Þriðjudagur, 27. september 2022
Með og á móti
Leki er kominn í þrjár af fjórum gasleiðslum NordStream 1 og 2 röranna, Svíar telja sig hafa greint jarðskjálfamerki sem líkjast sprengjum að springa og menn byrjaðir að benda á hvern annan.
En skemmdu Rússarnir sín eigin rör? Mér dettur í hug rök með og á móti.
Með:
- Þeir vilja ekki lengur selja gas til Evrópu og hafa reynt að skýla sér á bak við bilanir og skort á varahlutum en hvað ef rörin eru einfaldlega götótt? Þá er hægt að loka þeirri umræðu.
- Þeir eru að sýna vöðvana. Sá sem ræður orkunni ræður aðstæðum.
- Þeir eru að reyna koma sér í samningsstöðu og geta núna boðist til að laga rörin gegn því að einhverjar skuldbindingar komi í staðinn.
Móti:
- Rússum vantar peninga og eru því auðvitað ekki að eyðileggja tekjulindir sínar.
- Rússar eiga þessi rör og geta mögulega komið þeim í verð seinna ef þau eru í lagi.
- Þeir hefðu getað skemmt þessi rör á eigin hafsvæði í stað þess að sigla alla leið til Danmerkur og hætt á að afhjúpa kafbáta sína.
Vonandi kemst niðurstaða í þetta en á meðan hafa stjórnmálamenn nóg að gera að kasta ásökunum í allar áttir. Það kunna þeir! Ætlar enginn að kasta ásökunum á Pólverja sem voru að opna glænýja gasleiðslu í dag sem færir þeim norskt gas beint í æð, og sem fær núna minni samkeppni frá rússnesku gasi á gasmörkuðum í Austur-Evrópu?
Nema auðvitað að Bandaríkjaforseti hafi munað hvað hann sagði fyrir nokkrum vikum, sem væri nýlunda.
Nei, ég segi svona.
Gruna Rússa um skemmdarverk á gasleiðslunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Facebook
Athugasemdir
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 27.9.2022 kl. 19:15
Var ekki opnuð gasleiðsla frá Noregi til Póllands í dag
Úkraína græðir á þessu
Orkurisarnir græða á þessu
USA nær betri tökum á orkusveltri evrópu með þessu
Rússar tapa
Grímur Kjartansson, 27.9.2022 kl. 19:47
Grímur,
Úkraína er fyrir löngu orðin óháð innflutningi á gasi þökk sé tækni sem heitir "fracking" og er bönnuð í Þýskalandi sem situr ofan á 20 ára gasþörf sinni en snertir ekki. En já, rússneskt gas nær ekki lengur til Þýskalands nema með krókaleiðum, Pólverjar fá norskt gas, og Rússar tapa en er um leið kennt um.
Geir Ágústsson, 27.9.2022 kl. 20:56
"Rússar tapa en er um leið kennt um"
ég gæti alveg trúað að Volodymyr Oleksandrovytj Zelenskyj standi að baki þessum skemmdarverkum en treysti á að Pútin verði kennt um
Grímur Kjartansson, 27.9.2022 kl. 21:04
Var einmitt að hugsa það sama, ég get ekki séð hvað Rússar græða á að eyðileggja NordStream 1 rörin, þvert á móti myndu þeir tapa á því. Jafnvel þó ég sé harður á móti Rússum, telji að það eigi að beita þá hörðu til að koma þeim frá 19. öld inn í þá tuttugustu og fyrstu.
Theódór Norðkvist, 27.9.2022 kl. 21:05
Gátan leyst?
Athyglisvert, ef svo er sem fyrrum varnarmálaráðherra Póllands segir á tístinu:
https://www.zerohedge.com/geopolitical/us-blew-russian-gas-pipelines-nord-stream-1-2-says-former-polish-defense-minister
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.9.2022 kl. 21:32
En, það er meira: https://twitter.com/AZmilitary1/status/1574758898086694912?t=zTsHYnfa_hfwHJob6sXylg&s=19
Þeir sögðu að þeir myndu gera það. Þeir hafa staðið við stóru orðin.
Ásgrímur Hartmannsson, 27.9.2022 kl. 21:51
Biden: "Ef Rússar ráðast inn í Úkraínu þá verður engin Nord Stream 2, ég lofa ykkur því"
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 27.9.2022 kl. 21:52
er þetta kannski enn eitt olístríð Bandaríkjanna?
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 27.9.2022 kl. 22:20
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.9.2022 kl. 07:04
Jafnvel trúgirni og heilagri sannfæringu Theódórs Norðkvists virðast takmörk sett og þá er nú mikið sagt.
Jónatan Karlsson, 28.9.2022 kl. 07:17
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.9.2022 kl. 18:41
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.9.2022 kl. 19:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.