Fimmtudagur, 26. apríl 2012
Holl lesning um verðbólgu
Á Viðskiptablaðinu er núna hægt að lesa mjög fróðlega og ljómandi vel skrifaða grein um verðbólgu. Greinilegt er að höfundur hennar,
- Veit hvað hann er að tala um.
- Hefur ekki látið vitleysuna sem kennd er í hagfræðideild Háskóla Íslands brengla hugsanir sínar.
Tilvitnun:
Það er peningaprentun sem veldur verðhækkun og óstöðugleika á hrávörumörkuðum. Verðbólga er alltaf og alls staðar peningalegt fyrirbæri og það hefur enga þýðingu að senda spákaupmenn á námskeið í samfélagslegri ábyrgð á meðan módelsmiðir seðlabankanna eru að krukka í peningakerfið.
Þeir sem vilja skilja hagkerfið, peninga, viðskipti og hvata er vinsamlegast bent á að halda sig fjarri öllu "hefðbundnu" námi í hagfræði. Svo virðist vera að eftir því sem einstaklingur er sprenglærðari í hagfræði, þeim mun minni líkur eru á að viðkomandi viti eitthvað um hagfræði.
Viðskiptablaðið gerir vel með því að bjóða upp á sína ljómandi umfjöllun um verðbólgu og peninga. Ætlar Morgunblaðið ekki að fylgja henni eftir?
Afnám hafta brýnasta verkefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:22 | Facebook
Athugasemdir
Góð lesning! Maður er vanur að lesa greinar í þessum dúr á mises.org eða svipuðum síðum. Viðskiptablaðið á hrós skilið.
Kristinn Ingi Jónsson, 26.4.2012 kl. 15:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.