Þriðjudagur, 19. nóvember 2019
Kolefnisfótspor góða fólksins
Rannsóknir hafa sýnt að vel menntaða, heimsvana, áhyggjufulla góða fólkið leysir úr læðingi miklu meira kolefni en aðrir.
Það er allt í góðu lagi með það. Kolefni er plöntufóður og stuðlar að grænkun Jarðarinnar og þar með auknum lífmassa, meiri matvælauppskeru og hraustlegra lífríkis.
Verst er samt áhugi góða fólksins á að skattleggja pöpulinn svo mikið að hann hefur ekki efni á ferðalögum góða fólksins. Pöpullinn vill gjarnan eina utanlandsferð á ári í sólina eða til að heimsækja vini eða ættingja. Góða fólkið fer í stórborgarferðir, menningarreisur og ráðstefnur - margar flugferðir á ári.
Það vantar ekki predikara í fílabeinsturnum en ég legg til að hunsa þá. Kolefni er ekki hættulegt fyrir loftslagið, það er allt í lagi að fljúga og góða fólkið á ekki að fá að ráða þótt það sé duglegt að blaðra.
Guðbjörg og Ragnar Þór völdu brúðkaupsferð í stað veislu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.