Laugardagur, 17. júní 2023
Þögli meirihlutinn
Frændi minn skrifaði áhugaverða hugleiðingu í grein um daginn sem ég birti hér í heilu lagi:
Tilheyrir þú þögla meirihlutanum?
Undirritaður vill hvetja þögla meirihlutann til þess að viðra skoðanir sínar oftar, gera það af skynsemi, með kærleika í hjarta og af stakri kurteisi.
Hefur þú velt því fyrir þér, hvers vegna umræðan í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum fer illa saman við umræðu meðal vina og vandamanna? Hvers vegna öfgakenndar skoðanir virðast tröllríða umræðunni og öll raunveruleg umræða um sömu mál er þögguð niður og lítið gert úr þeim sem hafa spurningar eða áhyggjur af þróuninni?
Ef þú hefur velt þessu fyrir þér er ekki ólíklegt að þú sért hluti af þögla meirihlutanum. Fámenni minnihlutinn á vissulega rétt á því að koma skoðunum sínum á framfæri, en í lýðræðislegu samfélagi er það ólíðandi að hún taki yfir umræðuna með slíku offorsi og með beinum eða óbeinum hótunum í garð þeirra sem voga sér að hafa aðra skoðun eða spyrja sjálfsagðra spurninga.
Lesandi góður, ég vona að þú kjósir að taka þátt í því að opna umræðuna. Það er nauðsynlegt að spyrja spurninga, tjá sig og láta fólkið í kringum sig vita fyrir hvað maður stendur. Á sama tíma er afar mikilvægt að ræða málin af skynsemi, með kærleika í hjarta og af kurteisi við menn og málefni. Hver nennir að sitja undir gífuryrðum og dónaskap?
Oftast heyrum við talað um þögla minnihluta, eða minnihluta sem fá enga áheyrn. Kannski það sé ekki vandamálið. Kannski er vandamálið að meirihlutinn þegir, eða er látinn þegja, a.m.k. á opinberum vettvangi.
Þessi meirihluti sem hefur áhyggjur af ýmsum tískustraumum. Þessi sem lætur sig hafa það að fyrirmælin stangast á við magatilfinninguna og betri vitund og fylgir fyrirmælunum sama hvað. Þessi sem vildi gjarnan vita meira um það sem er sagt við börn sín á stofnunum en þorir ekki að spyrjast nánar fyrir um það.
Hvað þekkir þú marga sem skilgreina sig sem konu með typpi eða kisu eða án hneigðar eða með nýja hneigð á hverjum degi? Hvað þekkir þú marga sem vilja hræða börn sín til dauða út af veðurfarinu? Hvað þekkir þú marga sem sýna í verki að notkun jarðefnaeldsneytis er dauðadómur plánetunnar?
Sennilega færri en sem nemur plássinu sem spámenn þessara skoðana fá í fjölmiðlum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:37 | Facebook
Athugasemdir
Meirihlutinn eru siðferðilegir hugleysingjar.
Elska þau öll en sauðshátturinn er afar þreytandi til lengdar.
Skúli Jakobsson, 17.6.2023 kl. 19:12
Skúli,
Ég mæli með þessari litlu viðurkenningu uppistandara (sem setur auðvitað hugsanir sínar í fyndinn búning):
https://www.instagram.com/p/CslU6ffPNWS/
Það er gott að iðrast. Stundum er það of seint. Stundum er fórnarlamb glæpsins dautt. Stundum maður sjálfur. Verra er að þegar næsta blekking fer á stjá að þá gleymist hin fyrri lexía - hverfur eins og dögg fyrir sólu.
Geir Ágústsson, 17.6.2023 kl. 19:37
Yup, svo satt.
Dagleg áminning... laun heimsins eru vanþakklæti
Skúli Jakobsson, 17.6.2023 kl. 19:47
Hvað þekkir þú marga sem vilja óheftan innflutning á hælisleytendum?
Björn. (IP-tala skráð) 17.6.2023 kl. 22:44
Það er alveg rétt að hinn þögli meirihluti, hinn almenni borgari, mætti láta heyra meira í sér.
En er það ekki hávær minnihluti sem líkir COVID sprautum við nasisma eins og þessi uppistandari gerir?
Wilhelm Emilsson, 18.6.2023 kl. 03:15
Þögli meirihlutinn er vissulega þögull en ekki endilega samsettur af einstaklingum með sömu skoðun. Og þó einhver heyri aðeins eina skoðun í heita pottinum, meðal kaffistofufélaga sinna og í uppáhalds útvarpsþætti og vefsíðum þá er það ekki endilega neinn meirihluti. Margir sem hafa talið sig hluta af meirihluta eða mjög stórum hluta eftir mikinn hávaða frá skoðanabræðrum sínum hafa verið mjög undrandi þegar upp úr kjörkössum hefur verið talið og atkvæði þeirra og skoðanir sjást tilheyra mjög litlum minnihluta. Viðbúinn sigurflokkur ekki nálægt því að ná inn manni og öruggur forseti ekki með nægt fylgi til að fylla rútu. Hættulegar bólusetningar vinsælli en ókeypis pulsur og frábær gjaldmiðill sniðgenginn af öllum sem einhvern möguleika hafa á.
Og hvað ég þekki marga sem skilgreina sig á óhefðbundinn hátt, hvað ég þekki marga verkfræðinga, Kínverja, Skagfirðinga, tennisleikara eða rauðhærða á ekki að skipta neinu máli og kemur mannréttindum þeirra ekkert við. Og þó allir sem ég þekki mengi þá er það samt ekki nein réttlæting á mengun eða vottorð upp á skaðleysi mengunar.
Vagn (IP-tala skráð) 18.6.2023 kl. 17:37
Vagn,
Þú bregst ekki.
Geir Ágústsson, 18.6.2023 kl. 18:15
Sæll Geir.
Það er hverju orði sannara að Vagn bregst ekki í skrifum sínum en ekki
jafnvíst hversu sammála við erum um skrif hans og má það einu gilda.
Málsendar Vagns eru með eindæmum góðir, rökfesta hans með afbrigðum
og menntun hans stendur föstum fótum a ólíklegustu sviðum.
Ef svo er illa komið fyrir bloggurum að þeir geti ekki tekið
umræðuna við svo snjallan og snarpan bloggara er illa komið
fyrir Moggablogginu.
Fyrir nokkru sá ég umræður heiðursmanna um framtíð Moggabloggsins.
Virtust þeir blendnir í trúnni á framhaldið og sízt sáu þeir nokkuð
sem gæti orðið til bóta.
Allir áttu þeir það sameiginlegt að loka bloggi sínu svokölluðum nafnleysingjum; lausnin að opna bloggið og taka umræðuna var þeim fjarlæg ef ekki hulin með öllu.
Það er misskilningur að þeir sem skrifa undir dulnefni gjöri svo til að
geta vegið að mönnum úr launsátri; þeir vilja flestir geta lifað eðlilegu lífi án þess að síminn glói dag sem nátt því ósjaldan stunda þeir störf
sem leyfa hreinlega ekki slíka truflun að ég ekki segi hreina geðbilun.
Enn eru nokkrir bloggarar sem halda bloggi opnu en réttsýni þeirra ósjaldan í þeim hæðum að sjónarmið fari helst nokkuð saman en að öðrum kosti mokað yfir slíka færslu í ofboði með því að dengja 10 ára gömlu efni inn svo öruggt sé nú að varasöm færslan verði ekki lesin. Tekur slíkt ósjaldan tæpast lengri tíman en korter eða hálftíma!
Njóttu dagsins og nú er eins gott að muna eftir blómunum!
Góður maður sagði eitt sinn við mig að gefnu tilefni að honum dygði
tæpast orðið annað en að reka heilt gróðurhús í framtíðinni!
Húsari. (IP-tala skráð) 19.6.2023 kl. 10:06
Hér eru tveir menn sem skrifa undir dulnefni, Vagn og Húsari, Húsari viðurkennir það að hann noti dulnefni eiginlega. Áður hefur komið fram að Vagn er dulnefni.
Ef Vagn veit svona margt og mikið á mörgum sviðum, hvað vitum við um hverjir eða hver stendur á bakvið dulnefnið Vagn? Kannski fjöldi manna eða gervigreind, tölvuforrit?
Ingólfur Sigurðsson, 19.6.2023 kl. 16:56
Hér er því haldið fram að það sé enginn þögull meirihluti. Sú kenning er sú sem flest yfirvöld þrífast á. Enginn að kvarta eða mótmæla! Ekki þótt við rekum fangabúðir fyrir gagnrýnendur, myrðum minnihlutahópa og drepum fatlaða og þroskahamlaða!
Þægilegt fyrir þá sem stjórna og klappstýrur þeirra.
Geir Ágústsson, 19.6.2023 kl. 18:53
Ingólfur,
Það að menn skrifi nafnlaust truflar mig ekkert. Það geta verið góðar ástæður fyrir því í málefnalegri umræðu: Leiðarar dagblaða eru skrifaðir fyrir hönd ritstjórnar, ekki pennans, menn gætu verið í viðkvæmri stöðu í vinnu eða jafnvel heima fyrir, hafa engan til að tjá sig við á daginn og skrifa í staðinn nafnlaust á kvöldin, óttast símtöl eins og þau sem afi minn og alnafni fékk stundum vegna blaðagreina minna en tók því af stakri ró (við vorum ósammála um nánast allt er kemur að stjórnmálum, og hafði hann þó þurft að sætta sig við austur-evrópskt rusl á trémíðaverkstæði sínu vegna viðskiptahafta), og svona mætti lengi telja.
En ég verð nú samt að viðurkenna að hófsöm kaldhæðni Húsara höfðar betur til mín en sýnileg andúð Vagns á fólki sem er ósammála honum og kemur fram í ýmsu persónuníði og jafnvel helberum lygum um persónur fólks. En einhvers staðar þurfa vondir að vera og hér er rými fyrir allan regnbogann (þó án geldingaviðbótanna á þar til gerðum regnbogafána).
Geir Ágústsson, 19.6.2023 kl. 19:37
Sammála Geir. En þú hefur fengið prófin á netinu til að sanna að þú sért ekki vélmenni? Þegar Húsari hrósaði Vagni fyrir þekkinguna fannst mér þessi jafna við hæfi: Nafnleynd - þekking - gervigreind???
Ingólfur Sigurðsson, 19.6.2023 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.