Dýrt dót sem endist illa

Þegar ég fermdist fyrir um 20 árum stóð valið - í mínu tilviki - á stóru gjöfinni á milli lítils sjónvarps eða hljómflutningstækja. Sumir fengu bæði og þóttu heppnir. Þetta voru tæki sem entust í mörg ár. Sumir sem ég þekki eiga jafnvel ennþá fermingargræjurnar en þeim fer að vísu fækkandi.

Núna er tæknilandslagið gjörbreytt, vægast sagt. Ég sé fram á að minn 7 ára sonur, sem á nú þegar iPad, verði búinn að eignast ferðatölvu í ár. Hann segist vilja læra á hana en ekki bara nota hana eins og leikjatölvu. Hann verður eflaust búinn að eignast snjallsíma í kringum 10 ára aldurinn eða fyrr, og sjónvarp enn fyrr. Hann á úr sem ég get hringt í og hann getur hringt í mig og móður sína úr.

13 ára strákurinn á heimili mínu á fullkomna ferðatölvu sem er hönnuð fyrir tölvuleikjaspilun, og svo á hann snjallsíma og iPad og snjallsjónvarp. Allt þetta notar hann til að spila tölvuleiki og horfa á Youtube-myndbönd.

Öll þessi tæki og tól eru að mörgu leyti ágæt þótt þau hafi líka ókosti. Þau kosta ekkert svakalega mikið, þannig séð. Þau endast heldur ekki að eilífu. Að láta snjallsíma eða tölvu endast í 3-5 ár er talið frekar gott. Fermingarbarn sem fær leikjatölvu í fermingargjöf verður líklega búið að skipta henni út fyrir tvítugsaldurinn eða miklu fyrr. 

Fermingargjafirnar eru kannski hættar að vera langtímagjafir sem endast til fullorðinsára. Það skiptir kannski engu máli en getur kannski leitt til þess að fermingargjöfin - stóra gjöfin - er bara orðin að enn einni gjöfinni. Hún hefur ekki sérstöðu. Hún er ekki til margra ára.

Í Danmörku eru margir foreldrar hættir að gefa risastórar fermingagjafir. Nóg er af græjum! Í staðinn kaupa foreldrarnir einhvers konar upplifun, t.d. ferð á fótboltaleik í Englandi, eða á tónleika úti í heimi (t.d. veit ég um stelpu sem fór með móður sinni á tónleika með Justin Bieber í Þýskalandi). Er það kannski sniðugura en enn ein græjan sem endar í ruslinu eftir 5 ár?

Annars er ég sjálfur forfallinn græjufíkill þótt ég geti lítið sinnt þeim. Þessi pistill er t.d. skrifaður á 10 ára gamla Lenovo-tölvu sem ég keypti notaða og setti Linux-stýrikerfi upp á með sparsömu grafísku viðmóti og lék mér að því að fá allt til að virka. Það var mjög gefandi. Þeim sem langar í gjöf sem gefur ættu að kaupa sér hlut sem virkar ekki, og fá hann til að virka. 


mbl.is „Upplýstari en kynslóðirnar á undan“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geir minn. Ég held að öskureiðinnar velmeinandi aðhald foreldranna öðru hverju, sé það besta sem börnum er gefið. Það þarf nefnilega öskureiða og gamaldags foreldra, til að forða börnum og unglingum frá þessari heilaþvotta-heilsuspillandi og regluramma lausu tæknitækjafíkn.

Foreldrar eru í frekar varnarlausri stöðu þegar kemur að þessari tækjaóðu og yfirvaldanna stjórnlausu fíknivegferð. Verða jafnvel kærð til "barnaverndar nefnda", ef reynt er að taka á þessu stjórnleysi tölvutækjafiknarinnar í alls konar tækjanotkun?

Ekki trúi ég því að almættið algóða hafi ætlað börnum og unglingum jarðarinnar þess skrattans veganestis, sem tölvufíknin er í raun orðin um víða veröld.

Ferming?

Til hvers?

Þegar ég var unglingur hafði ég ekkert vit á fermingarathöfninni, og hef reyndar ekki enn þann dag í dag. Hátíð og gjafir sem maður skildi ekki tilganginn í?

Það er hægt að kenna börnum og unglingum tilgang kærleiksboðskapar án þess að kaupmenn græðginnar vaði yfir allt sem telst siðmenntað og gott í kristnum kærleiksboðskap.

Að þiggja gjafir gráðugra kaupmanna, þegar maður samþykkir á einhvern embættismanna framkvæmdan og óskiljanlegan hátt, að vera raunverulegt guðsbarn og krakkaskratti á jörðinni, er mér enn þann dag í dag, alveg óskiljanlegt.

Með frekju minni fékk ég að fermast í buxum, sem þótti nánast hneyksli á þeim tíma. Líklega byrjaði mín JAFNRÉTTLÆTIS hugsjón opinberlega þar og þá. Stelpuskrattinn ég í síðbuxunum í sjálfri "fermingunni", kaupmanngráðugra hugsjónstýrðu. Í kirkjunni góðu, en kaupmanna misnotuðu?

Ég á greinilega margt ólært í þessari jarðarferð, í sambandi við allt tilgangslausa kaupmanna sölugræðgiferlið, í kringum kærleiksboðskaps fræðsluna.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2018 kl. 21:24

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Mér finnst allt í lagi að fólki komi saman og fagni því að barn sé að fullorðnast, og að því fylgi gjafir. Slíkt er varla einsdæmi í vestrænu samfélagi. Foreldrar reyna vonandi að aðstoða fermingarbarnið í að nýta þær gjafir á sem uppbyggilegastan hátt. 

Þó finnst mér skondið að sjá vespu-umboð kynna varning sinn á fermingarsýningu. Mér dettur varla í hug verri fjárfestingu fyrir 14 ára einstakling en vespu.

Geir Ágústsson, 31.3.2018 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband