Miđvikudagur, 20. janúar 2016
Á sama tíma á öđrum stađ í bćnum ...
Á međan lögreglan eyddi tíma sínum og fjármunum skattgreiđenda í ađ elta uppi plöntur í Hafnarfirđi gerđist (hugsanlega) ýmislegt á öđrum stöđum í bćnum.
Á einum uppgötvađi mađur innbrot og hringdi á lögregluna. Honum var sagt ađ skrifa sína eigin skýrslu og senda til lögreglunnar. Lögreglan hefur ekki tíma til ađ sinna svona málum.
Á öđrum lenti mađur í ţví ađ ókunnugur karlmađur veittist ađ honum međ hníf og vildi fá veskiđ hans. Hann tekur á flótta og hringir á lögregluna en enginn lögreglubíll var í nágrenninu. Hann var rćndur.
Á enn öđrum stađ kom kona ađ ölvuđum manni sofandi í stigaganginum sínum en sá ekki fram á ađ geta flutt hann, fyrir utan ađ ţora ţví ekki. Hún ţekkti manninn ekki og vissi ekki hvađ hann mundi gera ef hann vaknađi. Hún hringir á lögregluna og biđur um ađstođ. Lögreglan segir ađ hún geti ekki sinnt svona útköllum og ađ hún ţurfi ađ leita á náđir nágrannanna.
Lögreglan ber viđ fjársvelti og skorti á mannskap. Ţađ er ađ hluta til ekki hennar sök. Hún hefur mikiđ fyrir stafni. Mörg kjánaleg lög halda henni upptekinni, nánast sama hvađ margir eru á vakt. Ađ hluta til getur hún samt kennt sjálfri sér um - hún forgangsrađar sumu umfram annađ - einbeitir sér ađ löstunum, ekki glćpunum.
Ég vona ađ ţessar kannabisplöntur fái friđsćla förgun.
Stöđvađi rćktun á tveimur stöđum | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.