Fimmtudagur, 14. september 2017
Þegar vinstrimaður sér afleiðingar skattahækkana ...
Þegar vinstrimaður getur í yfirveguðu og skýru máli bent á slæmar afleiðingar skattahækkunar er þá ekki alveg á hreinu að sú skattahækkun er alveg óvenjulega eitruð?
Yfirleitt sjá vinstrimenn ekkert athugavert við að blóðmjólka skattgreiðendur en á þessu finnast undantekningar.
Meira að segja Steingrímur J. Sigfússon gerðist á sínum tíma svo frægur að sjá að himinháir skattar á vinnu iðnaðarmanna hafa slæmar afleiðingar fyrir þá.
Núna bendir þingmaður Vinstri-grænna á að hærri skattar á eldsneyti og bifreiðar muni bitna á þeim sem nota mikið eldsneyti og keyra mikið. Ekki þarf doktorspróf í hagfræði til að átta sig á þessu en það að vinstrimaður hafi áttað sig á þessu ætti að vekja alla svokallaða hægri- og miðjumenn til umhugsunar.
Hér er sem sagt vinstrimaður að gagnrýna svokallaða hægristjórn fyrir skattahækkanir.
Þarf frekari staðfestingu á því að stjórnin sem nú situr er alls engin hægristjórn?
Ætli stjórnin sér að halda velli þarf hún að hugsa sinn gang, alvarlega. Mín meðmæli til hennar eru:
- Lækka alla skatta verulega svo fólk sjái umtalsverða búbót í þeim skattalækkunum. Um leið má fækka undanþágum og einfalda skattkerfið og í leiðinni velferðarkerfið svo menn hætti að verða varir við áhrif jaðarskatta.
- Koma ríkisvaldinu úr sem mestum rekstri svo það þurfi ekki að leika forstjóra lengur (með slæmum árangri). Ríkið á ekki að þurfa stunda neinn rekstur. Sumt þarf kannski að niðurgreiða af pólitískum ástæðum en það er allt annar hlutur.
- Hleypa bændum á hinn frjálsa markað, þar sem menn þurfa að standa á eigin fótum en hafa um leið miklu meiri áhrif á eigin örlög.
- Fella niður það sem eftir er af tollum og öðrum höftum á inn- og útflutning.
- Koma brennivíni í búðir (hér mætti hafa danskt eða þýskt fyrirkomulag áfengissölu í huga).
- Hætta þessu máttlausa tali um loftslagsbreytingar og hvernig almenningur þarf að skerða lífskjör sín í nafni þeirra.
- Hætta daðri við femínisma og annan póstmódernisma sem þrífst á því að gera úlfalda úr mýflugu og tortryggja alla sem sinna verðmætaskapandi vinnu.
- Byrja að svara vinstrimönnunum, bæði á þingi og í fjölmiðlum. Það er alveg leyfilegt að hafa hugsjónir sem snúast um trú á frjálst framtak og frelsi einstaklinga og bera stækt vantraust til opinbers ríkiseinokunarreksturs.
- Aðskilja ríkisvald og efnahag: Vinna að því að koma á gjaldmiðlafrelsi á Íslandi, losa sjávarútveginn undan opinberum afskiptum og fækka í reglugerðarsafninu.
Kjósendur byrja þá kannski að sjá mun á "hægri" og "vinstri" og hafa þá raunverulega valkosti við næstu kosningar.
Bitnar einkum á landsbyggðarfólki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.