Þriðjudagur, 22. nóvember 2022
Er sprautan útrunnin eða ekki?
Ahh, þessar gömlu góðu bólusetningar! Þessar sem við þáðum sem krakkar og njótum nú alla ævi. Til dæmis þessar gegn mænusótt (polio, lömunarveiki), sem er skelfilegur sjúkdómur. Samkvæmt dönskum heilbrigðisyfirvöldum í það minnsta (feitletrun mín):
Når barnet er 5 år, får det endnu en vaccination mod difteri, stivkrampe, kighoste og polio. Barnet vil herefter være beskyttet mod difteri og stivkrampe i yderligere 10 år. Vaccinationen beskytter mod kighoste i 5-10 år og mod polio resten af livet.
**********
Þegar barnið er 5 ára fær það aðra bólusetningu gegn barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og lömunarveiki. Barnið verður síðan varið gegn barnaveiki og stífkrampa í 10 ár í viðbót. Bólusetning verndar gegn kíghósta í 5-10 ár og gegn lömunarveiki það sem eftir lifir.
Gott og vel. Barnabólusetningin verndar gegn mænusótt alla ævi. Að minnsta kosti í Danmörku.
En hvað segja íslensk sóttvarnaryfirvöld? Eitthvað annað! Tilvitnun (feitletrun mín):
Sóttvarnarlæknir mælir sérstaklega með því að fólk 24 ára og eldra sem ekki hefur fengið bólusetningu gegn barnaveiki og mænusótt á síðustu 10 árum fái slíka bólusetningu fyrir öll ferðalög erlendis.
Í tilviki barnaveiki rennur sprautan út eftir 10 ár á bæði Íslandi og í Danmörku. Í tilviki mænusóttar rennur íslenska sprautan út eftir 10 ár en sú danska aldrei.
Nú er ég í vafa. Ég fékk íslensku sprautuna á sínum tíma fyrir vel yfir 10 árum síðan. Samkvæmt íslenskum yfirvöldum er ég núna varnarlaus gegn mænusótt. Samkvæmt þeim dönsku ekki. Eru Danir að nota betri efni? Á ég að setjast við hlið dóttur minnar þegar hún verður 5 ára og biðja um sprautu líka? Verður hlegið að mér? Á ég að prenta út leiðbeiningar íslenskra yfirvalda og heimta sprautu?
Öll ráð vel þegin. Kannski ég hafi misskilið eitthvað hérna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekkert er öruggt!
Kenning Darwins og afstæðiskenning Einsteins eru ekki öruggar. En á meðan þær eru ekki afsannaðar verður að gera ráð fyrir sannleiksgildi þeirra.
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 22.11.2022 kl. 22:52
Barnabólusetningin veitir vernd en ekki 100% vernd alla ævi. Þú getur fengið lömunarveiki þó líkurnar séu litlar. Og þá er bara metið að það borgi sig ekki að bólusetja þig og aðra fullorðna aftur, ódýrara sé að sleppa því og annast þig frekar fáir þú lömunarveiki, eða öllu kostnaðarmati sleppt og þér ráðlagt að fá sprautuna þó ódýrara væri að láta þig lamast. Það sem þú ert að sjá og furða þig á er ekki munur á bóluefnum heldur afstöðu þeirra sem sjá um heilbrigðisþjónustuna.
Vagn (IP-tala skráð) 22.11.2022 kl. 23:23
Sæll Geir,
Hvers vegna að vera taka einhverja óþarfa áhættu með einhverju svona líka eiturefna-drasli ???