Bless, Ísland

Enn einu sinni ætlar vinstristjórn að reyna halda út í heilt kjörtímabil. Vonandi mistekst það, eins og fyrri tilraunir til slíks.

Íslendingar mega búast við að eftirfarandi kosningaloforð þessarar stjórnar komist til framkvæmda, en önnur ekki:

  • Hærri skattar á meðaltekjur og háar tekjur
  • Hærri skattar á fjármagnstekjur og hagnað fyrirtækja (sem er að vísu varla til staðar neins staðar í dag)
  • Aukin ríkisútgjöld til hinna ýmsu afkima ríkisvaldsins
  • Báðir flokkar eru óhræddir við að skuldsetja ríkisvaldið (skattgreiðendur)
  • Alls kyns boð og bönn, t.d. á fækkun fata gegn greiðslu, eru mjög ofarlega á lista þessara flokka, meira að segja á tímum efnahagskreppu þar sem margt gæti talist mikilvægara
  • Auðlindir Íslands séu færðar úr eigu einstaklinga og í hendur ráðherra, sem hafa vitaskuld tröllatrú á stjórnunarhæfileikum sínum, þótt þeir hafi ekki látið reyna á þá í atvinnulífinu

Ég vona að stjórnin springi út af ágreiningu um álver, Drekasvæðið, ESB og almennt um allt sem situr eins og gjá á milli tveggja flokka sem eiga það eitt sameiginlegt að vilja hækka skatta, og jú halda völdum.

Bless, Ísland. Í bili.


mbl.is Jóhanna: Get brosað breitt ef þetta er niðurstaðan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiðar Birnir

Það hefur aldrei verið hrein vinstirstjórn hér áður.  Því er ekkert til fyrirstöðu að það takist að sitja heilt kjörtímabil.

  • Hærri skattar á meðaltekjur og háar tekjur (er eitt af því sem nauðsynlegt er, hvort sem okkur líkar betur eða verr, því miður.  Er eitthvað að því að þeir sem betur hafa það hlaupi undir bagga með þeim sem minna mega sín?)
  • Hærri skattar á fjármagnstekjur og hagnað fyrirtækja (sem er að vísu varla til staðar neins staðar í dag)(það þurfa allir að leggjast á eitt til að koma okkur úr þessum vanda sem við erum í núna)
  • Aukin ríkisútgjöld til hinna ýmsu afkima ríkisvaldsins (þú minnist ekki á að stefnt er að taka til þar sem það er hægt.  Utanríkisþjónustunni, varnarmálaskrifstofu... svo eitthvað sé nefnt)
  • Báðir flokkar eru óhræddir við að skuldsetja ríkisvaldið (skattgreiðendur) (Þess gerist ekki þörf.  það er búið að því)
  • Alls kyns boð og bönn, t.d. á fækkun fata gegn greiðslu, eru mjög ofarlega á lista þessara flokka, meira að segja á tímum efnahagskreppu þar sem margt gæti talist mikilvægara (Þetta er mjög djúpt hjá þér, alveg til fyrirmyndar)
  • Auðlindir Íslands séu færðar úr eigu einstaklinga og í hendur ráðherra, sem hafa vitaskuld tröllatrú á stjórnunarhæfileikum sínum, þótt þeir hafi ekki látið reyna á þá í atvinnulífin. (Að sjálfsögðu.  Auðlindir Íslands eru sameign þjóðarinnar.)

Heiðar Birnir, 25.4.2009 kl. 23:11

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Heiðar,

Þú virðist telja að vont ástand á Íslandi geti ekki orðið verra, og þegar t.d. skuldir ríkisins verða auknar þá sé það allt í lagi - þær voru jú háar fyrir!

Þú hefur sennilega hugmyndafræðilegar ástæður fyrir því að halda þessu fram. En raunveruleg rök eitthvað minna.

Geir Ágústsson, 26.4.2009 kl. 09:58

3 Smámynd: Einar Jón

Er ekki hugsanlegt að vandamálið sé frekar að allar vinstristjórnir hingað til hafa verið 3-4 flokka stjórn, sem eru í eðli sínu óstöðugri en tveggja flokka stjórnir?

Hafa sjálfsstæðismenn oft náð að halda saman 3-4 flokka stjórn í heilt kjörtímabil?

Einar Jón, 26.4.2009 kl. 17:01

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Auðvitað er erfiðara að halda fjölflokkastjórn saman en tveggja flokka stjórn. Samfylkingin þurfi oft að skamma Framsókn á 80 daga ferli seinustu ríkisstjórnar til að halda þeim á mottunni.

Vefþjóðviljinn spáir því að VG og Samfylkingin geri allt til að halda völdum, sama hvað djúpstæðum ágreiningi um mörg lykilmál líður (þá sérstaklega ESB, olíuvinnsla og stóriðja). Er á sama máli. Að vonast eftir að stjórnin springi er því bjartsýni sem ég leyfi mér samt að halda í.

Geir Ágústsson, 26.4.2009 kl. 17:20

5 identicon

Langaði bara að benda á það að frá árinu 1995, í stjórnartíð hægrimanna, jókst skattbyrði á alla landsmenn, að undanþegnum 10% tekjuhæsta hópnum.

Ein fyrstu viðbrögð stjórnarinnar í haust var að hækka skatta á áfengi og tóbak. Þann 1.janúar var tekjuskattur hækkaður (þarna var Sjálfstæðisflokkur enn þá með fjármálaráðuneytið).

Það er þess vegna svo mikið propaganda þegar menn tala um aukna skattpíningu vinstrimanna. Þetta á við alla stjórnmálaflokka.

Sjáum til hvort ríkisútgjöld eigi eftir að aukast. Með 150 milljarða niðurskurði þykir mér líklegt að svo verði ekki. Sem væri þá í fyrsta skiptið síðan.... ég veit ekki hvenær en það er LANGT síðan. Því það er jú önnur staðreynd að í stjórnartíð sjálfstæðisflokksins hefur ríkið blásið út og stækkað með hverju árinu. Þetta hafa t.d. margir frjálshyggjumenn bent á og gagnrýnt.

Að lokum þá myndi ég persónulega alveg sofna á kvöldin þó svo að fjármagnstekjuskattur á einstaklinga myndi hækka. Ég sé engin góð rök fyrir því að menn í eigin rekstri borgi lægri skatta af sínum tekjum en aðrir.

Andri Valur (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband