Ţriđjudagur, 28. mars 2017
Enn of langur dagur hjá skattinum
Í frétt segir:
Frá og međ mánudeginum 3. apríl verđur afgreiđslutíma Ríkisskattstjóra breytt og lokar skrifstofan klukkan tvö á föstudögum og hálffjögur ađra virka daga.
Ţetta er ekki nógu mikil stytting. Ég legg til ađ afgreiđslutíminn verđi styttur niđur í 2 klst fyrir hádegi á mánudögum.
En bíđa ţá ekki margar fyrirspurnir eftir afgreiđslu og mörgum spurningum skattgreiđenda er ósvarađ? Kannski, en ţá ţarf ađ einfalda skattkerfiđ og lćkka skatta ţar til 2 klst afgreiđslutími fyrir hádegi á mánudögum er nóg fyrir alla.
Allir starfsmennirnir mega halda fullum launum mín vegna. Ţađ er ódýrara fyrir almenning ađ hafa einfalt og hófsamt skattkerfi en flókiđ og heimtufrekt skattkerfi, nánast sama hvađ starfsmenn Ríkisskattstjóra eru margir.
Nú er bara ađ hefjast handa!
![]() |
Styttri vinnuvika hjá skattinum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nauđsynlegar breytingar í skattheimtu til ađ byggja upp innviđina krefjast meiri mannafla. Sá kostnađarauki sem ţví fylgir skilar sér margfalt tilbaka.
Stóreignaskattur í ţrepum, fleiri tekjuskattsskattţrep, hćrri skattur á fyrirtćki, einkum stóriđjufyrirtćki, meira skattaeftirlit ofl eru nauđsynleg til ađ bćta lífskjör. Slíkar skattabreytingar munu ekki snerta almenning, ađeins ţá tekjuhćstu og stóreignafólk.
Viđ eigum ađ taka okkur til fyrirmyndar ţau lönd ţar sem lífskjör eru best í heiminum. Ţađ vill svo til ađ ţađ eru okkar nágrannalönd sem viđ erum í mestum skyldleika viđ. Viđ eigum ađ líta í austur, í vestri eru vítin til ađ varast.
Ásmundur (IP-tala skráđ) 28.3.2017 kl. 13:44
Ţađ eru í grunninn til tvćr leiđir til ađ útvega sér mjólk:
- Mjólka beljuna til dauđa
- Fita beljurnar, fjölga ţeim og mjólka ţćr hóflega
Einu sinni var mér sagt ađ í Sviss vćri tekjuskatturinn helmingurinn af ţeim í Svíţjóđ en aflađi ríkinu sömu tekna. Í Svíţjóđ eru beljurnar mjólkađar til dauđa (Svíţjóđ stađnađi fyrir löngu síđan) en í Sviss eru ţćr fitađar.
Ađ líta of langt til austurs eru mistök sem margir íslenskir vinstrimenn hafa gert.
Geir Ágústsson, 28.3.2017 kl. 19:58
Ef tekjuskattur í Sviss eru helmingur af tekjuskatti í Svíţjóđ ţá eru tekjur vegna tekjuskatts helmingi minni í Sviss en í Svíţjóđ. Góđ afkoma Sviss skýrist fyrst og fremst af skattaskjólsundirbođum og bankaleynd.
Ţrátt fyrir gífurlegar tekjur af ţessari vafasömu starfsemi eru lífskjör í Sviss ekki betri en í Svíţjóđ. Í löndum Evrópu međ hátt efsta skattţrep, sem eru miklu fleiri en norđurlöndin, eru lífskjör miklu betri en ţar sem efsta skattţrep er lágt. Sviss er reyndar ekki í hópi ríkja međ lágt efsta skattţrep.
Lćkkun skatta á Íslandi jafngildir ţví ađ leggja innviđina í rúst. Er ţađ ţađ sem sjálfstćđismenn stefna ađ_ţvert gegn vilja meirihluta ţjóđarinnar? Ef ţađ er ásetningurinn hefur ţeim orđiđ vel ágengt undanfarin ár.
Ásmundur (IP-tala skráđ) 29.3.2017 kl. 11:32
Ţađ má spurja eins og margir hafa spurt sig:
Ef ríkiđ styrkti ekki listir, vćru ţá engar listir?
Ef ríkiđ byggđi ekki vegina, vćru ţá engir vegir?
Ef ríkiđ styrkti ekki menntun, vćri ţá engun menntun?
Ef ríkiđ framleiddi ekki peninga, vćru ţá engir peningar?
Menn hafa svo komist ađ ţví ađ allt var ţetta til áđur en ríkiđ hrifsađi verkefnin til sín og gerđi ađ féţúfu. Og allt heldur áfram ađ vera til ţótt ríkiđ dragi saman seglin.
Og nei, ţetta passar ekki:
Ef tekjuskattur í Sviss eru helmingur af tekjuskatti í Svíţjóđ ţá eru tekjur vegna tekjuskatts helmingi minni í Sviss en í Svíţjóđ.
10% af 1000 kr. gefa 100 kr. en líka 20% af 500 kr.
Geir Ágústsson, 29.3.2017 kl. 14:16
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.