Miðvikudagur, 13. júní 2018
Leggjum niður Seðlabanka Íslands
Íslenska ríkið á að koma sér út úr framleiðslu peninga og verðákvörðunum á lánsfé. Ríkið hætti að framleiða sement á sínum tíma. Hið sama á að gilda um peninga.
Nýlega skilaði nefnd af sér skýrslu þar sem mælt var með því að ríkisvaldið héldi áfram að standa í peningaframleiðslu. Af hverju? Jú, af því það þarf að varðveita svokallaðan fjármálastöðugleika. En þarf þá ekki líka að varðveita stöðugleika raftækjasölu, beikonframleiðslu og tölvuleikjaframleiðslu? Nei. Óstöðugleiki fjármálakerfisins er allskyns ríkisafskiptum að kenna. Með afnámi þeirra má auka stöðugleikann og koma á ástandi sem mætti e.t.v. kalla "sá á kvölina sem á völina" eða "frelsi og ábyrgð". Í dag heitir fyrirkomulagið að það megi hirða gróðann þegar vel gengur en senda reikninginn á skattgreiðendur þegar illa gengur, eða kaupmáttarrýrnunina til almennra launþega.
Kæra ríkisvald, hættu að framleiða peninga.
Stýrivextir áfram óbreyttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þessi peningamál, þetta peningabókhald, þarf að hugsa upp á nýtt.
Það að þykjast vera að lána verðmæti, gengur ekki lengur.
Þetta er aðeins bókhald, fyrir alla gerð í þjóðfélaginu.
Ef einn er ekki að vinna og að gera gagn, þá er rétt að bjóða honum vinnu, og það má búa til bókhald til þess.
Auðvitað þarf að borga það betur, sem engin vill gera.
Allir læri um málefnið, hver eftir sinni getu.
Til dæmis húsnæðið, heimilin, eiga ekki að vera spilaverkefni okkar víxlarana.
Jesú rak þá út úr Musterinu.
Þetta er mjög einfalt.
Stærstu bankar heimsins, hafa haft okkur að fífli yfir tíðina.
Færust menn landanna, leiti bestu lausna.
000
Niðurstöður fyrir bókhald Jónas Gunnlaugsson 164 bloggfærslur fundust
https://www.blog.is/forsida/leit/?query=b%F3khald+J%F3nas+Gunnlaugsson
000
Egilsstaðir, 19.06.2018 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 19.6.2018 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.