Fimmtudagur, 25. janúar 2018
Fjárlög miðast við að ekkert eldfjall gjósi
Sprengigos undir jökli gæti stöðvað flutninga á gjaldeyri ferðamanna til Íslands. Það gæti haft keðjuverkandi áhrif á íslenskt hagkerfi. Samdráttur gæti orðið fljótur að breiðast út. Ríkisvaldið yrði af skatttekjum. Nú þegar er það rekið nánast á núllinu þótt skattar séu í hæstu hæðum, og skuldar um leið næstum því 1000 milljarða auk þess sem hundruðir milljarða hvíla á því í formi lífeyrisskuldbindinga.
Það má því segja að öll fjárlagavinna stjórnvalda og allar áætlanir næstu ár byggist á því að ekkert eldfjall gjósi.
Vonum það besta!
Eldgos hefði víðtæk áhrif | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.