Fimmtudagur, 21. mars 2024
Hvar er hinn íslenski Milei?
Í seinustu forsetakosningum kusu Argentínumenn yfir sig róttækan frjálshyggjumann, með yfirburðum. Þessi maður, Milei, lofaði með eins skýrum hætti og hægt er að hann ætlaði sér að vinda ofan af verðbólgunni, skuldasöfnuninni og spillingunni. Hann mætti á kosningafundi með vélsög til að skýra mál sitt.
Eftir að hann komst til valda hefur hann staðið við orð sín. Fjöldi ráðuneyta var helmingaður. Ríkisreknum fjölmiðli lokað. Falskt gengi gjaldmiðilsins fært nær svartamarkaðsverði hans.
Hann lofaði því hreinlega að við tæki mjög erfitt tímabil en að eftir það tæki við gott tímabil.
Núna er erfiða tímabilið að ganga yfir. Þingin eru að standa í vegi fyrir áformum hans. Dómstólar eiga við tilskipanir hans. Þessu var auðvitað búið að spá enda ekkert minna um vinstrimenn í Argentínu en annars staðar og þótt embætti forseta Argentínu sé öflugt þá eru aðrir angar ríkisvaldsins líka með áhrif.
Vangaveltur margra voru í þá áttina að það myndi takast að hægja á áformum forsetans nægilega mikið til að þau bæru ekki árangur, og að kjósendur snéru aftur til hefðbundinna sósíalista.
Núna eru 100 dagar liðnir af valdatíma Milei. Mótmæli eru mörg og stór. Milei er sakaður um að vilja útrýma samfélaginu, hvorki meira né minna.
Það gæti því komið mörgum á óvart að þrátt fyrir allt þetta þá séu vinsældir hans nokkuð stöðugar:
Við embættistöku tilkynnti Milei að ríkiskassi Argentínu væri tómur og að það væru engir peningar til. Samt hefur stuðningur við forsetann verið tiltölulega stöðugur þrátt fyrir harðar niðurskurðaraðgerðir hans og aukna fátækt í landinu. Nú síðast hafa skoðanakannanir hins vegar sýnt lítilsháttar lækkun á fylgi. Sem sagt, Milei hefur notið góðs af því að vara við og standa við loforð sitt um erfitt fyrsta ár - helmingur íbúa Argentínu er sannfærður um að fórna þurfi til að koma landinu á réttan kjöl. Hinn helmingurinn hefur hins vegar miklar áhyggjur af þessari þróun.
**********
Upon taking office, Milei announced Argentina's state coffers were empty and that "there is no money." Yet support for the president has been comparatively stable despite his harsh austerity measures and the country's rising poverty rate. Most recently, however, opinion polls have shown a slight dip in approval ratings. That said, Milei has benefited from warning about and delivering on his promise of a "difficult first year" half of Argentina's population is convinced that sacrifices must be made to get the country back on track. The other half, however, is deeply worried by these developments.
Það er sem sagt ennþá von fyrir Argentínu.
Núna vantar eins og einn Milei á Íslandi. Ekki í embætti forseta heldur forsætisráðherra, í ríkisstjórn sem lifir í raunhagkerfinu. Slíkur forsætisráðherra leggur til að loka RÚV, skera niður bætur, draga úr rýrnun kaupmáttar, fækka ráðuneytum og svona mætti lengi telja. Þegar skuldasöfnunin hefur verið stöðvuð, sem tók Milei einn mánuð, þá er hægt að safna í sjóði og nota til að fjármagna skattalækkanir, innviðafjárfestingar og velferð.
Á Íslandi ríkir öfugt ástand: Lán eru greidd með nýjum lánum á meðan nýjum útgjöldum er lofað í sífellu. Fullur unglingur á útihátíð með greiðslukort foreldra sinna gæti státað af betri fjármálastjórn.
Kannski líta núna einhverjir til Milei og hans fyrstu 100 daga í embætti og hugsa með sér að ef kjósendur fá að heyra sannleikann að þá sætti þeir sig við að herða aðeins beltið sem valkost vil að fljúga fram af bjargbrún. Sjáum hvað setur.
Að lokum nokkrir leiðinlegir fyrirvarar:
Nei, ég er ekki sammála öllu sem Milei boðar.
Nei, ég er ekki alveg án athugasemda við málflutning hans og embættisverk.
Nei, ég er ekki að safna í skegg eins og Milei.
![]() |
Niðurskurður ekki í kortunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Facebook
Athugasemdir
Hérna? Nei...
Útlendir striðsherrar og hryðjuverkasamtök eiga mjög greiðan aðgan að íslenska ríkiskassanum, sýnist mér.
Sífellt bætast fleiri vinir á jötuna, menn sem hefpu annars unnið alv0ru vinnu. Líka menn sem koma frá útlöndum og hafa aldrei unnið né munu nokkurntíma vinna.
Þetta fer fram af brúninni, og þá kj´soum við eitthver lið sem vinnur hörðum höndum við að grafa okkur jafnvel enn dýpra, alveg eins og seinast.
Ásgrímur Hartmannsson, 21.3.2024 kl. 20:00
Íslenzka stjórnmálakerfið er svolítið sérstakt. Við höfum einn flokk sem gnæfir yfir aðra hægramegin, Sjálfstæðisflokkinn. Samt er hann svindl-hægriflokkur núorðið segja þeir sem hafa ekta tilfinningu fyrir fyrrverandi þjóðfélagsmynstri. Þessi fyrrum risavaxni hægriflokkur sem tók næstum 50% allra kjósenda er nú ekta krataflokkur með frjálshyggjukeim. Enda ekki skrýtið að hann skreppur saman.
Málið er að kjósendur eru ekki vel stjórnmálalæsir. Þeir halda að Sjálfstæðisflokkurinn sé enn hægriflokkur og kjósa hann því, úr því að ráðherrar hans tala þannig fyrir kosningar.
En merkilegur pistill, og ef einhver eins og Milei kæmi hér fram gæti hann slegið í gegn.
Á Íslandi er þó enn eitt syndrómið, að fólk þarf að vera þjóðfrægt til að ná árangri í pólitík helzt, og svo ríkt og af fremur fínum ættum. Einnig er ekki verra að fólk sé RÚV stjörnur, sem birtast á skjánum reglulega. Þetta eru gamaldags draugar sem þjóðin þarf að losna við.
Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn líkjast honum kannski helzt. Þó ekki, því Sigmundur er greinilega ekta Framsóknarmaður af gamla skólanum, frekar en ekta Sjálfstæðismaður.
Já... góð spurning... kemur einhver eins og Milei fram á Íslandi?
Ingólfur Sigurðsson, 21.3.2024 kl. 23:51
Ingólfur,
Í raun er Milei ekki að gera neitt sérstakt. Það eru víst þættir núna á Íslandi sem fjalla um vel launað fólk sem er í skuldasúpu og útgjaldaorgíu (svipaðir þættir í Danmörku heita Luksusfælden, eða lúxusgildran).
Þessu fólki er sagt að selja svolítið af eignum, minnka við sig útgjöld og byrja að borga niður lán. Mjög skynsamlegt allt saman. Á örfáum mánuðum fer fólk að sjá ljósið án þess að detta niður dautt úr hungri eða kulda.
Svipaða skynsemi þarf á Alþingi.
Geir Ágústsson, 22.3.2024 kl. 07:06
Það er víst lítil von um að alþingismenn sýni sparnað þegar formaður sjálfstæðisflokksins vill endilega spreða miljörðum úr ríkiskassanum til stríðsreksturs í Úkraínu og til Hamas í gegnum UNRWA
Grímur Kjartansson, 22.3.2024 kl. 07:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.