Miðvikudagur, 7. febrúar 2018
And-réttrúnaðurinn sparkar frá sér
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, er að mörgu leyti holdgervingur hins pólitíska rétttrúnaðar. Hann er að tegund fólks sem telur sig hafa fundið upp uppskriftina að umburðarlyndi, sátt og samlyndi, virðingu fyrir öllum og velferð mannkyns... fólkskyns.
Hinn pólitíski rétttrúnaður mætir samt andspyrnu af mörgum toga.
Góð kynning á þeirri andspyrnu er hér:
Dr. Jordan Peterson Political Correctness & Young People
Ég get skrifað meira um þetta áríðandi umræðuefni fljótlega.
Trudeau bjó til orðið fólkskyn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Trúdi í kanada er versti sori sem fyrir finnst á jarðríki, hann er einmitt að deyja á pólitískum rétttrúnaði og sósíalískri atvinnufornarlembu, það er ekki hægt að finna meiri hræsni og fordóma en í fólki eins og honum.
Við þurfum meira af mönnum eins og Dr. Jordan Peterson.
Halldór (IP-tala skráð) 7.2.2018 kl. 08:26
Forsætisráðherra Kanada er frjálslyndur maður, sem frjálshyggjumenn hatast við.
Og ekki gengur upp að þeir séu í sama stjórnmálaflokknum, til að mynda Sjálfstæðisflokknum, enda klofnaði flokkurinn og frjálslyndi armurinn stofnaði Viðreisn en eftir urðu íhaldsmenn og frjálshyggjumenn.
Mörlensku frjálshyggjumennirnir eru hins vegar ekki margir og búa trúlega í kjallaranum hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni við rýran kost.
Þorsteinn Briem, 7.2.2018 kl. 15:47
Steini,
Ekki veit ég hver fóðrar þig af pólitískri hugmyndafræði en viðkomandi er eitthvað úr takti við það sem er að gerast úti um allan heim. Kannski íslensk pólitík sé alltaf svolítið sér á báti.
Eða hvað finnst þér um lög sem skylda fólk til að nota ákveðin orð?
Geir Ágústsson, 7.2.2018 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.