Þriðjudagur, 6. september 2022
Bíddu nú við, upprunaleg veira?
Í svolitlu plaggi frá embætti landlæknis, Leiðbeiningar um bólusetningu gegn COVID-19: Haust 2022 1. útgáfa, kemur ýmislegt fram um þessi svokölluðu bóluefni sem er búið að sprauta í fólk seinustu misseri í mörgum skömmtum, meðal annars þessi texti:
Í þessum stutta texta kemur orðið upprunalegur í ýmsum myndum fram alls fimm sinnum. Ekkert nýtt í þessu, þannig séð. Þegar sprautunum var rúllað út var hið upprunalega afbrigði SARS-CoV-2 löngu horfið, sprauturnar virkuðu ekki og því kannski við hæfi að leggja mjög mikla áherslu á að sprauturnar voru hannaðar gegn veiru sem var ekki lengur á ferli.
Um leið er hér ákveðin söluræða á ferðinni. Nú er búið að uppfæra sprauturnar og prófa á alls 8 músum til að sannreyna virkni þeirra. Eða á tungutaki lyfjaframleiðanda:
Sú tilraun hefur hlotið verðskuldaða gagnrýni. Hér er dæmi um eina. En fólk skal boðað í þetta nýja glundur sem virkar ekki. Hið gamla var jú hannað gegn upprunalegu veirunni. Núna er önnur á ferðinni.
Upp með ermarnar, menn og mýs!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:04 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er alveg magnað að það skuli áfram
vera reynt að sprauta fólk með þessu glundri.
Vitandi það að þetta virkar andskotans ekki neitt
og veldur meira tjóni en hjálp.
Hverjir fá nú orðurnar í ár..??
Sigurður Kristján Hjaltested, 7.9.2022 kl. 10:29
Kanadamenn vilja núna fara að gefa fólki búst af eiturglundrinu á 90 daga fresti!
Nú er víst ekki lengur nóg að bústa fólk á sex mánaða fresti vegna dvínandi verndar glundursins.
Fullorðið fólk má sprauta sig í drasl mín vegna, en á að láta börnin í friði.
Kristín Inga Þormar, 7.9.2022 kl. 11:33
Þetta er framtíðin: https://www.zerohedge.com/medical/embalmers-have-been-finding-long-fibrous-clots-lack-post-mortem-characteristics
Meira: https://notthebee.com/article/watch-high-school-athlete-has-6-feet-of-strange-clots-removed-from-leg
Meira: https://archive.ph/e1l8P
Frétti af þessu fyrst fyrir mörgum mánuðum. Þá af Rumble. Þetta hefur ekkert hætt, og er farið að vekja athygli.
Ásgrímur Hartmannsson, 7.9.2022 kl. 15:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.