Leiðir til að féfletta launamanninn

Kæri lesandi,

Ég er að vinna að svolítilli blaðagrein (sennilega fyrir Morgunblaðið) sem fjallar um leiðir til að féfletta launamanninn. Ég tel mig hafa náð nokkuð vel utan um það en er kannski að gleyma einhverju mikilvægu.

Vantar eitthvað á þennan lista?

  • Verðbólga
  • Framúrkeyrsla á fjárheimildum hins opinbera
  • Miklar og þungar reglur með tilheyrandi eftirliti og leyfisgjöldum
  • Fákeppni vegna þungs regluverks
  • Einokunarrekstur ríkisins
  • Lántökur hins opinbera (ríkis, sveitarfélaga, opinberra fyrirtækja)
  • Frysting á framboði í umhverfi aukinnar eftirspurnar, þá sérstaklega á rafmagni (sem þrýstir upp verði og blæs út hagnað rafmagnsframleiðenda sem opinberir eigendur stinga í vasann)
  • Jaðarskattar (á t.d. húsaleigubætur og ellilífeyri)
  • Almennt svindl, þjófnaðir og innbrot (þar sem glæpamaðurinn er a.m.k. ekki að þykjast vera ræna fyrir hönd þess rænda)

Öll hjálp vel þegin. Þá næ ég kannski að senda til birtingar um helgina og sjá birt eftir helgi. Fínt veganesti fyrir stjórnmálamenn í vetur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Launatengnd gjöld eru komin yfir 50 prósent.

Guðmundur Ingi Kristinssin (IP-tala skráð) 16.8.2023 kl. 20:03

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Já, óbein þátttaka í Úkraníustríðinu með milljarða kr. fjáraustur í stríðsreksturinn. Launamaðurinn borgar hærri skatta vegna þess. Hælisleitenda málaflokkurinn kostar 4 manna fjölskyldu 240K kr. árlega ef miðað er við 20 milljarða útgjöld. Risavaxin stjórnsýsla ríkisins kostar stórfé fyrir launamannninn og hann er eltur í gröfina með erfðaskatt. Lífs eða liðinn, stóri bróðir sér um að tæma vasa Jóns og Gunnu! 

Birgir Loftsson, 16.8.2023 kl. 20:03

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Guðmundur,

Gætir þú útskýrt þetta betur? "Launatengd gjöld", ertu þá að meina gjöld sem atvinnurekandi borgar úr launasjóði til báknsins frekar en launamannsins?

Birgir,

Góð athugasemd sem ég ætla að fella undir allskonar það sem báknið finnur sér til dundurs með launafé launamannsins. Að mata stríðsmaskínu er jú sögulega séð mjög góð leið til að eyða því fé. 

Og mata hælisleitendur, svokallaða, með ókeypis tannlæknaþjónustu, leigubílum og annað gott. 

Erfðaskatturinn frábært dæmi.

Takk, báðir!

Geir Ágústsson, 16.8.2023 kl. 20:30

4 identicon

Launþegi borgar rúm 25 prósent og launagreyðandi annað eins. Hægt að fá nakvæmar tölur hjá stéttarfélögum. Launatengd gjöld eru hlutfall af launum.

Guðmundur Ingi Kristinssin (IP-tala skráð) 16.8.2023 kl. 21:14

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er hreinn og klár þjófnaður: https://www.visir.is/g/20232399483d/islendingar-auka-framlog-sin-til-oryggis-og-varnarmala
Ef þú trúir því að eitthvað af þessum pening rati til Úkraínu, eða nýtist í eitthvað vitrænt, þá er Vatnajökull til sölu.  Special price for you, my friend.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.8.2023 kl. 21:49

6 identicon

Ekki gleyma öllu tengdu svokallaðar hamfarahlýnunar, nú á að fara eyða helling af peningum í einhver bréf sem segja að við séum að "menga" minna.

Halldór (IP-tala skráð) 17.8.2023 kl. 09:09

7 identicon

Skoðaðu ráðningar hjá utanríkisráðuneytinu.  Mér skilst að þar hafi 200 nýjir  starfsmenn verið ráðnir undir ÞKRG.  

Jóhann Guðmundsson (IP-tala skráð) 17.8.2023 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband