Mánudagur, 29. september 2014
Seðlunum bjargað
Eigendur séreignarsparnaðar á Íslandi forða nú fé sínu úr lífeyriskerfinu og margir jafnvel úr hinni íslensku krónu. Hluti peninganna leitar í verðmæti sem má búast við að sé alltaf auðvelt að selja, t.d. lúxusvarning ýmis konar (Rolex-úr, listaverk sem má selja erlendis) eða fasteignir á góðum stað. Aðrir skipta íslenskum krónum yfir í einhvern erlendan gjaldeyrin og halda svo sparnaði sínum í lausafé.
Á íslenskan almenning herja þrír draugar:
- Verðbólgan sem étur upp sparnað og minnkar lánamarkaðinn.
- Löggjafinn sem er sífellt að hræra í öllu til að tryggja sitjandi stjórnvöldum atkvæði.
- Vitleysan sem streymir úr mönnum sprenglærðra hagfræðinga og misviturra stjórnmálamanna.
Allt ofangreint má í einu nafni kalla opinber afskipti af hagkerfinu. Þeirra yrði ekki saknað af öðrum en stjórnmálamönnum og opinberum embættismönnum ef þau gufuðu upp á morgun.
12,5 milljarðar teknir út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það hefur ekki hvarflað að þér að stór hluti þessara peninga fari einfaldlega í innkaup á nauðsynjavörum hjá þeim hafa geta ekki lifað á launum sínum?
Guðmundur Ásgeirsson, 29.9.2014 kl. 08:47
Sæll,
Jú vissulega en ég hélt kannski að þeir sem eru að nota sparnað í neyslu hafi fyrir löngu klárað hverja krónu og komnir í yfirdráttinn. Kannski er það ekki rétt.
Geir Ágústsson, 29.9.2014 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.