Samanburður á eplum og appelsínum

Ég ætla að benda á svolítinn samanburð á eplum á appelsínum. Á einum stað stendur:

COVID-19: There have been approximately 648,966 deaths reported worldwide. In the U.S, 146,935 people have died of COVID-19, as of July 27, 2020.*

Flu: The World Health Organization estimates that 290,000 to 650,000 people die of flu-related causes every year worldwide.

Við þennan samanburð má bæta:

COVID-19: Hagkerfum lokað. Fólk einangrað. Tölfræði milli ríkja ósamanburðarhæf og jafnvel villandi í sumum, þá yfirleitt ýkt frekar en hitt (af ýmsum ástæðum). Atvinnuleysi. Örvænting. Fjölgun dauðsfalla vegna sjálfsmorða og örvæntingar. Grímur. Spritt. Samkomubann. Heilbrigðiskerfið eflt til að takast á við veiru. 

Flu: Engin einangrun. Smit berast greitt. Eingöngu veikt fólk sem leggst í rúmið. Ekkert víst að öll tilvik séu skráð sérstaklega sem dauðsföll vegna veiru og því frekar í lægri kantinu frekar en hitt. Engar grímur eða spritt. Samkomur fara fram. Heilbrigðiskerfið keyrir eins og venjulega.

Samanburður á eplum og appelsínum á ekki alltaf rétt á sér, en getur engu að síður vakið til umhugsunar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

15.5.2020:

"The mortality rate for the flu is believed to be around 0.1%."

"The U.S. mortality rate for COVID-19 at this time is approximately 6.0%, based on CDC number of reported deaths divided by reported cases as of May 14, 2020."

"There is no vaccine for COVID-19."

"COVID-19 seems to be more contagious."

"
Unlike the influenza A and influenza B viruses responsible for annual seasonal flu epidemics, the virus that causes COVID-19 has never been encountered by the human body."

Comparing COVID-19 with the flu: More differences than similarities - Health Metrics

Þorsteinn Briem, 28.7.2020 kl. 00:37

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Já, það eru margar leiðir til að bera saman epli og appelsínur. En þú trúir því varla sjálfur að COVID-19 sé með 6% dánartíðni, eða hvað?

Geir Ágústsson, 28.7.2020 kl. 00:47

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Öfgahægrikarlarnir þykjast alltaf vita betur en vísindamenn. cool

Þorsteinn Briem, 28.7.2020 kl. 03:02

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Geir Ágústsson er frjálshyggjumaður sem vill stjórna Klakanum frá Danmörku en Ómar Geirsson íhaldsmaður og einangrunarsinni sem vill stjórna landinu frá krummaskuði á Austfjörðum. cool

Margir þeirra sem voru íhaldssamastir og lengst til hægri í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum kjósa nú Miðflokkinn, sem er flokkur mörlenskra "hillbillies".

Stofnaðir voru frjálslyndi flokkurinn Viðreisn, sem er hægrisinnaður flokkur, og Miðflokkurinn, sem er íhaldssamastur og lengst til hægri af þeim flokkum sem sæti eiga á Alþingi.

Og þar vilja engir aðrir mynda ríkisstjórn með Miðflokknum, ekki einu sinni Flokkur fólksins. cool

Þorsteinn Briem, 7.4.2014:

Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt frá árinu 1929 fyrst og fremst verið kosningabandalag frjálslyndra og íhaldsmanna.

Fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn aðhyllist frjálslyndi, frjálshyggju eða íhaldsstefnu.

Meira kraðak er nú varla til í einum stjórnmálaflokki og samstaðan oft lítil, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn margsinnis klofnað og brot úr flokknum myndað ríkisstjórn með öðrum stjórnmálaflokkum. cool

Þorsteinn Briem, 28.7.2020 kl. 03:27

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Þorsteinn,

Ég vil engum stjórna. Sérstaklega ekki með hræðsluáróðri. Sem dæmi má nefna að Ítalir voru alveg einstaklega illa undirbúnir, en að auki að eldra fólk tók á sig meginþungann. Og síðan í mars-apríl er búið að finna ýmis úrræði til að bjarga þeim veikustu sem veikjast. Þessi 30% tala þín hefur því ekkert erindi lengur nema sem hræðsluáróður sem þú vilt nota til að stjórna öllum í fang ríkisvaldsins.

"The spread of coronavirus (COVID-19) in Italy has hit mostly people over 50 years of age. Also, the virus claimed approximately 35 thousand lives since it entered the country between the end of January and the beginning of February 2020. As the chart shows, mortality rate appeared to be higher for the elderly patient. In fact, for people between 80 and 89 years of age, the fatality rate was 33.4 percent. For patients older than 90 years this figure was 32.2 percent. Overall, the mortality rate of coronavirus in Italy reached 14 percent, higher than that registered in other countries."
https://www.statista.com/statistics/1106372/coronavirus-death-rate-by-age-group-italy/

Geir Ágústsson, 28.7.2020 kl. 08:36

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Mér finnst það einhvernveginn svo sjálfsagt að ef maður veit að gögnin sem maður hefur eru röng, hafi það áhrif á hvernig maður metur þau. Kjánar geta auðvitað brugðist við efasemdum með heimskulegum ad hominem röksemdum ("öfgahægrikarlar"), en skynsamt fólk reynir að leggja skynsamlegt mat á hlutina.

Við vitum að sá fjöldi sjúkdómstilfella sem talað er um varðandi kórónaveiruna er aðeins sá fjöldi sem greindur hefur verið með sjúkdóminn.

En við vitum að í flestum löndum er nánast einungis verið að greina fólk sem þegar sýnir einkenni, og að stór hluti þeirra sem smitast sýnir aldrei nein einkenni.

Við vitum líka að þær rannsóknir sem hafa verið gerðar benda til að raunverulegur fjöldi smita sé margfalt það sem greinst hefur. Hér á Íslandi var til dæmis gerð slík rannsókn og á þeim tíma sem hún var gerð sýndi hún að hér hefðu um 3.600 manns smitast og dánartíðnin um 0,25%. Í Þýskalandi var einnig gerð slík rannsókn og niðurstaða hennar var að dánartíðnin væri um 0,29% ef ég man rétt.

Hver er ástæða þess að fólk reiðir sig á gögn sem það veit að eru röng og dregur af þeim ályktanir sem leiða til aðgerða sem valda gjarna miklu meira tjóni en sjúkdómurinn sjálfur? Er það þekkingarleysi (þetta eru samt upp til hópa vísindamenn), heimska, eða eitthvað annað?

Þorsteinn Siglaugsson, 28.7.2020 kl. 08:55

8 Smámynd: Geir Ágústsson

Þorsteinn,

Í umræðunni er nokkuð algengt að menn grípi til ósjálfráðra viðbragða:
Davíð Oddsson sagði það, þar með er það rangt!
Kári Stefánsson sagði það, þar með er það rangt!

Hvernig rangt? Þá er ýmislegt týnt til, jafnvel gegn eigin sannfæringu.

Umræða af þessu tagi er ágæt að því leyti að öll sjónarmið eru lögð fram. Utanaðkomandi aðili getur þá lagt mat á þau.

Ókosturinn er að ef rökstuðningurinn er samansafn af einhverri þvælu þá reynir það á óþolinmæðina og gerir umræðuna gagnslitla. 

Geir Ágústsson, 28.7.2020 kl. 10:04

9 identicon

Frétt um að leki á olíuflutningsskipi sé innan við 0,0001% mundi vekja litla eftirtekt, nema fólk almennt viti að olíuskip geti innihaldið 2 milljarða tonna af olíu?

Það er í raun engin fölsun eða staðreyndavilla í að hoppa á milli % og tölu, jafnvel þegar reynt er að tengja þessa tölu við manneskjur sem lesandinn veit einhver deili á eða stækka eða minnka úrtökin (aldurshópa og annað) eftir því sem passar og höfðar betur til tilfinninga t.d. hvort fólki líkar betur við epli eða appelsínur.

Sem dæmi um valin úrtök þá held ég að það sé óvéfengt að dánartíðni vegna Covid hjá þeim hafa sykursýki sé margföld á við aðra hópa og sykursýki er mun algengari á vissu landfræðilegu belti í USA og þar er dánartíðnin vegna Covid mjög há hvort sem litið er til % eða tölu

Grímur (IP-tala skráð) 28.7.2020 kl. 10:29

10 Smámynd: Geir Ágústsson

Grímur,

Í bókinni Thinking, fast and slow, er einmitt komið inn á þetta með % vs. fjölda, og það er stutt mörgum sálfræðirannsóknum að það sé hægt að spila með huga fólks og tilfinningar með mismunandi vali á framsetningu.

"1 af hverju 1000 deyja" er mun áhrifameiri framsetning en "dánartíðnin er 0,1%".

Geir Ágústsson, 28.7.2020 kl. 10:35

11 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Stæsrtu olíuskip taka um hálfa miljón tonn af olíu. 0,00001% leki í slíu skipi er þá 500.000 um 0,05 t eða rúmlega 50 lítar díselolíu sem væri nóg til að valda sýnilegr mengun í nokkara klukkutíma í Reikjavíkurhöfn. 

Tölur segja aldrei neitt nema í samhengi við þekkingu á málefnininu. 

Guðmundur Jónsson, 28.7.2020 kl. 11:37

12 Smámynd: Geir Ágústsson

"Dauðsföll vegna COVIID-19 svara til að tvöfaldur íbúafjöldi Íslands hafi farist!"

"Dauðsföll vegna COVID-19 svara til þess að 0,008% mannkyns hafi farist!"

Já, samhengi skiptir máli.

Geir Ágústsson, 28.7.2020 kl. 12:10

13 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þetta er rétt hjá Guðmundi

ég leit á flutningsgetu olíuskipa sem er 2 miljarða tonna á ári

svo ef þetta væri % leki að meðaltali þá ?

Grímur Kjartansson, 28.7.2020 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband