Þriðjudagur, 7. september 2010
Ekki-útgerðarmenn tjá sig um útgerð
Á Íslandi og víðar er ekki þverfóta fyrir þeim sem stunda ekki ákveðinn rekstur en hafa engu að síður sterkar skoðanir á því hvernig eigi að stunda sama rekstur.
Dæmi: Ekki-útgerðarmenn sem vilja að fiskveiðiheimildir séu ákveðnar (í magni) og nýttar á einhvern annan hátt en þeir sem stunda útgerð vilja.
Dæmi: Ekki-fyrirtækjarekendur sem predika allskyns leiðir til að ákveða rekstrarskilyrði fyrirtækja sem þeir koma hvergi nálægt nema sem fulltrúar hins opinbera eða "þjóðarinnar".
Dæmi: Ekki-hlutabréfaeigendur sem telja sig vita allt um það hvernig á að "hámarka arðinn" af tekjuleiðum fyrirtækja sem þeir eiga ekki eitt hlutabréf í.
Stundum væri óskandi að þeir sem tala hæst, og nota t.d. orð eins og "andþjóðfélagslegt", reyni í augnablik að setja sig í spor þeirra sem eiga lífsviðurværi sitt undir stöðugum, samningsbundnum og framseljanlegum nýtingar- og/eða eignarrétti á einhverri auðlind, sem væri bæði verðlaus og ónýtt ef ekki kæmi til eitthvað framlag í bæði vinnu og fjárfestingum.Samningaleiðin í raun einkavæðing afnotaréttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nákvæmlega!
Sigurður Gunnarsson (IP-tala skráð) 8.9.2010 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.