Bloggfærslur mánaðarins, október 2024
Fimmtudagur, 31. október 2024
Þetta sem þau tóku af okkur og gætu tekið aftur
Í október er ég búinn að halda fermingarveislu fyrir son minn, fara á fjölmenna ráðstefnu og gekk núna í kvöld á milli húsa með dóttur minni þar sem hún sníkti nammi ella yrðu afleiðingar. Allt á þetta það sameiginlegt að vera fólk að hittast, snertast, skiptast á hlutum sem það er búið að káfa á og dvelja í sama rými með ókunnugum eða allt að því.
Og um leið á allt þetta það sameiginlegt að á veirutímum tóku yfirvöld svona mannamót af okkur gegn hótun um ofbeldi.
Að óþörfu, svo því sé haldið til haga, enda enduðu allir á að fá veiruna (hvort sem þeir tóku eftir því eða ekki) og lyfin sem áttu að verja okkur gegn henni reyndust banvænni lækning en sjúkdómurinn.
Eftir stendur: Hvað hefur í kjölfarið verið sett á laggirnar sem hindrar yfirvöld í svona afnámi á réttarríki, lög og reglu og hófstilltri valdbeitingu?
Svarið er auðvitað: Ekkert.
Það er bara í besta falli. Í versta falli er búið að skrifa ný lög sem lögvæða slíkt ofbeldi hins opinbera. Það að taka af krökkum fermingarveisluna, skólagönguna og félagslífið, taka af vinnandi fólki lífsviðurværið, taka af heilbrigðu fólki heilsuna.
Mér varð hugsað til þess þar sem ég sá heilu hjarðirnar af grímuklæddum krökkum í kvöld að banka upp á hjá fólki. Hlátur, gleði, gaman. Um leið minntist ég auðra gatna á veirutímum þar sem sömu krakkar voru fastir heima hjá sér fyrir framan tölvuskjá, sumir að hugleiða sjálfsvíg og aðrir orðnir að hellisbúum.
Og ekkert sem stöðvar yfirvöld í að endurtaka leikinn.
Fimmtudagur, 31. október 2024
Eilífðarflokkar
Í mjög skemmtilegum pistli á Viðskiptablaðinu skrifar höfundur:
Það er gott að baráttan er snörp, allt verður miklu dýnamískara. Flokkarnir eru margir hverjir alls ekki tilbúnir og því síður frambjóðendurnir, sem gerir þetta að svo góðri skemmtun. Mikilvægast er að okkur beri gæfa til að sem flestir vinstri flokkar þurrkist út og að Sjálfstæðisflokkurinn verði í ríkisstjórn, því okkur farnast best þegar Sjálfstæðisstefnan er höfð að leiðarljósi.
Ég hjó þarna eftir orðunum að sem flestir vinstri flokkar þurrkist út. Sem sagt, að svo fáir kjósendur kjósi ákveðna flokka að þeir verði að engu. Leggist jafnvel af. Bráðni inn í aðra flokka.
En geta kjósendur þurrkað út flokka?
Það er varla!
Flokkar fá ríkisstyrki, líka þeir sem ná ekki mönnum á þing, gefið að þeir fái ákveðið lágmark sem er lægra en lágmarkið til að ná inn þingmanni. Sósíalistaflokkurinn er slíkur flokkur. Hann fékk eitthvað smávegis af atkvæðum í seinustu þingkosningum og fyrir vikið milljónir í ríkisstyrki sem hann hefur svo nýtt til að halda sér á lífi og jafnvel borga laun og annað. Kjósendum tókst ekki að þurrka út. Þeir reyndu en fengu í staðinn fjölmiðil á eigin kostnað.
Það væri óskandi að kjósendur gætu þurrkað út flokka en er orðið því sem næst ómögulegt. Þeir eru orðnir að vörunni sem tekur mikið hillupláss en enginn kaupir nema það myndist einhver mjög takmörkuð stemning í augnablik.
Því miður.
Miðvikudagur, 30. október 2024
Oddvitarnir sögðu hvað um veirutíma?
Ég veit að það er kosningabarátta þar sem má segja hvað sem er á meðan það er talið líklegt til að skila atkvæðum. Jafnvel að ljúga aðeins.
En þegar oddvitar svokallaðra hægri- og miðflokka segja núna að þeim finnist að yfirvöld hafi gengið of langt á veirutímum að skerða, taka af fólki og jafnvel hóta mismunun eftir lyfjatöku þá er lygin orðin of stór.
Hérna tek ég út úr sviga Arnar Þór Jónsson, formann Lýðræðisflokksins. Hann stóð svo sannarlega vaktina, bæði á þingi og utan, og fékk bágt fyrir.
Hinir eru bara að ljúga.
Staðreyndin er sú að þessir oddvitar allir sem einn brugðust algjörlega. Þeir þögðu eða tóku undir og opnuðu veski skattgreiðenda til að fjármagna þvæluna. Þeir hefðu auðveldlega getað séð nánast frá upphafi að ekki var allt með felldu.
Þeir brugðust og eiga ekki að fá að skjóta sér undan því.
En þeir reyna það nú samt og þá spyr maður sig: Hvað gera þeir næst?
Og hvað eru þeir að bauka og boða í dag, þvert á heilbrigða skynsemi og alla rökhugsun? Sem verður svo afhjúpað eftir fjögur ár, eða fjörtíu, sem sturlun sem gekk of langt?
Þegar oddvitar ljúga svona greinilega um frekar nýlega viðburði, og þar sem aðgerðir stjórnvalda eru ennþá að hrella fólk og hafa jafnvel komið mörgum í líkkistu, þá er það alvarlegra mál en einföld lygi sem kallast kosningaloforð.
Jafnvel meðvirkni með siðrofi, og merki um hálfgerða siðblindu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 30. október 2024
Fyrirkomulag kjarasamninga
Ég hef unnið vinnu sem var launuð samkvæmt kjarasamningum. Þegar ég bað um launahækkun í slíkum aðstæðum var mér sagt að ég væri nú þegar á hæsta taxtanum sem gilti um mitt starf. Ég þekki duglega konu sem fékk sama skilaboð. Já, auðvitað áttu skilið launahækkun miðað við ábyrgð og álag en því miður: Kjarasamningurinn segir nei.
Þar með er ekki sagt að launahækkun sé bönnuð eins og ég skil það. Atvinnuveitendur geta líka farið aðrar leiðir: Boðið upp á aksturspeninga og fasta yfirvinnu og annað slíkt. En það má engu að síður færa rök fyrir því að kjarasamningar séu verkfæri atvinnurekenda til að halda launum niðri, líka hjá starfsfólki sem skarar fram úr. Hvers vegna ekki? Það er ekki eins og betri kjör bjóðist á öðrum vinnustöðum sem fylgja sömu kjarasamningum. Læknar, hjúkrunarfræðingar, kennarar og fleiri sem reiða sig nánast algjörlega á hið opinbera um atvinnu eru bundnir við kjarasamningana, frekar en að atvinnurekendur séu bundnir af þeim.
Það er því frekar sorglegt að hugsa til þess að framúrskarandi kennarar, sem standast álagið og kröfurnar og hlaupa jafnvel oft í forföll ofan á eigin verkefni, geti ekki fengið umbun við hæfi. Þess í stað þurfa þeir að sætta sig við meðallaunin - laun þeirra sem veikjast kerfisbundið einu sinni í mánuði eða skilja eftir sig sviðna jörð í kennslustofunum. Margir kennarar vinna af mikilli ástríðu og skila af sér ánægðum nemendum sem í raun læra eitthvað. Þeim vantar bara skólahúsnæði sem gerir ekki kennara og nemendur veika.
Vandi kennara er ekki skortur á fjármagni - grunnskólar á Íslandi kosta meira á nemanda en í flestum þróuðum ríkjum. Peningurinn fer hins vegar á ranga staði, kerfisbundið. Hvert nákvæmlega veit ég ekki.
Er ekki kominn tími til að skera skólakerfið úr snöru hins opinbera? Slík aðgerð er vel þekkt og hefur dugað ágætlega á öðrum sviðum þar sem kostnaðurinn var alltaf á uppleið en ánægja skjólstæðinga á niðurleið.
Kröfur kennara mikil vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 29. október 2024
Gaman að láta klappa fyrir sér
Fyrir utan ráðhús Reykjavíkur, höfuðstaðs Íslands, mun fáni Úkraínu blakta um alla framtíð eða þar til Úkraína hefur sigrað eins og borgarstjóri orðar það.
Ekki fánar annarra ríkja sem eru í átökum og að eiga við innrás. Ekki fáni Armeníu, Kúrda, Palestínu, Líbanon eða Tævan.
Ekki fánar sem tákna samstöðu með fjölskyldum sem hafa séð á eftir heilu rútunum fullum af börnum í hendur mannræningja í Afríku, kvenna sem eru neyddar til að hylja á sér hár og líkama í Miðausturlöndum eða samkynhneigðra sem róttækir múslímar varpa fram af húsþökum.
Nei, fáni Úkraínu, eins spilltasta ríkis Evrópu og þótt víðar væri leitað, þar sem er nýbúið að afnema lýðræðið í raun, takmarka notkun á tungumáli stærsta minnihlutahópsins í ríkinu, ofsækja trúarsamfélög og ræna ungum mönnum úti á götu og senda á víglínur. Þar sem málfrelsið er takmarkað, fjölmiðlar eru strengjabrúður og ríkinu stjórnað með tilskipunum.
Vissulega ríki sem rússneskir hermenn eru að hakka í sig, eitt þorp í einu, en ekki ríki engla og dýrlinga.
Vissulega ríki þar sem almennir borgarar þurfa hjálp og aðstoð, en ekki ríki með hreinan skjöld.
Af hverju fær Úkraína alla þessa athygli eða Tjetjenía fékk að sigla sinn sjó á sínum tíma?
Var ekki nóg af peningaþvottavélum vestrænna milljarðamæringa og stjórnmálamanna í Tjetjeníu? Ekki nóg af ólöglegum rannsóknarstofum? Ekki nóg af tilraunastofum í leynilegu braski?
En heyrðu nú mig! Ef Rússar fá yfirráð yfir Austur-Úkraínu munu þá rússneskir hermenn ekki halda áfram og labba inn í Vestur-Úkraínu og loks Pólland? Eflist Pútín ekki í mikilmennskubrjálæði sínu? Er ekki hjarta Evrópu í hættu? Það vantar ekki samsæriskenningarnar en þær réttlæta ekkert og flækja jafnvel bara myndina.
Fáni Úkraínu mun sennilega verða tekinn niður þegar mönnum dettur í hug að setjast niður og ræða ástand Austur-Úkraníu fyrir alvöru. Kannski er Austur-Evrópa sem sjálfstætt ríki friðsælasta lausnin sem dregur úr kúgun íbúanna, eða aukið sjálfræði eins og Minsk-samningarnir á sínum tíma gengu út á en enginn hafði fyrir að virða. Kannski að deila kökunni eftir niðurstöðum íbúakosninga sem alþjóðasamfélagið fær að fylgjast með og getur þar með treyst á. Það hlýtur að vera valkostur við stríð sem menn fara að fá áhuga á.
En að moka endalausum skrokkum, vopnum og peningum í hakkavélina er engin lausn, og að flagga fyrir slíkum áætlunum engin manngæska.
Segir fánann munu blakta við hún þar til Úkraína sigrar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 28. október 2024
Orðið erfiðara að greina á milli gríns og raunveruleika
Margir kannast við háðsádeilusíður eins og The Onion og The Babylon Bee og muna eftir íslensku síðunni Baggalútur. Á slíkum síðum eru búnar til fréttir sem gera grín að atburðum líðandi stundar og oft tekst svo vel til að kaffið frussast yfir lyklaborðið.
En að halda úti svona síðum er orðið erfiðara. Í viðtali við einn af höfundum The Babylon Bee sagði hann að fólk geti ekki lengur greint á milli uppskáldaðs gríns og raunveruleikans. Fréttir hafi meira að segja verið teknar fyrir í staðreyndakönnun (fact check) og þar mjög hátíðlega lýst yfir að þær séu ósannar eða bara kaldhæðin ádeila.
Ég minnist þessa þegar ég sé sum af ummælum frambjóðenda til Alþingis þessa dagana. Ef Baggalútur væri enn að störfum þá væri oft erfitt að greina í milli fyrirsagna hans og fyrirsagna alvörugefinna fjölmiðla.
Er þetta ástand kjósendum að kenna sem verðlauna umbúðir en ekki innihald? Eða flokksforystum? Allt kapp virðist lagt á að finna fræg andlit - er það ekki ávísun á einhver ósköp? Verður þingsalurinn fullur af galtómum athyglissjúklingum að loknum kosningum? Af fólki sem er bara að leita að þægilegri innivinnu - einhverju sviði til að sýna sig á?
Maður leyfir sér að óttast aðeins.
En í millitíðinni er þá bara að njóta afþreyingarinnar, hvort sem hún birtist á RÚV eða hjá The Babylon Bee. Munurinn er hvort eð er hverfandi.
Píratar vilja ekki fleiri baðlón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 27. október 2024
Kennarar þurfa vinnufrið frá hinu opinbera
Ein af áskorunum kennara á Íslandi í dag er að eiga við endalausar nýjar kröfur og óskir yfirvalda. Þeim er gert að innleiða hitt og þetta plagg í kennsluna án þess að nokkuð komi í staðinn og án þess að nokkurs staðar sé dregið úr öðrum kröfum.
Með því að innleiða endalausan fjölda af markmiðum eru líkurnar á að ná einhverjum þeirra minnkaðar töluvert.
Nú ákvað ég að kíkja aðeins í eitthvað sem kallast aðalnámskrá grunnskólanna. En sá frumskógur!
Tökum dæmi af handahófi: Í lok 4. bekkjar á 10 ára nemandi að geta bent á dæmi um lýðræðislega þætti í nærsamfélaginu og rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi.
Í raunveruleikanum hefur þetta barn varla náð tökum á lestri og stærðfræði ef marka má kannanir.
Ég legg til að draga ríkið og hið opinbera eins og það leggur sig algjörlega út úr framleiðslu á menntun í samfélaginu. Fé verði þess í stað úthlutað, eyrnamerkt barninu, og skólar geta svo keppt um að fá viðkomandi barn til sín. Tvisvar eða þrisvar á námsferlinum verði lagt fyrir staðlað próf í helstu fögum (stærðfræði, íslensku og mögulega einhverjum öðrum tungumálum), og það seinasta auðvitað staðlað og samræmt próf sem framhaldsskólar geta treyst á að mæli stöðu nemanda.
Þannig mætti færa menntamál undir fjármálaráðuneytið og leggja niður menntamálaráðuneytið eða gera að skrifstofu í öðru ráðuneyti.
Þannig fá skólar svigrúm til að koma til móts við nemendur og einbeita sér að kenna þeim nauðsynlega færni en ekki allskyns háfleyga dellu.
Væri það ekki eitthvað? Að gefa kennurum og skólum vinnufrið frá hinu opinbera? Það held ég.
Skammarlegt áhuga- og metnaðarleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 26. október 2024
Málað yfir myndina
Af einhverjum ástæðum er núna fráfarandi borgarstjóri kominn ofarlega á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi kosningar. Þetta hlýtur að vera formanni flokksins þvert um geð, enda kom hún fersk inn úr atvinnulífinu og hefur talað með skýrum hætti miðað við jafnaðarmann: Ætlar að hækka skatta til að leysa öll önnur vandamál.
Núna situr hún uppi með borgarstjórann sem skildi eftir sig sviðna jörð og allt í klessu.
Hvað er þá til ráða? Úr því hún neyddist til að taka inn þennan ónýta frambjóðanda, hvað á að gera við hann?
Jú, lofa því að hann muni ekki fá að ráða neinu ef hann kemst á þing. Verður ekki ráðherra. Kemur bara inn með reynslu, hvað sem það nú þýðir. Reynslu í hverju? Skiptir ekki máli? Verðmæta reynslu? Væntanlega ekki.
Svo formaðurinn hefur varla fengið að kynna listann sinn þegar hún byrjar að mála yfir myndina af manninum í 2. sæti listans. Eða a.m.k. að fá fólk til að líta annað.
Auðvitað geta stjórnmál verið flókin og full af málamiðlunum. Innan flokka eru líka stjórnmál í gangi - þessi armur og hinn. Gamla draugasveitin í Samfylkingunni hefur sennilega þrýst á að fá sinn mann ofarlega á lista og hægri-kratarnir neyðst til að samþykkja það í skiptum fyrir eitthvað annað.
En hvað sem því líður þá er atkvæði til Samfylkingarinnar í Reykjavík atkvæði til borgarstjórans sem borgarbúar hafa svo lengi reynt að losna við en birtist alltaf aftur, alltaf brosandi, aldrei tilbúinn að svara símtölum þegar skólpið lekur í sjóinn og skólarnir mygla, en alltaf mættur á staðinn til að klippa borðana.
Hvers eiga Reykvíkingar að gjalda?
Kristrún: Hann er þarna í stuðningshlutverki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 25. október 2024
Allir flokkar, nema Samfylking, fengu aukastig
Mikið kapphlaup er núna í gangi hjá öllum flokkum að manna lista fyrir komandi kosningar til Alþingis. Oft er áherslan á að sækja í þjóðþekkta einstaklinga sem þarf lítið að kynna og sem um leið þurfa lítið að segja. Reynslan sýnir að kjósendur kjósa þá sem þeir kunna nöfnin á frekar en þá sem hafa eitthvað til borðs að bera. Og gott og vel, flokkar aðlaga hegðun sína að því.
En er ekki hægt að ganga of langt þarna?
Núna hefur verið tilkynnt að fráfarandi borgarstjóri Reykjavíkur, sem hefur tekið kjósendur í Reykjavík þrjú kjörtímabil að losna við, verði í 2. sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík. Af því hann er þekkt nafn, væntanlega.
Hjálpi mér.
Og svo er það þríeykið sem mokaði Íslandi í glötun. Líka á lista í efstu sætum hjá sama flokki.
Flokki sem vel á minnst mælist efstur í könnunum í dag.
Það væri athyglisvert að flokkur sem sér fram á að sigra kosningar verði að hæli fyrir alla þá sem skilja eftir sig sviðna jörð. Það virkar mögulega til að sigra kosningar en væri um leið sambærilegt við að gera glæpamenn að dómurum í eigin málum.
Sjáum hvað setur, en kjósendur fá nóg að hugleiða, vægast sagt.
Og kannski geta núna allir flokkar, nema Samfylking sinubrennara, hlakkað til aukastigs í skoðanakönnunum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 25. október 2024
Dönsk naflaskoðun á veirutímum
Dönsk yfirvöld ætla að fara í rannsókn á því hvernig þeim tókst til á veirutímum.
Þetta sá ég ekki fyrir. Danir hafa meira og minna gleymt veirutímum og gera jafnvel stólpagrín að hræðslunni sem greip um sig. Ekki hafði ég hugmynd um að það væri búið að undirbúa rannsókn á viðbrögðum yfirvalda og núna búið að finna peningana til að hefjast handa.
Ekki veit ég hvort þetta verði raunveruleg rannsókn eða hvítþvottur. Það kemur væntanlega ljós. En fyrsta skrefið er einhver rannsókn. Hana má svo gagnrýna eða taka undir.
Hvað með Íslendinga? Á ekki að rannsaka neitt? Eða bara að láta eins og ekkert sé? Jafnvel þótt afleiðingar veirutími herji ennþá mjög á íslenskt samfélag? Verðbólgan, umframdauðsföllin, lág fæðingatíðnin, margt fleira.
Ætli það ekki og nú þegar megnið af þríeyki dauðans er komið efst á lista þess flokks sem mælist stærstur í könnunum er næsta víst að andspyrnan við að hefja rannsókn verði mikil á þinginu að loknum kosningum.
Auðvitað er engin skylda að læra af mistökum sínum eða annarra. Sumir þurfa að gera mistök oftar en aðrir til að læra. Í bekknum sitja tossarnir aftast og gera sömu mistökin aftur og aftur, eða afrita mistök annarra. Er það lýsing á Íslendingum?