Þriðjudagur, 7. nóvember 2017
Vinstristjórn í tilraunaglasi
Reykjavík hefur, síðan á dögum R-listans, verið eins konar tilraunaglasaútgáfa af vinstristjórn á landsvísu. Nokkur einkenni slíkrar stjórnar eru:
- Skuldir vaxa jafnvel þótt skatttekjur vaxa
- Hoggið er í grunnstoðirnar en gæluverkefnunum hleypt áfram
- Áætlanir um að skila rekstrarafgangi settar fram árlega, en standast ekki árlega
- Skattalækkanir veittar á afmarkaða en atkvæðamarga hópa, en aðrir fá skattahækkanir inn um sína lúgu
- Reynt að kenna öðrum um eigin vandræði í rekstri og stjórnsýslu. Einhverjum utanaðkomandi er um að kenna
- Erfiðum málum kastað á milli eins heitri kartöflu þar til þau lenda á grandlausum embættismönnum
R-listinn var ákveðin fyrirmynd vinstristjórnar Jóhönnu og Steingríms. Borgarstjórn Dags er vísbending um það sem koma skal ef Katrín Jakobsdóttir fær nógu marga á sitt band í Stjórnarráðinu.
Reksturinn verði jákvæður upp á 3,4 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
https://kosning.reykjavik.is/
Ef þú vilt ráða í hvað peningarnir fara
Kjósa (IP-tala skráð) 8.11.2017 kl. 17:45
Góður!
En nei, þarna eru ekki teknar neinar ákvarðanir. Þetta er netspjall sem veitir fólki ákveðna útrás.
Geir Ágústsson, 9.11.2017 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.