Bloggfærslur mánaðarins, október 2023
Þriðjudagur, 31. október 2023
Fjórða vaktin
Eitthvað hefur verið rætt um hina svokölluðu þriðju vakt. Hún er skilgreind sem svo á einum stað:
Í dag eru konur löngu komnar út á vinnumarkaðinn og karlmenn taka í auknum mæli þátt í heimilisstörfum og umönnun barna. Þetta er fyrsta og önnur vaktin. Það sem situr hins vegar eftir er hin svokallaða þriðja vakt eða hugræn byrði (e. mental load) sem snýr að öllu utanumhaldi og verkstjórn heimilisins. Þriðja vaktin er ólaunuð og oft ósýnileg ábyrgð, yfirumsjón og verkstýring á þeim störfum sem tilheyra annarri vaktinni. Þriðja vaktin felur í sér hugrænt skipulag, áætlanir, að leggja á minnið hverju þarf að sinna, hvenær og hvernig, muna eftir að muna. Verkefni sem eru að megninu til huglæg og ósýnileg öðrum en krefjast orku og tíma þess sem þeim sinnir.
Síðan er haldið áfram:
Erlendar rannsóknir sýna að þessi þriðja vakt er að mestu í höndum kvenna og hefur áhrif á atvinnuþátttöku þeirra og framgang í starfi, veldur streitu og álagi og stuðlar að kulnun. Er þetta verulegt áhyggjuefni, ekki síst fyrir vinnumarkaðinn og ber að taka alvarlega.
Þá höfum við það.
Þetta stórkostlega vandamál má auðvitað nýta til að selja bækur, eða eins og segir á einum stað í viðtali við höfund bókar (feitletrun mín):
Rannsóknir sýna að það er oft erfitt að greina á milli mæðrunar og að vera maki einhvers þegar kemur að þessu, segir Hulda [Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur]. Rannsóknir sýna líka að konur eru miklu meira í því að minna maka sinn og börnin á eitthvað heldur en að karlar eru að minna heimilisfólk á hluti, segir hún jafnframt.
Áfram er haldið:
Af frásögnum margra íslenskra kvenna að dæma upplifa þær eiginmenn sína sem eina af börnunum vegna þeirrar auknu hugrænu byrði sem fellur gjarnan á herðar þeirra, einna helst í gagnkynhneigðum samböndum.
Hulda telur mikilvægt að karlar opni augun fyrir þeirri skaðsemi sem þriðja vaktin veldur konum og þeir fari að beina sjónum sínum að þeirri duldu misskiptingu sem á sér stað á milli kynja. Hún segir fræðsluna til staðar en stór hluti vandamálsins séu rótgróin samfélagsleg viðhorf sem þurfi að breytast.
Karlar þurfa að stíga inn af fullum þunga, taka ábyrgð og gera það að eigin frumkvæði.
Jæja, gott og vel.
Ég hjó eftir einu - þessu með að konur þurfi í sífellu að vera minna á hitt og þetta.
Væntanlega að minna á að það vanti epli í ísskápinn, að ruslið sé fullt, að börnin þurfi nesti.
Er þetta ekki bara annað orð yfir tuð og lélega verkaskiptingu og skort á ábyrgðartilfinningu í umhverfi áminninga?
Nú má að mörgu leyti bera saman rekstur á heimili og rekstur á fyrirtæki, eða vinnu að verkefni innan fyrirtækis. Ef verksviðin eru skýr þá þarf ekki mikið meira en stöku stöðufundi til að allir viti hvar reksturinn stendur og hvaða upplýsingar þurfi að fara á milli. Ekki að verkefnastjóri sé að handstýra öllu heldur að samtalið eigi sér stað. Flestir reyna að tryggja að þeirra framlag sé tilbúið á réttum tíma, hlaupa undir bagga þegar það er hægt og huga að forgangsröðun.
Hendum inn í þessa blöndu konu sem finnst hún stanslaust þurfa að minna á hitt og þetta. Það sem gerist sjálfkrafa er að frumkvæði fólks er tekið úr sambandi. Til hvers að sýna frumkvæði þegar áminningin er handan við hornið? Fyrirmælin um hvað sé mikilvægast núna? Þetta er mögulega ein öflugasta leiðin til að slökkva á heilum fólks og frumkvæði.
Ég ætla að leyfa mér að búa til nýtt hugtak: Fjórðu vaktina.
Það felst í því að þurfa í sífellu að vera í stappi við manneskju á þriðju vaktinni um hvað er mikilvægast hverju sinni. Taka eilífa slagi. Hafa eigin skoðanir á því sem þarf að gera. Rífast og gera það duglega.
Þessi fjórða vakt tekur á og er mögulega ein af stærri ástæðum fyrir hárri skilnaðartíðni þar sem þriðja vaktin getur ekki hætt að minna á á eigin hugmyndir og gera lítið úr hugmyndum annarra um hvað þarf að gera og hvað þarf hreinlega ekki að vera í fyrsta forgangi. Þetta gerir fólk á fjórðu vaktinni andlega og líkamlega örmagna.
Ég ætti kannski að skrifa bók?
Hún gæti heitið: Fjórða vaktin - hvernig fólk þróar með sér ábyrgðartilfinningu í fjarveru strengjabrúðumeistara, en ekki með hjálp slíkra.
Forpantanir má senda á netfang mitt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 30. október 2023
Blaðamaður í krossferð gegn tjáningarfrelsinu
Í alvöru, blaðamaður Heimildarinnar? Í alvöru?
Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður hjá Heimildinni, hefur stefnt Páli Vilhjálmssyni og Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Reynt verður á hvort að Árvakur beri ábyrgð á ærumeiðandi ummælum á Moggablogginu.
Ef það verður niðurstaðan að fjölmiðlalögin eigi við gæti það haft þýðingu síðar meir fyrir Árvakur varðandi hvað fólk er að skrifa inn á þetta bloggsvæði, segir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Aðalsteins.
Sjaldan hefur klígja blaðamanns yfir tjáningarfrelsi óbreyttra borgara verið jafnáberandi. Og auðvitað yfir tjáningu annarra blaðamanna.
Nú hef ég skrifað á Moggabloggið síðan í apríl 2007 og hef alla tíð kunnað vel við að fá að gera það nokkuð óáreittur, og þá sérstaklega á veirutímum. Moggabloggið jafnast á við skoðanapistlana á visir.is, en án markvissrar ritskoðunar (einstaka Moggabloggari hefur verið bannaður en sem betur fer fáir).
Rétt eins og visir.is gerir stundum mat úr skoðanagreinum sínum þá gerir Morgunblaðið stundum mat úr Moggabloggum. Alls ekki oft, en stundum.
Rétt eins og fréttamenn dv.is vísa í aðsendar greinar í Morgunblaðinu eða á eigin svæði.
Rétt eins og fréttamenn RÚV ef einhver frægðarsólin tjáir sig á fjésbókinni.
DV hefur meira að gert sér mat úr Moggabloggum, og er þá mikið sagt.
Núna ætlar blaðamaður, sem hatar greinilega tjáningarfrelsið og telur að einhver lög eigi að setja því takmörk, að reyna draga fjölmiðil fyrir fætur hins opinbera og spyrða saman framhaldsskólakennara úti í bæ við starfsemi fjölmiðilsins.
Eins og aðförin að kennaranum sé ekki nóg?
Þetta er greinilega blaðamaður sem fór ekki út í fag sitt með það að markmiði að segja fréttir, fjalla um menn og málefni, kryfja málin og afhjúpa spillingu, og í leiðinni draga að sér lesendur og áskrifendur. Nei, hann fór út í fag sitt til að reyna þagga niður í öðrum. Öðrum fjölmiðlum. Einstaklingum úti í bæ. Framhaldsskólakennara, sem er vel á minnst með meiri lestur en fjölmiðill hins klígjugjarna blaðamanns, að mér skilst.
Ef þessi blaðamaður, þessi andstæðingur tjáningarfrelsisins, fær svo mikið sem hænufeti framgengt í vegferð sinni þá er illt í efni.
En þótt blaðamaðurinn haldi að Moggabloggið sé upphaf og endir tjáningar íslenskra borgara á netinu, án aðkomu ritstjóra, þá er það svo sannarlega ekki raunin. Ef honum tekst að lokka þungan fót yfirvalda til að traðka á Moggablogginu þá spretta tíu önnur upp, og hætt við að þau verði síður kurteis í garð fasista en nú er raunin.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 29. október 2023
Eru kennarar sameinaðir í að steikja hausinn á börnunum?
Um daginn tókst hópi félagsmanna í Bandalagi kennara á Norðausturlandi, BKNE, að losa sig við formann sinn. Í heiðarlegri frétt DV er réttilega komið auga á að ástæðan eru skrif og afstaða formannsins fráfarandi til heilaþvottar á börnum, í boði kennara. Ekkert um vanrækslu, nema síður sé:
Helga Dögg gerði margt gott í sínu starfi fyrir BKNE en ...
Lögfræðiálit gengu á milli en að lokum úrskurðað að allskyns lagatækni eins og fyrirvarar og fundarsköp skipti minni máli en að rétta manneskjan sé formaður á hverjum tíma. Og vissara að stytta kjörtímabilið úr tveimur árum í eitt til að tryggja að rétt manneskja sé formaður á hverjum tíma, að mati háværasta þrýstihópsins.
Hughreystandi væntanlega fyrir félagsstarfið í framtíðinni.
Foreldrar ættu líka að vera alsælir. Þeir sjá nú minnkandi varnir gegn því að kennarar geti hreinlega rústað tilfinningalífi barnanna í þeirra umsjón. Kennarar sem láta sér ekki duga að hunsa klámfræðslu ríkisvaldsins og byrja hreinlega að tjá sig opinberlega mega von á miklum vandræðum. Hlutverk kennara er jú ekki að kenna gagnrýna hugsun, að vega og meta, rannsaka og leita sannleikans. Nei, þeirra hlutverk er að mata, heilaþvo og hræða til hlýðni.
Engin lögfræðiálit eða aðrar lagatæknilegar flækjur geta stöðvað þessa flóðbylgju. Ef sonur þinn kemur heim úr skólanum á morgun og vill kalla sig Guðrúnu og fá hormóna til að handtaka kynþroska sinn þá skaltu gjöra svo vel og dansa í takt. Ef þú mætir unglingi þínum eða náfrænda af andstæðu kyni í sundklefa almenningslaugarinnar þá skaltu bara þegja og láta eins og ekkert sé. Eða flýja, með handklæðið í hraði vafið yfir kynfæri þín.
Ég er ekki að segja að við séum komin á háskabraut. Ég segi að skaðinn er nú þegar skeður og að verkefni framtíðarinnar verður að reyna lagfæra hann ef það er þá mögulegt úr þessu.
Þér er kannski alveg sama hvað eitthvað kennarasamband gerir til að þagga niður í kennurum, en vertu viss um að á þeim þunna ís drukkna fleiri en bara þú þegar hann brotnar.
Sunnudagur, 29. október 2023
Engar heimildir sóttvarnalæknis
Um daginn komst sóttvarnalæknir framhjá að þurfa að svara erfiðum spurningum með því að ásaka aðra um að vísa ekki í neinar heimildir. Einstaklingar úti í bæ þurfa sem sagt að vekja athygli fjölmenns, opinbers embættis á rannsóknum sem birtast í alþjóðlegum vísindaritum. Ég er viss um að við þeirri bón sóttvarnalæknis verði brugðist. Sóttvarnalæknir kynnir sér vonandi þessar rannsóknir og tekur afstöðu til þeirra í stað þess að neita tilvist þeirra og bulla um skort á heimildum.
En sóttvarnalæknir lét ekki duga að viðurkenna að hann væri ekki að vinna vinnuna sína og hóf sjálfur að fullyrða eitt og annað:
Bóluefnin eru mjög örugg og virka gegn veikindum, sérstaklega alvarlegum veikindum og andlátum í Covid. ...
Guðrún segir bóluefnin hafa verið gefin í milljörðum skammta og að því væri komið í ljós ef það væri stóraukning á fylgikvillum í tengslum við bóluefnin. ...
Guðrún segir bóluefnin hafa verið rannsökuð til hlítar. ...
Hjartabólgur og gollurshúsbólgur í hjarta þar á meðal. En voru mjög fátíðar og miklu sjaldgæfari heldur en þessir sömu fylgikvillar eftir Covid-sýkinguna. ...
Hún nefnir að eftir Covid-sýkingu hafi almennt verið sex sinnum líklegra að fá hjartabólgur saman borið við gjöf með bóluefninu sjálfu. ...
En nú erum við komin í það að það er verið að bólusetja svona afmarkaðri hópa þar sem að flestir aðrir eru búnir að fá bólusetningu sem er talin duga ...
Í örlæti mínu ætlaði ég að skoða hvað liggur að baki þessum fullyrðingum sóttvarnalæknis. Ég meina, fjölmenn opinber stjórnsýsla hlýtur nú að taka saman gögnin sem stefna embættisins er mótuð út frá, ekki satt? Sérstaklega þegar er búið að gera embættið afturreka á svo marga vegu, hefði ég haldið.
En ég gríp í tómt. Gamla heimasíða landlæknisembættisins hefur verið nútímavædd, þ.e. hreinsuð í bæði útliti og innihaldi (hreinsað út þar). Covid.is er ekki uppfærð lengur og bendir á hina hreinsuðu heimasíðu landlæknisembættisins. Ef stefna embættisins, með tenglum sem vísa í heimildir, er einhvers staðar aðgengileg sem skrifaður texti (frekar en fullyrðingar í drottningaviðtölum) þá er djúpt á hana. Mér tekst ekki að finna hana
Sóttvarnalæknir vísar með öðrum orðum ekki í heimildir og reiðir sig á gamlar og misvísandi rannsóknir og fullyrðingar framleiðenda sem er fyrir löngu búið að fleygja í ruslatunnuna. Nú fyrir utan að ræða ekki það sem margir hafa mestar áhyggjur af: Gríðarlega mörg umframdauðsföll sem mér sýnist yfirvöld ætla að skrifa á veiruna sem er fyrir löngu orðin að kvefi, a.m.k. fyrir þá sem hafa ekki látið dæla mRNA-efninu í sig (önnur bóluefni eru sennilega skárri).
Sóttvarnalækni má því vísa á bug með sömu rökum og hann sjálfur vísar ábendingum á bug: Engar heimildir!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 28. október 2023
Sóttvarnalæknirinn sem ekkert veit
Um daginn birtist grein í Morgunblaðinu (endurbirt á Krossgötum) eftir Helgu Birgisdóttur, hjúkrunarfræðing. Þar var ýmsu haldið fram og þótt ekki hafi fylgt með heimildir er auðvelt að komast að því að ekki er um neina fölsun að ræða:
Svo komu sprauturnar, á ljóshraða, og fólki á öllum aldri (fóstur meðtalin) var hóað saman í höllina. Þær reyndust ekki bara gagnslausar heldur dauðans alvara fyrir marga. Sumarið 2022 voru umframdauðsföll Íslendinga um 50% þrátt fyrir að stærsti hluti þjóðarinnar hefði fengið stungu og fleiri en eina. Fyrir sprautur voru umframdauðsföll fá ef nokkur og meðalaldur látinna svipaður og í venjulegu árferði. Um síðustu áramót trónuðu Íslendingar aftur á toppnum með dauðsföll í Evrópu. Vísindafólk á nýlegri ráðstefnu á Íslandi benti á að 17.000.000 dauðsföll væru rakin til sprautnanna, og talan hækkar hratt.
Einnig:
Ég spyr ykkur hjúkrunarfræðinga og ljósmæður hvort einhver umræða sé í gangi varðandi 80% aukningu á andvana fæðingum á Íslandi árið 2021, eftir að konur á meðgöngu og með börn á brjósti voru hvattar til að fara í sprautur? 100% aukning var á andlátum barna innan eins árs aldur þetta sama ár (sjá tölur Hagstofunnar). Er umræða í gangi um þær þúsundir kvenna sem þjást vegna verkja og blæðingatruflana eftir sprautur? Margt bendir til að sprauturnar geti valdið ófrjósemi. Er umræða í gangi um stóraukningu á krabbameinum, lömunum, hjartabólgum, fósturlátum, blóðtöppum og öðrum alvarlegum heilsubrestum? Ég vona að svo sé.
Þetta eru stór orð. Hvað segir sóttvarnalæknir, aðspurður um þessa grein?
Um flest: Ekkert. En um sumt: Ég veit ekki neitt!
Úr alveg hreint stórkostlegu viðtali við sóttvarnalækni:
Þetta á ekki við rök að styðjast. Bóluefnin eru mjög örugg og virka gegn veikindum, sérstaklega alvarlegum veikindum og andlátum í Covid. Það eru engin bóluefni sem valda krabbameinum. Og þar að auki veit ég ekki hvaðan þetta kemur, að krabbamein hafi aukist. Það eru upplýsingar á síðu Krabbameinsfélagsins, þar eru töflur og mælaborð, og þar er hægt að skoða tíðni krabbameina hér á Íslandi aftur í tímann. Og ef það er skoðað yfir Covid-tímabilið og einhver ár þar á eftir, miðað við íbúafjölda auðvitað, þá er ekki aukning þar á. Þar að auki hafa bóluefnin ekki verið tengd myndun krabbameina, hvorki hér né annars staðar. Þannig þetta á ekki við rök að styðjast og það er ekki vísað í neinar heimildir í þessari grein, segir sóttvarnalæknir.
Rannsóknir um mögulega tengingu sprautu við krabbamein sem brýst út á ógnarhraða eru skiljanlega ekki langt á veg komnar en þó finnast tilraunir lyfjafyrirtækis á músum sem ætti að kveikja á öllum stóru viðvörunarljósunum (nánar rædd hérna):
Músatilfelli okkar bætast við fyrri klínískar skýrslur um þróun illkynja eitilæxla í kjölfar nýstárlegrar mRNA COVID-19 bólusetningar, þó enn sé erfitt að sýna fram á bein orsakasamhengi. Sérstakrar árvekni er krafist, með samviskusamlegri skýrslutöku um sambærileg mál og frekari rannsóknir á verkunarmáta sem skýrir fyrrnefnd tengsl.
**********
Our murine case adds to previous clinical reports on malignant lymphoma development following novel mRNA COVID-19 vaccination, although a demonstration of direct causality remains difficult. Extra vigilance is required, with conscientious reporting of similar cases and a further investigation of the mechanisms of action explaining the aforementioned association.
Þetta rímar saman við góða greiningu á nýlega útgefinni dánarmeinaskrá á Íslandi sem ég rakst á á fjésinu:
Dánarmeinaskrá landlæknis fyrir árið 2022 endurspeglar hliðstæða þróun hér á landi. Dauðsföllum af völdum illkynja æxla fjölgaði um 9% á árinu. Illkynja æxli í blöðruhálskirtli dró 21% fleiri til dauða en á fyrra ári, eitilæxli 17%, mergæxli 40%, æxli í brisi 23% og dauðsföllum af völdum hvítblæðis fjölgaði um 33% frá fyrra ári.
En gott og vel, sóttvarnalæknir kannast ekki við neinar rannsóknir frekar en venjulega, né við möguleg tengsl á einu við annað og hugsanleg hættumerki. Hann ruglar þess í stað efasemdum gegn mRNA-lyfjatækninni og hefðbundnum bóluefnum þar sem veikluð veira er send í líkamann til að gefa líkamanum tækifæri til að þróa varnir gegn hraustum veirum. Sem er bara allt annar hlutur.
Þetta er gamalt bragð: Ertu á móti kóvít-sprautunum sem breyta hegðun erfðaefnis í líkama þínum og setja af stað fjöldaframleiðslu á broddpróteinum sem leggjast á líffæri þín? Þá hlýtur þú að vera á móti öllum bóluefnum, sama hvernig þau eru framleidd!
Blaðamanni mistekst líka í starfi sínu að grípa slíka útúrsnúninga og spyrja hvað sóttvarnalæknir sé eiginlega að gera í vinnunni. Að lesa rannsóknir um flókin mál? Nei. Að bergmála markaðsefni lyfjafyrirtækja? Já, heldur betur.
Sóttvarnalæknir gerir þó betur en að sýna vanhæfni þegar hann hreinlega lýgur blákalt (eins og aðrir slíkir læknar í Bandaríkjunum og víðar), svo sem um að hjartavandamál ungra manna hafi verið meiri vegna veiru en vegna sprautu. Þetta er hrein og klár haugalygi sem hefur lifað alveg ótrúlega lengi og sóttvarnalæknir hlýtur að vita það (og veit um leið að blaðamaður veit það ekki).
Það er ekki furðulegt að sóttvarnalæknir þori ekki í beinar rökræður við þá sem lesa rannsóknir, fylgjast með og greina gögnin. Nei, hann mætir bara í drottningarviðtöl með blaðamönnum sem hafa heldur ekki fyrir því að kynna sér málin.
En þetta hefur lengið legið fyrir og fyrir löngu er ég hættur að taka mark á þessum stofnanavæddu samsæriskenningum yfirvalda.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 26. október 2023
Fíllinn í barnaherberginu
Athyglisverð frétt í Ríkisútvarpi Útvaldra Viðhorfa (RÚV) segir frá því að á Íslandi sé að verða til skortur á nýfæddum íslenskum börnum:
Í fyrra fæddust um 4.400 börn á Íslandi, mun færri en í hitteðfyrra þegar þau voru næstum 4.900. Ekki hefur munað svo miklu á milli ára frá því undir miðja 19. öld. Þó að óvenjumörg börn hafi fæðst 2021 hefur frjósemi aldrei verið minni en 2022.
Skýringin? Eitthvað loðið svar um sveiflur í viðhorfum.
Mun líklegri skýringar:
- Sprautur veirutíma hafa dregið úr frjósemi eða möguleikum kvenmanna til að klára óléttuna
- Menn leggja ekki lengur í þá óvissuferð sem felst í því að feðra barn og vera svo varpað á dyr og gerðir að bláfátækum meðlagsgreiðendum í kerfi sem er skítsama um hlutverk feðra í lífi barna
- Álagið á barnafólk vegna endalausra biðlista, starfsdaga og stækkandi frítímabila um leið og tilraun er gerð til að vinna nokkuð fulla vinnuviku er að verða barnlausu fólki ljóst
- Er ekki hamfarahlýnun í gangi og slæmt fyrir loftslagið að bæta við fólki?
- Ef það tekst að koma ungabarni á legg og inn í skólakerfið þá tekur við það þunga verkefni að troða því inn í fast mót og þegar það mistekst: Skrá það á biðlista svo það geti fengið greiningu og fái í kjölfarið róandi lyf. Spennandi tilhugsun, ekki satt?
- Það er dýrt að ala upp barn og halda uppi sífellt stækkandi opinberum rekstri. Af hverju ekki að bara sleppa því? Ég hef séð unga fólkið lýsa því yfir að það sé mikilvægt að eiga mikið félagslíf í stuttri vinnuviku.
Ég er eflaust að gleyma einhverju augljósu en eitt blasir við: Viðmælandi RÚV, sagnfræðingur og forseti hugvísindadeildar Háskóla Íslands, býður ekki upp á neitt nothæft.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 26. október 2023
Núll komma sex prósent niðurskurður ratar í fréttirnar
Tveimur starfsmönnum Vegagerðarinnar var sagt upp í gær og voru uppsagnirnar liður í yfirstandandi hagræðingaraðgerðum að sögn Bergþóru Þorkelsdóttur forstjóra.
Þetta þykir fréttnæmt.
Hjá Vegagerðinni starfa um 360 manns og fækkun um tvo svarar til 0,6% niðurskurðar. Sem sagt, ekki fréttnæmt að neinu leyti.
Blaðamaður er samt fullur samúðar. Forstjórinn fær þarna að tala um að það sé verið að fylgja fyrirmælum og þau verði núna bara að reyna að halda áfram. Já, það ætti nú að takast held ég.
Ég hef unnið fyrir fyrirtæki sem hafa þurft að skera starfsmannafjöldann niður um 20-30% á einu bretti og alltaf gekk verksmiðjan og viðskiptavinir fengu sitt. En það er auðvitað lífið í raunhagkerfinu, ekki því opinbera.
Annars er ég með hugmynd fyrir blaðamenn sem hafa lítið fyrir stafni: Fylgjast einhvern veginn vel með uppsögnum innan hins opinbera (þau gögn hljóta að vera til) og skrifa svo stórar fyrirsagnir um að viðkomandi opinbera stofnun þurfi nú að bara að reyna að halda áfram. Engin hlutföll eru hérna nógu lítil.
Auðvitað fyllir hið opinbera hratt upp í slíkar holur. Í stað eins koma tveir ef rétt er haldið á spöðunum. En á meðan þarf bara að reyna að halda áfram á meðan ráðningarferlið er í gangi.
Að opinber stofnun sé að þenjast út eins og blaðra og fyllast af lofti en ekki innihaldi er auðvitað ekki fréttnæmt eins og við vitum.
Takk, fjölmiðlar, fyrir að standa vaktina fyrir hið opinbera. Enn og aftur.
Tveimur sagt upp hjá Vegagerðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 25. október 2023
Kvár
Í tengslum við verkfall allra-nema-gagnkynhneigðra-karlmanna á Íslandi í dag hefur orðið kvár legið svolítið á huga mínum.
Byrjun á orðabókinni, um orðið kvár:
ókyngreint nafnorð um fullvaxta manneskju
Aðrar skilgreiningar eru líka í boði, svo sem þessi:
fólk sem flokkast sem kynsegin/annað
Kynsegin/annað? Hvað er að vera kynsegin? Förum aftur í orðabókina:
sem skilgreinir sig utan kynjatvíhyggju, ekki bara sem karlkyns eða kvenkyns
Hvað er þá annað? Það veit enginn. Kannski bara það sem manneskju dettur í hug þann daginn (samanber mynd).
En gott og vel. Í dag fór fram á Íslandi verkfall kvenna og kvára. Fyrir utan að létta umferðina á háannatíma fólst í þessu, fyrir utan óendanlegan kröfulista, samkvæmt yfirlýsingu (feitletrun mín):
Allar konur og öll kvár sem það geta eiga að leggja niður störf þann 24. október; ekki mæta til vinnu, ekki annast börnin s.s. gefa þeim mat eða smyrja nesti né sinna veikum fjölskyldumeðlimum heldur fá karlkyns fjölskyldumeðlim til að standa vaktina. Sleppa á öllu sem gæti talist til starfa hvort sem er átt við launaða vinnu, eða ólaunaða líkt og umönnun barna, sinna heimilinu eða þriðju vaktina svokölluðu.
Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf.
Það er nú það. Furðulegt að yfirvinna borgi sig, eða það að taka á sig hættuleg störf eða mikla ábyrgð sem kostar félagslífið mikið, en hvað um það.
Núna er allt þetta gengið yfir og verður fljótlega gleymt og grafið og fer á listann yfir alla hina dagana þar sem svokallaðar kvennastéttir (stéttir sem laða að sér kvenfólk vegna fyrirsjáanleika og nærveru við fólk frekar en hluti) efna til starfsdaga og annað gott sem skilja vinnandi foreldra eftir í örvinglun því þá þarf að sameina vinnu og barnatíma, og hvorugt verður sérstaklega gott.
Ég er alveg handviss um að ef atvinnurekendur koma auga á ódýrt vinnuafl sem framleiðir það sama, og tekur sömu áhættur, og dýrt vinnuafl að þá stökkvi þeir til og sópi það upp. Ódýr forstjóri? Já takk! Ódýr iðnaðarmaður? Já takk!
En að því sem ég vildi ræða: Kvárin.
Þau fóru víst í verkfall. Kvárin eru sem sagt allir nema gagnkynhneigðir einstaklingar, og í hópi með konum allir nema gagnkynhneigðir karlmenn.
Mér skilst á forsætisráðherra Íslands, sem lagði niður vinnu í dag fyrir utan að svara tölvupóstum, að það hafi gengið bara ágætlega að reka landið án kvenna og kvára.
... það voru karlmennirnir sem tóku vaktina og þeir gerðu það bara ágætlega.
Eru þetta ekki hættuleg skilaboð? Að verkfall kvenna og kvára hafi í raun ekki haft neinar afleiðingar fyrir stjórn á heilu landi? Fyrir utan að létta umferðina?
Þetta hlýtur að vera misskilningur. Í minni vinnu færi allt á hlðina ef kvenmenn (og kvár, sem ég hef reyndar ekki hitt enn þann dag í dag) einfaldlega hætta að vinna í svo mikið sem einn dag. Sennilega afleiðing mikils samstarfs þvert á kyn, húðlit, trúarbrögð og hvaðeina.
Mér finnst að það sem standi eftir er bara enn einn starfsdagur í skóla eða dagur þar sem vinnandi fólk fær ekki að vinna af einhverjum ástæðum (t.d. vegna umferðartafa eða heimsfaraldurs). Gleymt og grafið um leið og venjulegt líf getur hafist á ný.
Því miður, því það er ekkert nema gott að benda á hvað ofbeldi er hræðilegt og hvað mismunun sé það líka. En forréttindafólk í ríki sem mælist best allra í heimi á öllum góðum mælikvörðum valdi að leggja áherslu á peninga. Að vilja fá meira fyrir minna.
Vonandi ekki arfleifð kvenfólks nútímans í sögubókunum, en ekki útilokað.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 24. október 2023
Þar sem Ísraelar og Palestínumenn vinna saman
Hryðjuverkaárás palestínskra hryðjuverkamanna og ofsafengin viðbrögð ísraelska hersins í kjölfarið hafa hreyft við taugum margra. Hraunað er yfir Gyðinga og Araba. Ég hef séð ummæli um Gyðinga eftir Íslendinga sem sjálfur Hitler hefði geta verið stoltur af. Ég hef séð líka séð ljót ummæli um Palestínumenn þótt flestir þeirra á Gasa-svæðinu séu ekkert alltof hrifnir af yfirvöldum sínum og yfirlýsingum þeirra. Við flýttum okkur að hoppa í skotgrafirnar í svart-hvítum heimi þar sem heilu þjóðirnar - ekki bara stjórnmála- og hermenn þeirra heldur almennir borgarar, konur og börn - eru nú eitthvað: Vondar, hræðilegar, kúgarar.
Ekki yfirvöldin, heldur borgararnir.
Það var því óvænt ánægja að rekast á frétt DW um tónlistarskóla í Berlín þar sem nemendur frá 27 ríkjum, þar á meðal Palestínu og Ísrael, læra að tjá sig opinskátt um tilfinningar sínar og upplifun og setjast svo niður og búa til tónlist, saman.
Nemendurnir eru ekki endilega sammála um erfið mál en þeir læra á samtalið, og það að virða skoðanir annarra þótt þær séu á öndverðum meiði við eigin skoðanir, eða eins og segir í fréttinni:
Meðal túlkunar nemenda á atburðunum benti Barenboim á að palestínskir námsmenn hefðu tilhneigingu til að líta á 7. október sem hluta af stærra sögulegu samhengi, en fyrir Ísraela hafa hryðjuverkaárásir Hamas breytt öllu. Þetta er aðeins eitt dæmi, sagði hann, sem sýnir hvernig sjónarhornin á sömu atburði geta verið mismunandi. Og samt held ég að við séum öll sammála um að við viljum vera hér áfram.
**********
Among the students´ interpretation of the events, Barenboim noted that Palestinian students tend to see October 7 as part of a larger historical context, whereas for the Israelis, the Hamas terrorist attacks have changed everything. This is just one example, he said, that shows how the perspectives on the same events can differ. "And yet I think we all agree that we want to stay here."
Ef við gætum nú bara lært að gera eitthvað svipað í stað þess að umbreytast á einni nóttu í Litla-Hitler eða Litla-Múhameð og óska heilu þjóðunum dauða.
Kannski leynist ástæðan fyrir ástandi samfélagsumræðunnar í þessum hluta úr frétt DW:
Reyndar hafa nemendur eitt sem sameinar þá: tónlist. Verkin sem þeir eru að æfa bjóða upp á eitthvað sem þeir geta einbeitt sér að, eitthvað sem þeir geta unnið saman; svo ég held að daglegt starf okkar hafi leitt til samheldni, sagði Rapp.
**********
Indeed, the students have one thing that unites them: music. The pieces they are practicing offer "something they can concentrate on, something they can work on together; so I think our daily work has led to a form of cohesion," said Rapp.
Kannski við séum einfaldlega eirðarlaus. Vinnuvikan er stutt, áhugamálin bundin við skjá og samfélagsmiðlarnir orðnir að vímuefni sem gerir fólk vitstola.
Hvernig væri að búa til tónlist í staðinn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 23. október 2023
Woke-hreyfingin étur börnin sín
Samskipti við woke-fólkið hafa sitt afþreyingargildi en enn meiri afþreyingu má oft fá úr samskiptum woke-liða við hvern annan.
Þeir keppa sín á milli í því hver er hollasti liðsmaður seinustu þvælunnar, en fylgjast líka vel með því hvort einhver misstígi sig ekki: Flaggi ekki nýjasta fánanum. Taki ekki undir nýjustu líffræðina. Sé ekki nógu hræddur við manngerða hamfarahlýnun. Sýni efasemdir gagnvart framleiðslu á grófu klámi fyrir lítil börn.
Og eitt nýjasta dæmið: Karlmaður sem þráir ekkert heitar en ást woke-liða gerði óvart eitthvað sem treður á tær róttæku femínistanna að baki kvennaskrópdeginum á morgun.
Allur þessi söguþráður rataði auðvitað í fjölmiðla en megnið af atgangi woke-liða hvern á annan gerir það ekki. Ég sé honum deilt hér og þar í minni hópum. En skemmtanagildið er það sama, hvort sem blaðamenn taka eftir eða ekki.
Það er greinilega erfitt að vera raunverulega sanntrúaður í þessum trúarbrögðum og ótrúlegt að menn nenni ennþá að reyna, en takk fyrir afþreyinguna!
Ég gerði mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)