum almenningi, engar íþróttaæfingar og allir skólar lokaðir, alveg niður í 1. bekk.
Svipað loftslag í Danmörku og Suður-Svíþjóð, svipað fólk, ólíkar aðgerðir.
Maður spyr sig: Eru harðar sóttvarnaraðgerðir að skila einhverju?
Nei, segja rannsóknir. Allt umfram einhver fjarlægðarmörk og bann á stórum hópum virðist vera tilgangslaus skemmdarverkastarfsemi á samfélaginu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:07 | Facebook
Athugasemdir
Sæll Geir,
Þessar sóttvarnaaðgerðir eru EKKI að skila neinum árangri. Nú og þessi vitleysa hjá heilbrigðisyfirvöldum hér með þvinga allt fólk er kemur til landsins í þessar líka óáreiðanlegu skimanir er ein vitleysan í viðbót (False Positives in PCR Tests for COVID-19 - ICD10monitor). Eftir að fólk hefur farið í þessar óáreiðanlegur skimarnir, þá er sagt við heilbrigt fólki hérna, að það sé sjúkt/veikt af covid. Nú og síðan er þessu heilbrigða fólki sagt að fara strax í einangrun og halda sér í burtu frá öllu fólki, rétt eins og False jákvæð tilfelli komi bara alls ekki til greina.
KV.
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.1.2021 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.