Leiðir til að brjóta Vesturlönd

Eftir lestur á lítilli frétt um hvernig Kínverjar eru mögulega að reyna knésetja Vesturlönd (satt eða ekki) varð mér hugsað svolítið til leiða til að knésetja Vesturlönd. Kannski er ég bara að endurtaka uppskrift Kínverja, ef slík er til, en mín áætlun yrði mögulega á þessa leið:

Að fá Vesturlandabúa til að hata sjálfa sig: Þeir eru jú gamlir nýlenduherrar og sitja á miklum auð. Þeir hljóta því að mega skammast sín og telja að auðsköpun þeirra sé byggð á vinnu þræla og kúgaðra í sólbjartari heimshlutum. Hvíta skinnið er táknmynd þess og þar með alls sem er að í heiminum.

Að fá Vesturlandabúa til að ráðast á hvern annan: Það gerum við vissulega. Sumir vilja gelda börn og aðrir ekki. Við tökum afstöðu í átökum í fjarlægum heimshornum og sendum vopn og seðla á stríðandi aðila, jafnvel báða í átökum tveggja, og hnakkrífumst svo um það hvor er rasistinn og hvor ekki. Við rífumst líka um það hvort vestræn siðmenning, byggð á kristnum rótum og gildum (en ekki endilega trúarlegum í öllum tilvikum), sé góð eða slæm. Kannski bara jafngóð og hver önnur? Eða jafnvel verri? Um þetta má rífast.

Að tæma sjóði Vesturlanda: Það er frekar auðvelt. Vopnasendingar, þróunaraðstoð, kaup á varningi sem er framleiddur utan Vesturlanda vegna skatta Vesturlanda á eigin framleiðslu.

Að fá Vesturlandabúa til að ritskoða sjálfa sig: Það er líka auðvelt. Málfrelsið sem áður var í hávegum haft er núna brandari.

Að gera Vesturlandabúa orkulausa: Segir sig sjálft. Það er jú hamfarahlýnun og hún er Vesturlöndum að kenna og á meðan ríki utan Evrópu og Norður-Ameríku raða á sig nýjum kolaorku- og kjarnorkuverum þá keppast Vesturlönd við að reisa vindmyllur. Var ekki til eitthvað máltæki um að berjast við vindmyllur? Kannski mætti gefa því nýja túlkun.

Að gera Vesturlandabúa fátæka: Skuldir, verðbólga og sífellt óviðráðanlegra velferðarkerfi eru lykilþættir hér. Við erum á fullu að innleiða þetta allt.

Að gera Vesturlandabúa vopnlausa: Það er nú þegar búið að eða unnið að því að afvopna almenning. Núna streyma líka öll hergögn út úr Vesturlöndum og framleiðsla nýrra er að sjúga framleiðslumáttinn úr annars konar framleiðslu. Hin nýju hergögn eru svo send til útlanda, að sjálfsögðu.

Að þynna út Vesturlandabúa: Ekkert mál! Láttu þá bara moka inn fólki með aðra sýn og önnur gildi og í nógu miklum mæli þá hverfa vestræn gildi. Til að byrja með er það staðbundið, en smátt og smátt nær slíkt yfir allt samfélagið. Heilu hverfin í stórum borgum eru í dag orðin að litlum skikum óvestrænnar menningar og eru að breiða úr sér víða.

Að gera Vesturlandabúa trúlausa: Nú er ég sjálfur ekki trúaður maður nema að því leyti að ef ég þarf að reiða mig á hin nýju trúarbrögð, eins og fasisma (samstarf ríkisins og stærri fyrirtækja) og Vísindin (sem eru ekki það sama og vísindin), að þá er ég í vandræðum. Kannski Biblían bjóði upp á betri leiðbeiningar en stjórnmálamenn og sóttvarnalæknar.

Listinn er eflaust lengri, ef Kínverjar eru með slíkan. En það er verið að brjóta Vesturlönd bæði að innan og utan. Hvað kemur þá í staðinn? Eitthvað verra. Það er næstum því á hreinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sagan segir að KGB hafi alla tíð fjármagnað liðið sem barðist (og berst enn) gegn kjarnorkuverum í Þýzkalandi.

KGB er ekki lengur til, en þrýstihóparnir eru það.

Annars er margt af þessu komið frá Lenín.  Gott ef ekki allt.  Saul Alynsky er með styttri útgáfuna.  Hvernig á að rústa þjóðum til að ná og halda völdum.

Gekk svo vel fyrir Nikola Ceaușescu.  Algert söksess.

Ásgrímur Hartmannsson, 7.3.2024 kl. 22:57

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Lítum okkur nær; þetta hefur verið að gerast,oft líkt við agúrku sneidda á ákveðnu völdu tímabili,amk eins og ESB skýrði það. Höldum áfram að þykjast blind!!!!!!!

Helga Kristjánsdóttir, 8.3.2024 kl. 00:05

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vesturlönd þurfa enga hjálp við að knésetja sig. Þau eru fullfær um að gera það sjálf. Listinn þinn er fullframkvæmdur.

Ragnhildur Kolka, 8.3.2024 kl. 08:52

4 identicon

Skemmtilegar pælingar. Auðvitað er mikið stríð í gangi á vefnum og árásir út um allt. Meta sem á Facebook er með okkur í vasanum og veit flest um okkur, dælir til okkar duldum og beinum auglýsingum, finnur fyrir okkur síður sem talið er að við höfum áhuga á, byggt á netvafri okkar sjálfra. Og nú setja Kínverjarnir mig á skrá með þér!

Örn Bárður Jónsson (IP-tala skráð) 8.3.2024 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband