Föstudagur, 26. september 2014
Svona eins og í Danmörku?
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segist vera reiðubúin að skoða aðkomu annarra en hins opinbera að rekstri flugvalla.
Jahérna! Ekki vissi ég að á Íslandi væri ríkisstjórn sem leitaði fordæma til hinna Norðurlandanna! Ég hélt einmitt að þannig ríkisstjórn hefði farið frá völdum við seinustu kosningar!
Einn besti alþjóðaflugvöllur heims, sá í Kaupmannahöfn, var seldur að miklu leyti til einkaaðila á 9. áratug 20. aldar. Ríkisvaldið á tæp 40% í honum. Heimild: Wikipedia hér og hér.
Flugvöllurinn hefur batnað mikið á seinustu árum (og var þó góður fyrir). Látið mig sem mjög tíðan farþega í gegnum hann þekkja það. Þar er til dæmis nánast aldrei meira en 2 mínútna bið í öryggisleitarhliðin.
Íslendingar ætla núna, kannski, að hleypa einkaaðilum meira að rekstri flugvalla á Íslandi. Það heitir í stuttu máli að færa hið íslenska lagaumhverfi nær því danska.
Væri það ekki góð tilbreyting ef eitthvað í frjálsræðisátt væri apað upp eftir hinum Norðurlöndunum, í stað þess að apa bara eftir ströngustu boðum og bönnun Norðurlandanna?
Fjárfestar reki hafnir og flugvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.