Fimmtudagur, 13. janúar 2011
Pissað í skóinn
Þegar stjórnmálamenn halda að þeir geti lagt aukaskatta á heilu greinarnar í nafni "auðlindagjalds" án þess að það hafi (neikvæðar) afleiðingar, þá skjátlast þeim.
Lesendur geta velt eftirfarandi fyrir sér (sjá nánar hér):
1) Hvort skyldi arðurinn af auðlindinni vaxa hraðar til langs tíma litið í höndum 100200 einstaklinga úti í atvinnulífinu eða 63 atvinnustjórnmálamanna á þingi?
2) Ef eigendur auðlinda fá ekki að njóta arðsins af auðlindinni, þá er numinn burt sá hagur, sem þeir hafa af því, að hún beri sem mestan ávöxt til sem lengst tíma.
Sú goðsögn að til sé skattheimta án afleiðinga lifir enn góðu lífi. Auðlindagjöld hvers konar eru talin til skattheimtu án neikvæðra afleiðinga (eða svo gott sem). Sú trú stenst enga skoðun.
Gjald verði tekið fyrir nýtingu orkuauðlinda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.