Lýðheilsusvindlið

Lýðheilsa, eða það sem á ensku kallast (mun skárra nafni) Public Health, hefur undanfarin ár verið dugleg í að rýra trúverðugleika sinn alveg inn að skinni, eða jafnvel beini. Það er hreinlega ástæða til að efast um ráðlagt mataræði lýðheilsusérfræðinga, hvað þá eitthvað flóknara en það. 

Ef gagnslausu og hættulegu sprauturnar og ráðleggingar um að halda áfram að kaupa og nota þær eru ekki fullnægjandi dæmi þá held ég að Landlæknir hafi núna endanlega sópað seinustu leifum trúverðugleika út með ruslinu. Úr frétt mbl.is:

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir í sam­tali við mbl.is að lofts­lags­breyt­ing­ar geti haft tölu­verð áhrif á heilsu Íslend­inga og heil­brigðis­kerfið þegar litið er fram í tím­ann. Embætti land­lækn­is átti full­trúa í vís­inda­nefnd sem vann að fjórðu mats­skýrslu um lofts­lags­breyt­ing­ar í morg­un.

Hvað næst? Leiðbeiningar um hvaða svæði í heiminum Íslendingar eigi alls ekki að ferðast til svo þeir fái ekki sjúkdóma sem þrífast í öðru loftslagi en því íslenska?

Hvað er hið fullkomna loftslag fyrir lýðheilsu, að mati landlæknis?

Er betra að það kólni, og að fólk sé viðkvæmara fyrir kvefpestum (kuldi drepur fleiri en hiti), eða hlýni, og að fólk umgangist veirur sem þurfa meiri raka og hlýju?

Voru veirur hinnar hlýju landsnámsaldar verri en veirur litlu ísaldar miðalda og mildari tíma dagsins í dag?

En Landlæknir dvelur ekki lengi við þetta og fer beint úr loftslaginu yfir í mengun, sem er gjörólíkur hlutur:

Alma seg­ir að Það sé lyk­il­atriði að auka vökt­un á lýðheilsu­vís­um með til dæm­is aukn­um loft­gæðamæl­ing­um til að tryggja heilsu fólks bet­ur. Svifryks­meng­un geti stund­um orðið mik­il og seg­ir hún dæmi vera um það að fólk komi á spít­ala með vanda­mál tengd svifryks­meng­un.

Þarna er mögulega hægt að taka undir með Landlækni: Loftmengun er slæm fyrir heilsuna. Í fátækari sveitarfélögum Íslands, t.d. Reykjavík, er ekki til fjármagn til að sópa og hreinsa götur og þá er voðinn vís fyrir lungnasjúklinga.

En Landlæknir skiptir svo aftur um umræðuefni og fer að þylja upp stefnuskrá Samfylkingarinnar:

Alma seg­ir að lok­um að aðrar þjóðir séu að sjá að þeir sem höllust­um fæti standa efna­hags­lega komi verst út þannig það að auka jöfnuð gæti skipt sköp­um til að tryggja heilsu fólks.

Hagfræðin hérna er brandari. Tveir menn geta búið við mikinn ójöfnuð en hvorugan skort nokkuð. Sá sem á milljarð er ekki endilega hraustari en sá sem á milljón. En báðir eru eflaust hraustari en sá sem á bara eina krónu. Kannski áherslan ætti að vera á að hann eignist milljón frekar en að tveir menn eigni hálfan milljarð hvor. Þannig er fyrri hluti tilvitnunar í Landlækni nokkuð réttur en sá síðari pólitísk (þv)æla.

Ekki veit ég á hvaða vegferð Landlæknir er, eða öll lýðheilsuverksmiðjan ef því er að skipta, en ég tel óhætt að segja að það komi okkur ekkert við og að það séu aðrar raddir mun trúverðugri. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég velti fyrr mér hve margir eru raunverulega í kolefnis-kirkjunni.

Þetta eru augljóslega ekki grasrótar-samtök.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.10.2023 kl. 18:30

2 Smámynd: Kristinn Bjarnason

Geir, ertu að segja með öðrum orðum að það sé óhætt að leggja embætti landlæknis niður?

Kristinn Bjarnason, 19.10.2023 kl. 18:58

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásgrímur,

Þetta er andstæða grasrótar. Venjulegt vinnandi fólk sem er látið blæða í hirslur kirkjunnar um leið og það missir stöðuga og hagkvæma orku fylgir fyrirmælum prestanna, en bara af því allt annað er talið vera heiðni. Og eins og kaþólikkarnir fullkomnuðu áróðurinn á miðöldum þá er ekkert verra en að vera kallaður heiðinn.

Kristinn,

Það væri sennilega sá niðurskurður á ríkisrekstrinum sem fæstir tækju eftir.

Geir Ágústsson, 19.10.2023 kl. 19:11

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Lýðheilsa er ekki til - um er að ræða áróðurs og ópíum hugtak Marxista sem stjórna vilja heiminum öllum í gegnum 79 alþjóastofnanir sem aftur hafa ekki neitt lögmæti. Krúttlegt að svona vitlesya selst á upplśinga öld, eða segjum frekar költkuklaraöld.

Guðjón E. Hreinberg, 19.10.2023 kl. 19:26

5 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Pólitískt hjal landlæknis stafar að öllum líkindum af því að nú er verið að fjalla um fjárlögin á þingi. Þá eru allir sótraftar dregnir á flot því alltaf þarf meira fé í báknið. En þar fyrir utan er Samfylkingar messuformið henni í blóð borið. 

Ragnhildur Kolka, 19.10.2023 kl. 21:11

6 identicon

Alma Möller er víst titluð land­lækn­ir á þessu skeri en þessi persóna er algjör pappa kassi.. Gæti ekki verið meira sama hvað kemur frá henni. Hvernig var þetta aftur með bræður hennar og eitthvað lyfjafyrirtæki sem græddu á Covid svindlinu? Annars brilliant grein hjá þér Geir eins og alltaf.. Ánægjulegt að sjá að Vagninn hefur tekið sér frí.

Trausti (IP-tala skráð) 20.10.2023 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband