Miðvikudagur, 21. maí 2014
Stjórnmálamenn í Matador
Stjórnmálamenn haga sér stundum eins og þeir séu í Matador (eða Monopoly, eftir smekk). Þessi samlíking er alveg ótrúlega viðeigandi:
- Þeir eru að leika sér með annarra manna fé, eða fé sem þeir tapa án afleiðinga fyrir sjálfa sig (eigin bankareikning).
- Þeir fá borgað hvort sem spilið gengur vel eða illa.
- Þeir fá lífeyri hvort sem spilið gengur vel eða illa.
- Óttinn við að tapa öllu er í lágmarki því það að tapa öllu hefur lítil persónuleg áhrif á þá. Þeir eru því tilbúnir að leggja meira undir en ella - taka meiri áhættu í von um meiri ágóða svo spilið verði skemmtilegra.
- Þeir fá tækifæri til að stjórna flottum eignum og ráðskast með þær, innheimta leigu af notkun þeirra , kaupa og selja og ákveða skilmála fyrir aðra.
- Þeir eru í miklu stuði á meðan á spilinu stendur en vita að það tekur enda, enda eru þeir bara tímabundnir umsjónarmenn en ekki eigendur í raun, og eru því gjarnan með hugann við annað, t.d. hvaða eign á að ráðskast með næst.
Að heyra stjórnmálamenn tala um hvað verðið eigi að vera, hvaða framkvæmdir þurfi að fara í og á hvaða skilmálum eigi að gera hitt og þetta, eða sleppa því að gera hitt og þetta, minnir á tal krakka að spila borðspil með gervipeningum.
Ríkisvaldið á ekki að eiga eina einustu eign, hvort sem um er að ræða byggingu, fyrirtæki eða land. Stjórnmálamenn eru tímabundnir umsjónarmenn sem sitja á löggjafarsamkomu og segja alltof mörgum embættismönnum fyrir verkum. Þeir eiga að sjá um að ríkisvaldið sinni fyrirframákveðnum verkefnum fyrir hönd kjósenda sinna. Þeir eiga ekki að spila borðspil með fyrirtæki.
![]() |
Vill skoða sölu á hlut í Landsvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:41 | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
Alveg rétt.
Svo dettur þeim stundum í hug hitt og þetta til þess að geta spilað lengur og eytt enn meiru:
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/05/24/voxtur_eykst_med_vaendi_og_eiturlyfjum/
Helgi (IP-tala skráð) 24.5.2014 kl. 19:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.