Miðvikudagur, 1. febrúar 2023
Ertu kona? Þá ertu að velja vitlaust starf
Í kafla um jafnréttismál í kynningu á tillögunum, sem birt var á vef Matvælaráðuneytisins nýverið, er vakin athygli á því að til séu greiningar á stöðu kvenna í sjávarútvegi og að verulega halli á þátttöku þeirra þegar kemur að störfum til sjós.
Þetta er auðvitað áfellisdómur fyrir konur. Af hverju eru þær ekki að velja sjómennsku, eða störf í sjávarútvegi? Vel launuð störf með mikið af samfelldum frítíma. Eru konur alveg veruleikafirrtar?
Nei, auðvitað ekki.
Sjómennska er líkamlega erfið, vinnutímar margir og vinnudagar langir, félagslífið auðvitað mjög takmarkað á úthöfunum og lyktin slæm. Þetta höfðar ekki til allra með aðra valmöguleika. Jafnvel fæstra, óháð kyni. En þeir sem nenna og vilja, þeir gera. Og uppskera auðvitað ágætlega.
Af hverju eru konur ekki að sækjast í þetta?
Það skiptir ekki máli. Öllum er frjálst að sækja í hverja þá stöðu sem viðkomandi vill.
Af hverju er þá verið að skamma konur fyrir að vilja ekki starfa við sjávarútveg? Að vilja ekki vinna á þilfari?
Kannski til að ímyndað vandamál geti útvegað vel launuðu skrifstofufólki innan hins opinbera þægilega innivinnu við skýrslugerð?
Það er mín besta ágiskun, í bili.
Vilja kvenna/kvára fyrsta togarann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.