Miðvikudagur, 25. ágúst 2010
Gettu hvaða ár!
Ágæti lesandi, veistu hvaða ár eftirfarandi átti sér stað?
- Skattar hækkaðir, nánast allir sem einn
- Nýir skattar kynntir til leiks
- "Áætlaðar tekjur" ríkisins af sköttum fara lækkandi
- Atvinnulífið frosið
- Ríkið skuldsett á bólakaf
- Fjármálaráðherra talar um bætta tíð og blóm í haga um leið og hann tilkynnir næstu hrinu skattahækkana
Til hvaða árs er vísað? 2010? Nei. 1988, þegar Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi fjármálaráðherra, iðkaði sömu leikfimi með hagkerfið og Steingrímur J. iðkar í dag. Um það má lesa aðeins meira um hérna. Ekki voru blómin komin né bætta tíðin 3 árum seinna með Ólaf Ragnar í stól fjármálaráðherra. Þá var ennþá verið að hækka skatta og horfa upp á minni "áætlaðar tekjur" ríkissjóðs vegna þeirra. Um það má til dæmis lesa hér.
En að halda því fram að nú eigi að hækka skatta, kannski á næstu mánuðum eða svo, er fjarstæða. Það er fjarstæða að halda því fram.
Vel má vera að í áætlununum sem við þurfum að gera til næstu fjögurra ára þurfi kannski að fara bæði í niðurskurð og skattahækkanir.
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra svarar fyrirspurn á Alþingi 9. febrúar 2009 um hvort ríkisstjórnin hyggist hækka skatta
Skattar hækka um tíu milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Jújú, ég er að velta fyrir mér hvort það sem á pappír hefur komið frá þessari ríkistjórn hvafi verið pappírsinns virði, það getur ekki verið að nokkur maður geti logið svo mikið að einni þjóð.
Þetta er farið að minna á þegar sósial demokratar komust til valda í Þýskalandi(1933). AðferðirÍslenskra Jafnaðarmannalíkist meir og meir aðferðum þýsku jafnaðarmannan. Svei mér þá,spurning ef jóhanna ætti ekki að taka sig til og breyta skeggi sínu úr klasískri yfirvarðaskeggi yfir í litla og snirtilega hormottu
http://en.wikipedia.org/wiki/Nazi_Germany
Brynjar Þór Guðmundsson, 25.8.2010 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.